Íslendingur - Ísafold

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - Ísafold - 10.12.1969, Qupperneq 1

Íslendingur - Ísafold - 10.12.1969, Qupperneq 1
A förnum vegi... — Sjá grein á bls. 5 íslnndinmr-ÍsaMd 72. tölublað. Miðvikudagur 10. des. 1969. 54. og 94. árgangur. Verkfallshótanir og seinborin matsbeiðni stöðvuðu viðgerð á hafnargarðinum í Vopnafirði: FRAMHALD VIÐGERÐAR f ÓVISSti - HÆTTA A FREKARISKEMMDUM IMæsta blað 32 síður □ Næsta blað, sem kemur á föstudaginn, verður 32 síð- ur, með ýmsu efni og að sjálf- sögðu auglýsingum. Þar verður eitthvað við fíestra bíefi. □ Auglýsendur eru vinsamlega beðnir að senda auglýsinga- handrit í þetta blað helzt fyrir miðvikudagskvöld, eða gera viðvart fyrir þann tíma, þar sem rúm er orðið mjög takmark að. SÖLUTÍUI VERZLANA FYRIR JÓL Eins og venja er fyrir jjlin, verða verzlanir almennt opnar flengur en venjulega tvo síðustu laugardagana og á Þorláksdag. Næsta laugardag, þann 13., verða verzlanirnar opnar til kl. 18, laugardaginn 20. til sl. 22 og á Þorláksdag til kl. .24. Eiga kvikmynd af hriniimi! © Eins og skýrt er frá í ann- arri frétt hér á síðunni, hef- ur vita- og hafnarmálastjói'i nú nýlega óskað eftir matsgerð á sitrmmdum þeim, er urðu á hafnargarðinum í Vopnafirði fvr’r tæpum mánuði, tveim dög um eftir að Norðurverk hf. skil pði honum af sér og garðurinn var tekinn út. í sambandi við það hefur blaðið frétt, að Rolf Arnason tæknifræðingur, sem st.iórnaði framkvæmdum Norð- urverks hf. eystra í sumar, hafi fekið kvikmynd af hamföru.i- um ,þegar garðurinn skemmd- ist, og þurfi því ekki að fara á mil’i máía, hvað gekk á. Hekla reynd Blaðið hefur hlerað, að gert sé ráð fyrir að nýja strandferða skipið, Hekla, fari í reynzlusigl ingu i næstu viku. Á föstudaginn stöðvaðist viðgerð á hafnargarðinum nýja í Vopnafirði, vegna verkfallshótana og seinbor- innar matsbeiðni vegna skemmdanna, sem urðu á garðinum fyrir tæpum mán- uði. Er nú framhald viðgerð- arinnar í óvissu, en á meðan er mikil hætta á, að garður- inn verði fyrir frekari skemmdum, enda ekki byrj- að að gera við þar sem skemmdirnar urðu mestar. Málsatvik eru þau í stór- um dráttum, að Norðurverk hf. skilaði garðinum af sér snemma í nóvember og var verkið þá tekið út. Tve’m dögum síðar kom ofsalegt brim, sem rauf 30—40 m skarð í garðinn niður að sjó- Hnu og skemmdi hann víðar. Hafnarmálastofnunin, sem hefur frá upphafi haft með Afsteypa af höggmyndinni Útilegumanninum eftir Einar Jónsson myndhöggvara er nú komin á sinn stað á eyju á mót- um Eyrarlandsvegar, Hrafna- gilsstrætis og Spítalavegar á Akureyri. Ekkja listamannsins, Anna Jónsson, gaf bænum af- steypuna, en Menningarsjóður bæjarins kostaði uppsetningu höndum forstöðu verksins, hóf þegar viðgerð og fékk til þess tæki og starfsfólk Norð urverks hf. Norðurverk hf. óskaði þegar eftir því, að ef meta ætti skemmdirnar, vrði það gert strax, en því var ekki sinnt. Var svo unnið að viðgerð landmegin við skarð ið þar til í síðustu viku og þá ekki enn komið að þeim skemmdum, sem mest reið á að gera við. Á fimmtudag í síðustu viku óskaði svo vita- og hafnarmáflastjóri eftir að skipaðir yrðu matsmenn til að meta skemmdirnar á garðinum frá því 10. nóv. Og á föstudag hótuðu verka- menn þeir úr Vopnafirði, sem unnu hjá Norðurverki hf. við viðgerðina, setuverk- falli, vegna ógreiddra launa. Þetta verkfall var uð vísu ólöglegt, en stefnan engu að hennar. Afsteypan verður senni lega afhjúpuð um hátíðarnar. Afsteypa af Útilegumannin- um hefur alUengi staðið við Gamla kirkjugarðinn í Reykja- vík, og hafa gárungarnir stund um nefnt hana vísitölufjölskyld una. Það er að sjálfsögðu mein- laust gaman, sem dregur ekki úr því, að Útilegumaðurinn er merkilegt listaverk. síður þann veg, að óvissa skapaðist af því. Munu verka mennirnir sjálfir ekki hafa viljað beita mikilli hörku, — heldur verkalýðsfélagið, og heyrzt hefur, að pólitík búi að baki. — Launagreiðslur höfðu dregizt, vegna þess, að Hafnarmálastofnunin iyrir hönd Vopnafjarðarhrepps skuldaði Norðurverki hf. tæp ar 6 milflj. kr. fyrir byggingu garðsins og að auki greiðslu fyrir viðgerðina, sem af er. Vitað var að þetta fé myndi koma, þótt 6 milljónirnar væru fallnar í gjalddaga, og þá m.a. á föstudaginn, að Norðurverk hf. væri a'5 fá 1% millj. upp í þær og myndi senda uppgjör austur daginn eftir fyrir vinnu við byggingu garðsins. Þrátt fyr ir allt þetta, var verkfalli hótað. En það féll um sjálft Atvinnuleysi tvöfaldaðist í nóvembermánuði, skv. skrán- ingu, en um síðustu mánaða- mót voru 2049 manns á atvinnu ieysisskránni, þar af 1479 í kaupstöðunum og 74 i kauptún um með yfir 1000 íbúa og í öðrum kauptúnum 496. Þrír síðustu mánuðir ársins eru venjulega daufustu atvinnu Nú er orðin fokheld viðbygg- ing við frystihúsið í Vopnafirði, og er stefnt að því að taka hana í notkun í janúar. Með viðbygg ingunni verður unnt að hag- ræða starfsemi liússins veru- lega og auka afköstin um hehn- ing. Nú getur frystihúsið unnið úr 9—10 tonnuni á dag, en eftir stækkunina úr um 18 tonnuni á dag. sig, þar eð ekki hafði verið boðað til þess með löglegum fyrirvara. Málið stendur þá þannig, að Norðurverk hf. á enn inni um 4.4 millj. kr. fyrir oygg- ingu garðsins og verulega upphæð fyrir viðgerðina, vita- og hafnarmálastjóri hefur óskað eftir mati nærri mánuði eftir að skemmdirn- ar urðu á garðinum, en á meðan hafa menn hans gramsað í garðinum, og loks að afstaða verkalýðsfélagsins í Vopnafirði hefur skyndi- lega leiðst út í hörku, a.m.k. í orði, þótt engir hafi vita- skuld meiri hagsmuna að gæta en verkafólk á staðn- um, að gengið verði endan- lega frá hafnargarðinum. Af öllu þessu hefur Norðuiverk hf. nú stöðvað viðgerðina og bíður átekta. mánuðirnir. Millibilsástand rik ir þá víða í útgerð og fiskiðnaði. Og nú hefur verið töluvert um að bátar sigldu með aflann og seldu erlendis, svo og hafa tug- arar eitthvað siglt einnig. Þetta hefur haft lamandi áhrif á land vinnu í sjávarplássunum und- anfarið. Að undanförnu hcfur annar stóru báta Vopnfirðinga, Brett- ingur, verið á togveiðum og afJ- að sæmilcga, en Kristján Val- geir liefur hins vegar verið á síldveiðum. Ætlunin er, að báð ir bátarnir stundi togveitfar, þegar stækkun frystihússins lýk ur. liTLAGINN liNDIR DIJK sennil. afhjúpaður um hátíðarnar 2049 á atvinnu leysisskránni Frystihúsið á Vopnafirði stækkað AFKÖST AUKAST UIVI HELIVIING IMæsta blað kemur út föstudaginn 12. des.

x

Íslendingur - Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.