Íslendingur - Ísafold - 08.11.1968, Blaðsíða 3

Íslendingur - Ísafold - 08.11.1968, Blaðsíða 3
ÍSLENDINGUR—ÍSAFOLD — FÖSTUDAGUR 8. NÓV. 1968. Sjónvarpskaupendur Við viljum benda á LUXOR PRESIDENT, sem eitt allra bezta sjónvarpstæki, sem á mark- aðnum er. Það er með 23” skermi og renni- hurðum. — Sænsk gæðavara. Verðið er ótrúlega lágt, aðeins kr. 25.575.00. Þeir, sem þurfa, ættu að muna okkar góðu greiðsluskilmála: Vs við móttöku j)g ‘í/.t á 8 mánuðum. Árs ábyrgð — Fagmannsþjónusta. <s> SÍMI 1-28-33 Auglýsing um sjónvarpsloftnet AtJhygli skal vakin á því, að samkvæmt byggingarsam- þykkt skaj vera ein útvarps og sjónvarpss'töng á (húsi, er sé sameigánileg fyrir allar ibúðár þess. Eitniwig hefur Bæjarráð Akureyrar sam'þykkt að beina þeim tilmæl- um til eigenda eldrl Ihiúsa í 'bænum, að þeir komi sér saman um uppsetningu og notkuw sjónvarpsloftneta, svo ekki þurfi að setja flleiri en eitt loftnet á hvert hús. Bæjarstjóri Akureyrar, Bjarni Einarsson. 1 i .}i t 'i i i t I ? ♦♦♦ | t I ! i i RICHARD INIIXON riæsti Bandarríkjaforseti Á þriðjudaginn var Rich- ard Nixon, frambjóðandi Ke publikana, kjörinn næsti for scti Bandaríkjanna, og tekur liann við embætti þann 20. janúar nk. Nixon lilaut tals- vert í'leiri kjör.mannaatkv. Nixon en nauðsynlegt var til að ná kosningu, en liins vegar fékk hann álika mörg atkvæði kjósenda og Hubert Humph- rey, frambjóðandi Demo- krata. Fengu þeir hvor um sig 43% atkvæða, en þriðji í röðinni var George Wallace með 13%. Um leið og Richard Nixon tekur við forsetaembætti Bandaríkjanna veður Spiro G. Agnevv varaforseti, sem verid liefur ríkisstjóri í Maryland. Nixon er 55 ára en Agnevv 49 ára. Richard Nixon á meira en tveggja áratuga sljórnmála- feril að baki. Hann var vara forseti í forsetatíð Eisenhow ers í 8 á.r og hefur setið í báð um deildum Bandaríkja- þings. Hann hefur því víð- tæka þekkingu á því emb- ætli, sem hann tekur við í janúar, og að auki hefur hann gert sér far um að ferð ast mikið um til að kynnast sem bezt af eigin raun al- þjóðamálum. Nixon féll með litlum mun fyrir John F. Kennedy í for- selakosningunum 1960 og ár ið 1962 féll hann í ríkisstjóra kosningunum í Kaliforníu. Töldu þá margir, að stjórn- málaferli hans væri lokið, Nixon snéri sér að lögfræði- störfum og hvíldi sig á stjórnmálunum. En svo var ekki, hann kom fram á sjón- arsviðið á ný og sigraði með miklum yfirburðum við út- nefningu forsetaefnis Repu- blikana í ágúst. Allt frá því og fram undir kosningadag- inn hafði Nixon örugga for- yslu fram yfir keppinauta sína, en síðustu dagana dró Humphrey jafnt og þétt á hann, og er yfir lauk voru hiósendaatkvæði þeirra svc til jafn mörg, en um 73 millj ónir kjósenda kusu. Á miðvikudaginn, þegar úrslitin urðu kunn, lýstj Humphrey yfir ósigri sínum og árnaði Nixon allra heilla. Nixon hélt þvi næst blaða- mannafund og þakkaði kjós- endum sínum stuðninginn og Humphrey fyrir bardag- Agnew ann, sem hann kvað hafa ver ið harðan en þó að sínu skapi. Nixon sagði við þetta tækifæri, að stjórn- hans myndi leggja höfuðáherzlu á að efla einingu bandarísku þjóðarinnar. Enda þótt Nixon sé vel bú inn undir stjórnarstörf sín, verða þau þó vafalaust erfið viðfangs. Það er ekki aðeins, að ýmsar blikur séu á lofti innan- og utanlands, heldur má Nixon bíta í það súra epli, að stjórn hans á ekki meirihlutafylgi á þingi Bandaríkjanna. Demokratar héldu meirihluta sínum í báðum deildum. Eru fá for- dæmi þess í Bandai'íkjunum, að forseti hafi þurft að stjórna við þær aðstæður. > ♦’♦ ♦,♦ ♦,♦ ♦,♦ ♦,♦ ♦,♦ ♦ ♦ ♦,♦ ♦,♦ Prófarka- lestur Tek að mér prófarkalestur á bókum og ritum. Einnig bún- að handrita undir prentun. 30 ára strafsreynsla. Afgreiðsla blaðsins vísar á. Að gefnu tilefni viljum vér minna á — að OLIA TIL HÚSAHITUNAR er aðeins seld gegn staðgreiðslu y~/—-*B/£JUf/GAJV RAUDARARSTlG 31 SfMI 22022 nema um annað sé samið fyrirfram. — Viljum vér því eindregið mælast til þess að greiðsla sé jafnan tiltæk, þegar afgreiðsla fer fram. Akureyri, 20. sept. 1968 OLÍUFÉLAGIÐ SKELJUNGUR H.F. OLÍUSÖLUDEILD KEA OLÍUVERZLUN ÍSLANDS H.F. f ¥ V t ❖ i i V i ! % t :í I V t ! s ! V t

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.