Íslendingur - Ísafold

Eksemplar

Íslendingur - Ísafold - 20.09.1969, Side 4

Íslendingur - Ísafold - 20.09.1969, Side 4
4 JgLENDINGUR-ÍSAFOLD — MIÐVIKUDAGUR 17. SEPT. 1969 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD — MIÐVIKUDAGUR 17. SEPT. 1969 5 Oddur Thorarenscn, 1797-1880 Ilenrik J. P. Hansen O. C. Thorarensen, 1862-1934 O. C. Thorarensen, 1894-1964 Akureyrar Apótek 150 ár Akureyrar Apótek er nú að Hafnarstræti 104 á Akureyri. Um þessar mundir er þess minnst, að 150 ár eru liðin frá 'stofnun Akureyrar-Apóteks, en það var stofnað 17. desember 1819, Þá var aðeins ein lyfja- búð önnur á landinu, að Nesi við Seltjörn, (nú Reykjavíkur Apótek), stofnuð 1760. íbúar á landinu voru um þessar mund- ir nálega 48.500, en íbúar á Ak- ureyri, sem var hálf-danskur verzlunarstaður, alllangt innan við 100. Fyrsti lyfsali á Akureyri var Oddur Thorarensen (1797-- 1880), sonur Stefáns amtmanns Þórarinssonar á Möðruvöllum í Hörgárdal og konu hans Ragn- heiðar Vigfúsdóttur. — Oddur nam lyfjafræði í Kaupmp.nna- höfn og lauk prófi árið 1819 og veitti Friðrik VI konungur þá leyfi til að stofnsetja lyfjabúð á Akureyri. Árið 1823 flutti Oddur að Nesi við Seltjörn og tók við rekstri lyfjabúðarinnar þar af Guðbrandi Vigfússyni lyf *sala látnum. Þá lyfjaverzlun, — Reykjavíkur Apótek, — rak Oddur til 1834. Árið 1840 fékk Oddur aftur konungs-leyfi til lyfjasölu á Akureyri. Eftir það hefur rekstur Akureyrar Apó- teks verið óslitinn, allt til pessa dags. Akureyrar Apótek stóð þá nyrzt á Akureyrinni, úti við lækinn, sem þá rann þar til sjávar, eigi langt fyrir utan svo nefnt Laxdalshús, er enn stend ur við Hafnarstræti og er nú elzta hús bæjarins. Er Oddur lét af lyfjasölu árið 1857, tók við því starfi sonur hans, Jó- hann Pétur Thorarensen (1830 —1911). Hann lét reisa nýtt hús fyrir starfsemina uppi í brekk- unni, norðan lækjarins, og var hún flutt þangað árið 1862. Það hús stendur enn og er nú Aðal- stræti 4. Þar var Akureyrar Apótek til ársins 1929. Jóhann Pétur rak lyfjaverzlunina til haustsins 1864, en flutti síðar til Melbourne í Ástralíu þar sem hann andaðist árið 1911. Síðan veitti Carl Emil Ole Möll er Akureyrar Apóteki forstöðu í nær eitt ár og Henrik Johann Peter Hansen var lyfsali frá 1865—1885. Oddur Carl Thorarensen 1862—1934) var lyfsali frá 1885—1919. Hann var sonur Stefáns bæjarfógeta Thoraren- sen og konu hans, Oliviu Juby. Oddur Carl tók allmikinn þátt í bæjar- og stjórnmálum, var einn af forystumönnum heima stjórnarmanna á Akureyri, sat í stjórn Gránufélagsins, var for seti bæjarstjórnar í 2 ár og kon súll Norðmanna 1910—1924. — Hann fékkst allmikið við fræði störf í tómstundum sínum, helzt sagnfræði. Kona hans var Alma Klara Margrét Schiöth, bakara- meistara á Akureyri, og börn þeirra voru: Olivia, Henrik (læknir), Oddur Carl (lyfsali) og Stefán (lyfsali). Árið 1919 tók Oddur Carl Thorarensen (1894—1964) við lyfsölunni af föður sínum og al- nafna, er áður var getið. Voru þá liðin rétt 100 ár frá því að langafi hans og nafni fékk fyrst ur manna lyfsöluleyfi á Akur- eyri. Oddur Carl lét reisa nýtt hús fyrir Akureyrar Apótek að Hafnarstræti 104 og þangað var starfsemin flutt árið 1929 og er hún þar enn. Auk lyfsölunnar stundaði Oddur margvíslegan annan verzlunarrekstur. Eftirlifandi kona Odds er Gunnlaug Júlíus- dóttir frá Hvassafelli í Eyja- firði, og börn þeirra: Alma Anna, læknir, Hólmfríður Lyd- ia og Oddur Carþ Thorarensen lyfjafræðingur. Á miðju ári 1963 fékk núverandi lyfsali, Oddur Carl Thorarensen (f. 1929) leyfi til að reka lyfjabúð á Akureyri. Hann er 6. lyfsal- inn í Akureyrar Apóteki og sá 5. afkomenda Stefáns amt- manns á Möðruvöllum, er því starfi gegnir. Kona hans er Mar grét, dóttir Ingólfs fyrrverandi héraðslæknis Gíslasonar. Akureyrar Apótek var eina lyfjabúðin í Norðlendingafjórð- ungi til ársins 1921, að leyfi var veitt til að reisa lyfjabúð á Sauðárkróki. Árið 1934 var svo stofnað annað apótek á Akur- eyri, Stjörnu Apótek. Starfs- fólk Akureyrar Apóteks er nú 14 manns, en margt fólk hefur að sjálfsögðu starfað þar um dagana. Lengst starf hefur þar að baki Sigurður Flóventsson exam. pharm., en han lét af störfum fyrir nokkrum árum og hafði þá starfað þar sam- fleytt í rúmlega hálfa öld. — Elzti starfsmaðurinn nú er Ey- þór Thorarensen exam. pharm , sonar-sonar-sonur Odds, fyrsta lyfsalans. Hefur Eyþór starfað • hjá Akureyrar Apóteki í 47 ár og munu ekki margir íslending ar hafa starfað lengur við lyfja verzlun en þessir tveir menn. HÚSHJÁLP ZANUSSI | UEIMILISPKÝÐI Söluumboð í Reykjavík: Snorrabraut 44 - Reykjavík - Sími 16242 og 15470. ÆSK I HÓLASTIFTI 10 ÁRA Segf ffrá 10. aðaEffundimisn, sem haldinn vasr að Vesfmaiinsvafiii um síðtisfn Sielgi Hrefna Torfadóttir flytur framsöguerindi á aðalfundinum. 10. aðalfundur Æskulýðs- sambands kirkjunnar í Hóla- stifti var haldinn í Sumarbúð- unum að Vestmannsvatni dag- ana 13. og 14. sept. sl. Mættir voru fulltrúar æskulýðsfélaga og sóknarprestar úr fjórum pró fastsdæmum á Norðurlandi, og sóítu fundinn um 45 manns. © Að loknum ávarpsorðum sr. Sigurðar Guðmundssonar prófasts í upphafi fundarins, flutti formaður fráfarandi stjórnar, séra Pétur Sigurgeirs- son vigslubiskup, skýrslu stjórn arinnar og rakti nokkuð sögu ÆSK í Hólastifti sl. 10 ár. © Sambandið var stofnað í kap ellu Akureyrarkirkju 18. okt. 1959 á aðalfundi í Presta- félagi Hólastiftis, en þá voru starfandi fjögur æskulýðsfélög norðan lands. Fyrsta verk ÆSK var að beita sér fyrir auknu sumarbúðastarfi, en þá voru sumarbúðir að Löngumýri í Skagafirði, og tók sambandið þátt í því starfi. Árið 1961 var hafizt handa um byggingu nýrra sumarbúða við Vest- mannsvatn í Aðaldal, og þær vígðar af biskupi íslands, hr. Sigurbirni Einarssvni, 28. júní 1964. — Húsameistari var Jón Geir Ávústsson byggingarfull- trúi á Akureyri, en formaður sumarbúðanefndar f'~á upphafi hefur verið séra Sigurður Guð- mundsson prófastur. © Árlega hafa farið fram mót fermingarbarna, námskeið fyrir foringja æskulýðsfélaga og mót fyrir félaga. Fyrir hver jól hefur sambandið gefð út jólakort, og tekð þátt i alm'enn um æskulýðsdegi 1. sunnudag í marz. — Gefnar hafa verið út tvær hljómplötur í samvinnu við ,,Fálkann“ í Reykjavík. Þá hefir ÆSK efnt til samkeppni meðal skólanemenda, og í sum ar var ljósmyndasamkeppni í m tilefni 10 ára afmælisins. Úrslit í þeirri keppni urðu þau, að þrjú beztu ljóðin voru eftir þessa höfunda: Pétur Sigurðs- son erindreka, Reykjavík, Krist ján frá Djúpalæk og Gunnlaug Hjálmarsson, Akranesi. @ Æ.S.K. hefir í samvinnu við Hólafélagið hafið undirbún- ing að stofnun heimavistarskóla kirkjunnar að Hólum í Hjalta- dal. Hugmyndin er, að skólinn verði fyrst starfræktur í sumar búðunum, þar sem þegar eru þar fyrir hendi húsakynni til að byrja skólahald. í sumar voru fjögur námskeið fyrir börn en auk þess sumardvöl fyrir alclrað fólk í samvinnu við Elli- og hjúkrunarheimilið Grund í Reykjavík, og færði Gísli Sigurbjömsson forstjóri sambandinu að gjöf „sólar- merki“ sem eiga að seljast til að hjálpa öldruðu fólki að njóta sumarsins með dvöl að Vest- mannsvatni og víðar í landinu. © Eitt æskulýðsfélag var stofn að á s.l. ári, þann 8. des., Æskulýðsfélag Þingeyrarklaust urs með 24 félögum. Ráðgjafar eru Kristinn Pálsson kennari og hvatámaður að stofnun fé- lagsins, séra Árni Sigurðsson, Blönduósi. Eru þá 9 starfandi félög í samband'nu. Á liðnum 10 árum hefur stjórnin haldið 42 fundi. © Gjaldkeri stjórnarinnar, séra Sigurður Guðmundsson, iagði fram reikninga sambands ins, er nema tæpum 5 milljón- um. króna. — Er þar stærsti þátturinn kostnaður Sumarbúð anna. ÆSK skuldar nú 1/5 þeirrar upphæðar. Skýrslu um rekstur sumarsins gaf sumar- búðastjórinn, Gunnar Rafn Jónsson stud. med. Um Æsku- lýðsbiaðið töluðu ritstjórinn, sr. Bolli Gústavsson, og Guðmund- ur Garðar Arthursson, er lagði fram reikninga blaðsins. Frá útgáfuráði talaði Gunnlaugur Kristinsson fulltrúi, og fyrir hönd bréfaskólans Þorvaldur Kristinsson. — Gunnlaugur af- henti sumarbúðunum kr. 38. 500.00 frá útgáfunni, sem er á- góði af bók Jennu og Hreiðars: Bítlar eða Bláklukkur. © Aðalmál fundarins var: — Fermingin og undirbúningur hennar. — Frummælendur voru Hrefna Torfadóttir Akur- eyri og séra Þórir Stephensen Sauðárkróki. Samþykkt var svo hljóðandi tillaga um þetta mál: „10. aðalfundur ÆSK, hald- inn á Vestmannsvatni, vekur at hygli á liinu mikla gildi ferm- ingarundirbúningsins, og legg- ur ríka áherzlu á að hann sé vel ræktur. Fundurinn telur bólca- kost þann, er fermingarfræðar- ar eiga nú kost á, ófullnægj- andi og leggur til að nýjar hæk ur verði reyndar, er séu að- gengilegri, þannig að þær t.d. setji trúarskoðanir fram á á- kveðnari hátt og veiti örugga leiðsögn til trúar og bænalífs einstaklingsins. Þetta ætti að stuðla mjög að því að efla hið trúarlega gildi fermingarinnar. Einnig þurfa nemendur að eiga kost á öðrum bókum til sjálfs- náms. Síðast en ekki sízt vekur fundurinn athygli á þeim stóra þætti, sem heimilin hljóta að eiga í fermingarundirhúningi með því að fylgjast með heinia- námi og að fylgja unga fólkinu til kirkjunnar.“ © Kvöldvaka var á vegum fundarins í Grenjaðarstaða- kirkju, sem séra Sigurður Guð- mundsson stjórnaði. — Ræður fluttu séra Árni Sigurðsson og séra Þórir Stephensen. Ávarp flutti æskulýðsfulltrúinn, séra Jón Bjarman. Einsöng söng sr. Birgir Snæbjörnsson. Þá sýndi Sigurður Pétur Björnsson bankastjóri á Húsavík lit- skuggamyndir, sem hann hefur tekið af kirkjum og kirkjulegu starfi í Suður-Þingeyjarprófast dæmi. Prófasturinn flutti skýr- ingartexta, en hljómlist var leikin meðan myndirnar voru sýndar, og vöktu þær almenna hrifningu. Að loknu kirkjukvöldi fór fram altarisganga. © Síðari fundardagur hófst með morgunbænum séra Björns Jónssonar. Þá störfuðu umræðu hópar, en formenn þeirra voru: Hólmfríður Pétursdóttir skóla- stjóri, Löngumýri, séra Sigíús Árnason, Miklabæ, séra Einar Sigurbjörnsson Óláfsfirði, Gunn ar R. Jónsson sumarbúðastjóri og séra Björn Jónsson Húsavík. @ Skorað var á hið háa Alþingi að samþykkja þegar á næsta þingi frumvarp um prestakalla skipun og kristnisjóð, sem m.a. gerir ráð fyrir öðrum æskulýðs fulltrúa, og verði hann staðsett ur á Norðurlandi, og þingmenn kjördæma þar beðnir um að vinna ötullega að því. Stjórnendur fjölmiðlunar- tækja voru minntir á þau miklu áhrif, sem þau sem slík hafa á mótun hinna ungu og þá ábyrgð er því fylgir, og að efnisval þurfi að vanda sem mest. í iii'imiiiiiiw Fundurinn áleit nauðsynlegt vera, að þjóð, sem kennir sig við kristna menningu og bygg- ir á lífssannindum kristindóms- ins, hafi kristinfræði í öllum bekkjum framhaldsskólanna sem skyldunám allt að stúdents prófi, svo sem reglugerð mælir fyrir um. Ánægja var látin í ljós með þá nýbreytni i sumarbúðunum, að efna til sumardvalar fyrir aldrað fólk. Vakin var athygli á Húsmæðraskólanum á Löngu mýri í Skagafirði og æskulýðs- félagar minntir á að kynna sér starfsemi skólans. — Þá voru prestar hvattir til að hafa oft- ar altarisgöngur. © Guðsþjónustur voru í fimm kirkjum, Húsavík, Einars- stöðum, Ljósavatni, Reykjahlíð og Skútustöðum. Frá biskupi íslands, herra Sigurbirni Ein- arssyni, bárust heillakveðjur, og risu fundarmenn úr sæti í virðingar- og þakkarskyni og biskupi þökkuð störf hans og allur stuðningur við ÆSK í Hólastifti. Einnig bárust fundinum kveðjur frá Samvinnutrygging um, og öðrum aðilum, er sýndu sambandinu vinarhug sinn við þetta tækifæri. Sérstakar þakk ir voru færðar prófastshjónun- um á Grenjaðarstað, séra Sig- (Ljósm.: Gunnl. Kristinsson). urði Guðmundssyni og frú Að- albjörgu Halldórsdóttur, fyrir mikið og fórnfúst starf ,er þau hafa unnið á liðnum árum fyr- ir Sumarbúðirnar, svo og mót- töku fundargesta. Voru allir mjög hrifnir af Sumarbúðun- um og dvölin þar hin ánægju- legasta. ö Formaður ÆSK sl. 10 ár, sr. Pétur Sigurgeirsson vígslu- biskup, baðst undan endurkosn ingu. Voru honum þökkuð mk- ilvæg störf hans og farsæl for- usta á hinu liðna starfstímabili. Þessir voru kosnir í stjórn Æ SK til tveggja næstu ára: — Form.; Séra Sigurður Guð- mundsson, séra Þórir Stephen- sen, séra Birgir Snæbjörnsson, Ingibjörg Siglaugsdóttir og Pét ur Þórarinsson. í varastjórn: Séra Bolli Gústavsson, séra Þór hallur Höskuldsson og Guð- mundur Garðar Arthursson. @ ÆSK í Hólastifti var stofnað til þess að vekja æskuna til trúar á Drottin vorn og frels- ara Jesúm Krist, og hvetja hana til þjónustu í kirkju hans. Að þessu marki hefur sambandið unnið. Það hefur átt stuðning yngri sem eldri, áhuga og fórn- fýsi. — Þakkir voru fluttar og nafn Drottins lofað. (Frétt frá ÆSK í Hólastifti). RÆTT VÍÐ HELGA HALLGRÍMSSON MENNTASKÖLA- KENNARA OG SAFNVÖRÐ, SEM . . . Byggir upp náttúrurannsóknarstöð í tómstundunum Á Víkurbakka á Árskógs- strönd er að komast á lagg- irnar all sérstæð rannsóknar- stöð, sem ekki á sér hliðstæðu hér á landi. Helgi Plallgrímsson menntaskólakennari og safn- vörður Náttúrugripasafnsins á Akureyri keypti jörðina þar fyrir nokkrum árum og hefur síðan unnið að uppbyggingu náttúrurannsóknarstöðvar á staðnum. Slíkar stöðvar eru al- gengar erlendis, en hérlendis hefur engri slíkri stöð vcrið komið upp. Að vísu eigum við Rannsóknarstofu landbúnaðar- ins, þar sem unnið er mikið og gagnmerkt starf á afmörkuðu sv:ð;. En stöð eins og sú, sem er að rísa á Víkurbakka, byggir starfsemi sína á mun víðtækara sviði, almennum náttúrurann- sóknum. Við renndum út að Vilc urbakka og spjölluðum um stund við Helga Hallgrímsson um stöðina og þá starfsemi, sem þar er hafin. ♦ Að hvaða rannsóknum hef- ur verið unnið í sumar? — I ár fékkst nokkur styric- ur úr Vísindasjóði til að vinna að rannsóknum á jarðvegslíf- fræði, en slíkum rannsóknum hefur lítill gaumur verið gef- inn hér á landi. I sumar höfum við verið þrír við þessi störf, Jóhannes Sigvaldason tilrauna- stjóri á Akureyri og Guðmund- ur Olafsson kennari við MA hafa starfað með mér. ^ Hvernig fara þessar rann- sóknir fram? — Við afmörkum sérstaka reiti og tökum úr þeim sýnis- horn á mismunandi dýpi, allt niður í 20 cm. Hvert sýnis- horn er um 50 cubikcm. Síðan látum við þessi sýnishorn í þessar trektir, sem þú sérð hér, og þar er moldm þurrkuð. Við höfum smáglös undir trektun- um, en í þeim eru sigti, og v:ð hitann falla þær lífverur, sem eru í moldinni, niður í glösin. Síðan rannsökum við þessar verur í smásjá, teljum þaer og greinum í flokka. Það hefur komið í ljós, að það er allt morandi af lífi nið- ur á 10—15 cm dýpi, en úr því fer það snarminnkandi. Helztu flokkarnir eru mordýr, sem oft eru kölluð stökkmordýr, en þau skipta oft hundruðum í sýnis- horni, sem tekið er úr efsta lag inu. Alíka magn er af maurum og líkur benda til, að svipað magn af þráðormum sé þar að finna en þeir eru oft dýpra. Svo er að sjálfsögðu talsvert af ána möðkum og lifrum. ó Og úrvinnslan? — Þetta er brautryðjenda- starf og því skammt á veg kom ið enn sem komið er. Við vinn- um úr þessu þannig, að gera línurit yfir fjölda lífveranna, sem finnast á ákveðnum dýpt- um á mismunandi gróðurlönd- um. Það hefur hagnýta þýðingu t.d. að safna sýnishornum úr mismunandi jarðvegum, nýju túni og gömlu, þurrlendi og vot lendi og að taka sýnishorn á mismunandi árstíðum. Þessar lífverur geta haft vissa þýðingu fyrir jarðveginn, en eins og ég sagði áðan, er þetta skammt á veg komið ennþá. Aðstaðan er heldur ekki eins góð og skyldi, við höfum hér nokkrar hand- bækur um þetta efni, flestar að láni frá Náttúrugripasafninu á Akureyri, og smásjá, svokall- aða þrívíddarsmásjá, sem við fengum að láni í Sjöfn. En auð vitað er það nauðsynlegt að stöðin hafi yfir sem beztum bún aði að ráða. ó Hafa fleiri vísindamenn ver- ið hér við störf? — Hér voru 11 stúdentar frá Wales í fimm vikur nú í sumar og gerðu þeir ýmsar rannsókn- ir ,m.a. á sjávardýrum og gróðri í sjónum. Þeir bjuggu hér í stöðinni, höfðu sjálfir með sér mat en fengu afnot af þeim tækjum, sem hér eru og að- stöðu til að vinna úr sínam rannsóknum. Það er ekki vafi á, að áhugi er fyrir hendi hjá erlendum vísindamönnum að koma til landsins og gera ýms- ar athuganir. En það er grund- vallaratriði, að þeir fái starfs- aðstöðu og þessi stöð er fyrsti vísirinn að því að svo verði. — Stöðin er á heppilegum stað, á mörkum fjalls og fjöru, og því möguleikar á margs konar rann sóknastarfsemi. Hér þurfa því að koma tæki og bókasafn og frumskilyrði er að koma upp útbúnaði til að dæla sjó í hús- ið, svo hægt sé að hafa ferskan sjó, þegar unnið er að athugun- um á sjávargróðri og dýrum úr sjónum. Þá er ekki síður mikils vert að koma fyrir kæli- og frystibúnaði. Þá hefur stöð sem þessi möguleika á að lífga upp á kennslu í náttúrufræði, sem er steindauð ítroðslufræði í skólum landsins. # Þú hefur unnið að fleiri rannsóknum? — Ég hef safnað sveppum í 10 ár uppá eigin spýtur. Það er forvitnilegt rannsóknarefni, sem ekki hefur verið sinnt að ráði hérlendis. Aðallega hef ég safnað stórum sveppum, en þeim hefur aldrei áður verið safnað hér. Rannsóknirnar bein ast að mestu að tegundasöfnun og er ég nú búinn að safna um 200 tegundum. Sumarið í ár hefur verið mikið sveppasum- ar og hef ég safnað miklu í ár. Annars koma sveppir víða við sögu og er t.d. sveppategund, sem veldur þurrafúa í skipum. Ég hef tvisvar fengið styrk til að vinna að þessum rannsókn- um mínum. Það er margt fleira, sem ber á góma, því Helgi er fjölmennt aður maður, en ekki er rúm til að rekja það að sinni. En þarna á Víkurbakka er merkileg vís- indauppbygging að hefjast sem vert er að gefa gaum í fram- tíðinni.

x

Íslendingur - Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.