Íslendingur


Íslendingur - 15.03.1984, Side 1

Íslendingur - 15.03.1984, Side 1
ll.TBL. 69. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. MARS 1984 AKUREYRI Sullur fannst í 40 ára konu Eins og skýrt hefur verið frá í fjölmiðlum fannst sullur í sjúkl- ingi á Fjorðungssjúkrahúsinu fyrir skömmu og var sullurinn ijarlægður. íslendingi er kunnugt um, að sullur er mun algengari en almennt er talið og var t.d. í fyrra greindur sullur í konu á Akureyri. Kona þessi er rösklega fertug. Ekki var talið óhætt að skera hana upp. Jafnframt var ekki talin nauð- syn á því að skera sullinn í burtu, þar sem hann var kalk- „Heildar- endurskoðun- brýn Á bæjarstjómarfundi á þriðjudag varpaði Gunnar Ragnars (S) fram þeirri hugmynd hvort ekki væri komin ástæða til þess að cndurskoða aðild bæjarins að Fjórðungssambandi Norðlend- inga í Ijósi þess, að hér væri komið Iðnþróunarfélag Eyfirð- inga og í bígerð væri stofnun Iðnaðarmiðstöðvar hér á vegum iðnaðarráðuneytisins. Vitnaði Gunnar til þess, að fjárframlag Akureyrarbæjar til Fjórðungssambandsins næmi nú einni og hálfri milljón króna auk þess, sem nú bærust fréttir úr vesturhluta Norölendingaíjórð- ungs um úrsögn úr sambandinu. Gunnar Ragnars sagði í við- tali við íslending, að með þess- um orðum sínum ætti hann alls ekki við, að sambandið yrði lagt niður eða aðildin sem slík endurskoðuð, heldur ætti hann við það, að sér sýndist nauðsyn- legt að endurskoða heildarskip- an þessa mála og hvemig allir þessir kraflar nýttust sem bezt. „Ég á alls ekki við, að Fjórð- ungssamband Norðlendinga verði lagt niður”, sagði Gunnar Ragnars „né að við eigum að segja okkur úr því.” aður og þannig einangraður og skaðlaus fyrir líkamann. í áranna rás hafa röntgen- læknar á Fjórðungssjúkrahúsinu greint kalkaða sulli og kemur slíkt fyrir við og við án þess, að veður sé gert út af því. Þetta á þó einkum við eldra fólk þannig, að dæmið um kon- una frá því í fyrra er óvanalegt, ef miö er tekið af aldri konunn- ar.. Á röntgenmyndum er ekki hægt að greina ókalkaðan sull. Hann verður að flnna með öðrum leiöum og mun þessi kona koma í skoðun vegna hugsanlegrar sullaveiki með reglulegu millibili. Kalkaður sullur er skaðlaus, þar sem um hann myndast kalk, sem lokar hann af og einangrar. Á hinn bóginn getur svo sull- ur sprungið og breiðzt út og þá þarf að gripa til ráðstafana til þess að hefta útbreiðslu hans. Þeir læknar, sem íslendingur ræddi við, voru fremur tregir að ræða þessi mál. Grafísk kyrrð Ljósm. Gunnar Kr. Jónasson. Verður heimavistarskól- unum lokað fram á vor? Allmargir heimavistarskólar í Norðurlandi eystra eiga nú við mikla fjárhagsörðugleika að stríða, þar sem ekki hafa borizt greiðslur frá fjármálaráðuneytinu vegna kostnaðar af akstri nem- enda, ræstingu og mötuneyta. Hjá stærri skólunum er hér um að tefla 200-300 þúsund krónur á mánuði, sem er viðkomandi sveitarfélögum um megn að standa undir. Haft er eftir einum skólastjóranna, að vegna þessar- ar greiðslutregðu væri affarasæl- ast að loka skólunum. Sams konar vandamál gerðu vart viö sig síðari hluta síðast- liðins árs, en þá var þessum málum bjargað. Nú segja kunnugir hins vegar Islendingi, að málin séu alvar- legri, þar sem ekki séu liðnir nema röskir tveir mánuðir af árinu, en svörin fyrir sunnan séu þau, að fjárveitingar séu upp- urnar. Þá er á það bent, að núna sé farin einhver ókunn og óskýrð leið við úthlutun á þessu fjár- magni þannig, að sumir skólar fái allan sinn skammt, en aðrir ekki neitt. Á þessu kann enginn skýringar. Fræðsluskrifstofan fer yfir all- ar verkbeiðnir og áætlanir og kannar hvort ekki sé í samræmi við gögn embættisins og boð- sendir síðan beiðnirnar suður. Þar velur hins vegar „einhver ósýnileg hönd” tiltekna skóla út úr, að því er virðist án nokkurrar sérstakrar viðmiðunar. Þeir starfsmenn skólanna, sem hafa lent í því að fá ekki skilvís- ar greiðslur fyrir þjónustu sína, s. s. bílstjórar eru nú orðnir þreyttir á þessu og er íslendingi t. d. kunnugt um einn bílstjóra, sem lýsti yfir því á síðasta ári, að bærust honum ekki greiðslur fyrir aksturinn fyrir 15. hvers mánaðar, þá væri hann hættur. Um helgina er fyrirhugaður fundur í fræðsluráði hér á Akur- eyri, þar sem Qallað verður um greiðslutregðu ríkisins. Fjárhagsáœtlun sam- þykkt á þriðjudag Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar fyrir árið 1984 var afgreidd á bæjarstjómarfundi á þriðjudag með atkvæðum allra bæjarfulltrúanna ellefu. Minni- hlutinn, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur, stóðu að áætluninni, en fram kom í máli fulltrúa minnihlutans, að þeir hefðu kosið, að sitthvað í áætluninni hefði verið á annan veg. Hins vegar væri þar um að ræða atriði, sem ekki væru svo veigamikil, að ástæða hefði ver- ið að efna til ágreinings vegna þess. Gunnar Ragnars og Sig- urður J. Sigurðsson (S) sögðu, að Sjálfstæðisflokknum hefði tekizt að fá útsvarið lækkað í 10,6% sem væri lægra en gera hefði mátt ráð fyrir miðað við yfirlýsingar bæjarfulltrúa fyrr i vetur. Þá væru skuldir bæjarins ekki auknar. Lögð væri áherzla á að klára þau verk, sem hafin væru, en ekki ráðist í ný og síðast en ekki sízt væri gert ráð fyrir niöurskurði í rekstri upp a 3%. Ljósm. Gunnar Kr. Jónasson

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.