Íslendingur - Ísafold

Issue

Íslendingur - Ísafold - 20.09.1969, Page 8

Íslendingur - Ísafold - 20.09.1969, Page 8
 íslendintfur -Isafold Laugardagur 20. sept. 1969. Hvers konar ferðaþjónusta Ödýrustu innan- og utanlandsferðirnar. Afsláttarfargjöld fyrir fjölskyldur og hópa. Afborgunarkjör á flugleiðum Loftleiða. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR Strandgötu 5, Akureyri. Símar 11475 & 11650. sjAlfstæðishúsið 90 Opið föstudags-, lauga.rdags- og sunnudagskvöld. 90 Hljómsv. Ingimars Eydals, Helena og Þorvaldur. SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ, Akureyri (Borða- og matarpantanir í síma 1-29-70). Togarar LA í 20 ára flokkunarviðgerð þessi árin Eðlilegur rekstursgrundvöllur fyrir nýja togara er ekki til — borgararnir verða að hjálpa til beint eða óbeint VIÐTALS- TÍIHAR bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins á Akureyri. í vor tóku bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akur- eyri upp fasta viðtalstíma hálfs mánaðarlega, veittu upplýsing ar og tóku við ábendingum. Nú er sumarleyfi bæjarstjórnar lokið og hefjast bá viðtalstím- arnir aftur. Er fólk hvatt til að nota sér þá og ræða við bæjar- fulltrúana um þau bæjarmál, sem það hefur áhuga á, hvort sem þau eru smá eða stór. Næsti viðtalstíminn nú verð- ur á mánudaginn kl. 17—19 (5—7) í Sjálfstæðishúsinu, uppi (gengið inn að sunnan- verðu frá Geislagötu). Framkvæmda- stjóri ráðinn til Eeikfélagsins Leikfélag Akureyrar hefur nú ráðið til sín framkvæmda- stjóra og er hann tekinn til starfa hjá félaginu. Hann heit- ir Sigmundur Orn Arngríms- son, ungur maður, og tók próf úr leikskóla Leikfélags Reykja- víkur. í fyrravetur starfaði hann með Leiksmiðjunni, en undanfarin ár hefur hann unn- ið í Samvinnubankanum í Reykjavík. Leikfélagið hyggst gera á- tak í vetur til að efla starfsem- ina, sýna fleiri leikrit en áður og gera starfið fjölbreyttara. — Var því sýnt, að tímabært væri að ráða mann til að annast dag legan rekstur félagsins og verð ur fróðlegt að fylgjast með verk efnavali og starfi félagsins í vetur. En það er ekki nóg að félagið leggi sig fram um meira starf, almenningur verður líka að leggja sitt af mörkum til að þetta megi takast og það verður bezt gert með því að sækja leik húsið vel. Formaður Leikfélags Akur- eyrar er Jón Kristinsson. ÍBA-LBK syðra á laugardag Á laugardaginn kl. 14 munu Akureyringar og Kópavogsbú- ar kljást á Melavellinum í Reykjavík um viðbótarsætið í I. deild, þ.e. 8. sætið. Sem kunn ugt er, urðu Akureyringar neðstir í I. deild og Kópavogs- búar efstir í öðrum riðli af tveim í II. deild, en töpuðu fyr- ir sigurvegurunum í hinum riðl inum, Víkingum í Reykjavík. Var leikur Víkinga og Kópa- vogsbúa jafn og tvísýnn og lauk ekki fyrr en eftir frarn- lengingu. Það má því búast við, að Kópavogsbúar verði harðir í horn að taka á laugardaginn. Þessar vikurnar er einn fjög- urra togiya Útgerðarfélags Ak- ureyringa hf., Kaldbakur, í 20 ára flokkunarviðgerð hjá Slipp stöðinni hf. Áður hefur Slétt- bakur verið í slíkri viðgerð, Svalbakur verður það á næsta ári og Harðbakur á þar næsta ári. „Þetta er það eina, sem við sjáum okkur fært að gera í út- gerðarmálunum,“ sagði Vil- helm Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri, „þetta eru dýr- ar viðgerðir en skipin orðin gömul og á ýmsan hátt á eftir tímanum. Það væri auðvitað allt annað, að fá ný skip. Jafn- vel væri til bóta, að fá eitt eða tvö nýrri skip til viðbótar til þess að nýta betur hraðfrysti- húsið og skapa meiri atvinnu í því. En eðlilegur rekstursgrund völlur fyrir nýlega eða nýja togara er ekki fyrir hendi og vafasamt, hvort hægt er að segja, að hann hafi nokkurn tíma verið það. Togararnir hafa yfirleitt verið reknir með ríkisstyrk og það oftast ekki einu sinni nægt. Og þegar ekki hefur borið sig að reka afskrif- Ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir víðtækum aðgerðum til að örfa framkvæmdir við bygg- ingu íbúðarhúsnæðis næstu mánuðina. Hefur Seðlabankinn fallizt á að veita byggingarsjóði ríkisins bráðabirgðalán og verð ur með því unnt að lána 470 milljónir króna á næstu 9 mán- uðum, sem er meira fé en nokkru sinni hefur verið unnt að lána á jafn löngum tíma. — Þetta jafngildir fullum lánum út á 110—1200 íbúðir. Þá verð- ur varið 50—60 milljónum kr. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er nýhafið. Form. ís- lenzku sendinefndarinnar, Emil Jónsson utanríkisráðherra, er kominn til þings, ásamt vara- form., Hannesi Kjartanssyni ambassador, Haraldi Kröyer og Tómasi Tómassyni, og flytur uð skip með því móti, má nærri geta, hvcrnig á að vera hægt að reka 80—100 milljóna skip. — Hér verður að koma til ein- hvers konar aðstoð borgaranna, bein eða óbein, ef unnt á að vera að endurnýja togarana, sem óumdeilanlega skapa feiknamikla atvinnu og eru und^rstaða mikilvægrar gjald- eyrisöflunar. Við höfum nú 4 tvítuga togara og rekum hrað- frystihúsið og verkunina nær eingöngu í sambandi við þá. — Þetta skapar um 350 manns bcina vinnu og 75—80 milljón- ir í laun á ári og að auki fjöl- mörgum meiri og minni óbeina vinnu og tekjur í formi þjón- ustu. Með meiri afla sköpuðust möguleikar á að taka upp vakta vinnu og fjölga starfsfólki upp í 450—500 manns, a.m.k. hluta úr árinu. Það er því full ástæða til að leggja fyrirtæki sem þessu lið.“ á sama tímabili til annars á- fanga framkvæmda á grund- velli byggingaráætlunar fyrir Breiðholt í Reykjavík, sem tek ur til 180 íbúða. Loks hefur rík isstjórnin ákveðið að beita sér fyrir öflun 20 milljóna króna til að hefja framkvæmdir á grundvelli byggingaráætlana annars staðar en í Reykjavik, þar sem hliðstæð þörf er fyrir hendi. Tekjuöflun byggingar- sjóðs í framtíðinni verður tek- in til gagngerðrar athugunar á Alþingi í vetur. utanríkisráðherrann ræðu á þinginu á þriðjudag. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna fara til þings um miðjan október, en þeir eru Jón G. Sólnes, Lúðvík Jósefsson, Tómas Árnason og Unnar Stefánsson. Löndun úr einum af togurum Ú.A. (Mynd: — her Hvammsfangi: VILJA REYIMA VIÐ RÆKJLIMA • Verzlun Sigurðar Pálma- sonar á Hvammstanga, sem rekur auk verzlunar bæði sláturhús og frystihús, kannar nú möguleika á að semja við bát eða báta um að leggja þar upp rækju í vetur, en aðeins hálftíma sigling er af næstu miðum á Húnaflóa til kauptúnsins. — Mundi þá verða notuð sú að staða, sem fyrir hendi er í sláturhúsinu og frystihúsinu, til þess að vinna rækjuna. — Gæti þetta skapað vinnu fyr ir a.m.k. 20 manns. • Heyskapur hefur gengið misjafnlega í Vestur- Húna-vatnssýslu í sumar, að því er Karl Sigurgeirsson verzlunarstjóri á Hvamms- tanga tjáði blaðinu. Yfirleitt hefur verið stirð heyskapar- tíð og hey hafa hrakizt. Eru þau því bæði með minna móti og fremur léleg. Síð- ustu daga hefur heldur rof- að til við heyskapinn, en nú eru göngur og réttir og slát- urtíð hefst í næstu viku, svo naumast verður mikið heyj- að héðan af. • Lítið hefur verið um fram kvæmdir á Hvammstanga í sumar. Vinnu við Félags- heimilið lauk um miðjan júní að svo miklu leyti, sem fjármagn leyfði. Unnið hef- ur verið við smiði nokkurra íbúðarhúsa. 470 IHILLJéMl TIL ÍBÍJÐALÁMA — áætlunarframkvæmdum haldið áfram TAKA SÆTI Á ÞINGI SAIHEIIMIJÐL ÞJÓÐANIMA

x

Íslendingur - Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.