Íslendingur - Ísafold - 23.01.1971, Side 2
ISLENDÍNGUR-ÍSAFOLD - LAUGARDAGUR 2S. JAN. 1970.
IÞROTTIR
Patrick Russel
Brautryðjandi nýs svigstíls
„Hægindastóllinn" er þessi
nýi stíll Patrick Russels nefnd-
ur, sem hann notar í svigi og
stórsvigi. Aðrir nefna þessa
tækni bakhallatækni. Eitt eru
menn þó sammála um: — að
þessi 24 ára gamli Frakki er
sá, sem mestu valdi hefur náð
á þessari tækni. I geysilegum
bakhalla, sem er því aðeins
mögulegur, að notaðir séu hin
ir nýju, háu skíðaskór, stjórn-
ar hann skíðum sínum með
hnjám og öklum. Allur líkams
þunginn hvílir á skíðunum aft-
anverðum (eins og sjá má á
myndinni). Á hann því auð-
velt með að sveigja skíðin —
hvert sem hann vill.
Russel á einnig auðvelt með
að ná út góðu rennsli og standa
stutt á köntunum. Sjái maður
svigferðir hans í sjónvarpi,
kemur fram, að hann hefur
náð sínu sérstaka lagi. Hann
situr aftar en flestir aðrir. —
Thöni (ft) og Augert (Fr) hafa
annan hátt á, — sérstaklega
Thöni. — Það er eins og hann
sé aldrei nema á öðru sktðinu
í einu (eins og Siglufjarðar-
stíllinn) og situr ekki sérstak-
lega aftarlega, þegar hann
skiptir köntum. Augert er svip
aður.
Þessir þrír, sem hér hafa
verið nefndir, eru beztu svig-
menn sem keppa í dag. Sézt
það bezt á því, að þeir hafa
sigrað í þeim þrem svigkeppn-
um, sem haldnar hafa verið á
þessu ári. Russel í Sesriera (ít),
Augert í Berchtesgaden og
Thöni í Madonna di Campi-
glido (ft).
MOTASKRA S.R. A. 1971
Janúar: Marz: 10. —11. Unglingameistara-
23.-24. Stórhríðarmót. Svig 6.-7. Þorramót á ísafirði. mót Norðurlanda á
allir flokkar. Punktamót. Akureyri.
14. Akureyrarmót. — 17. Togbrautarmót. —
Stórsvig, allir flokk- Svig, allir flokkar. —
Febrúar: ar. A og B flokkar lcarla
13.-14. Hermannsmót. — 27.-28. Akureyrarmðt. — saman. — Opið mót.
Punktamót. — Svig, Allir flokkar. Unglingameistara-
stórsvig og ganga. mót íslands á Húsa-
20.-21. Opið mót í Reykja- vík.
vfk. — Punktamót. Apríl: Norðurlandsmót
27.-28. Febrúarmót. — Svig 4. Uttökumót fyrir svig óákveðið.
og stórsvig, allir fl., sveit S. R. A. Maí:
nema A-fl. karla. - 5.-12. Skíðamót íslands á 29. —30. Skarðsmót á Siglu-
Opið mót. Akureyri. firði. — Opið mðt.
Guttormur þjálf
ar Akureyringa
Loks hefur nú tekizt að ráða
bót á þjálfaravandræðum
knattspyrnuliðs ÍBA. — Ekki
þurfti þó að fara langt til
þeirra hluta, því hinn nýi þjálf
ari er Akureyringum að góðu
kunnur, en það er enginn ann-
ar en Guttormur Ólafsson. —
Hann hefur verið stoð og
stytta Þórs í körfuknattleik síð
an Einar Bollason flutti til
Reykjavíkur, og einnig hefur
hann þjálfað yngri flokkana í
lcnattspyrnu.
Hafa því öll 1. deildar Iiðin
ráðið sér þjálfara, nema Kefl-
víkingar. — fBA mun hefja æf
ingar innan skamms.
Mikil umsvif í Hlíðar-
fjalli í vetur
Áhugi erlendis fyrir skiðaferðum
Eldri keppnismenn hafa átt
í miklum erfiðleikum í vetur
og sjaldan komizt á blað. Lít-
ur út fyrir, að Schranz vinni
ekki Heimsbikarinn í þriðja
sinn.
Úrslit frá Madonna di Camp
iglide, haldið 9. —10. jan. sl.
Svig: sefc.
1. Gustaf Thöni 95.15
2. Jean-Noel Augert 96.20
3. Patrick Russel 96.63
Stórsvig: mín.
1. H. Duvillard 3:35.27
2. P. Russel 3:36.12
3. G. Thöni 3:36.72
Staðan í Heimsbikarnum - stig
1. P. Russel (Fr) 80
2. J-N Augert (Fr) 71
3. H. Duvillard (Fr) 69
Sl. sunnudag var blaðamönn
um, bæjarstjóra og forseta bæj
arstjórnar Akureyrar boðið til
kaffidrykkju í Skíðahótelinu í
Hlíðarfjalli. Þar veittu fvar Sig
mundsson, framkvæmdastjóri
Vetraríþróttamiðstöðvarinnar,
Hermann Sigtryggsson, íþrótta
fulltrúi, og Knútur Otterstedt,
formaður fþróttaráðs Akureyr-
ar, upplýsingar um rekstur
mannvirkjanna í Hlíðarfjalli.
Skíðahótelið tók til starfa
15. janúar sl., en þar fer ekki
fram nein starfsemi yfir sum-
arið að heitið geti. Þar verður
öll venjuleg greiðasala og gist-
ing, auk þess er þar skíða- og
skóleiga og gufubað. Skíðalyft
an er opin alla daga vikunnar
og einnig togbrautin við Skíða-
hótelið, þar sem skíðabrekka
er upplýst á kvöldin.
Skíðaráð Akureyrar hefur
opna togbraut við Stromp um
helgar og þar eru æfingar fyr-
ir skíðamenn á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldum í upp-
lýstri brekku.
Undanfarin ár hefur verið
unnið að því í samvirmu við
ferðaskrifstofur og fleiri aðila
að kynna Akureyri sem skíða-
stað, og leitast við að skipu-
leggja skíðaferðir til Akureyr-
ar frá öðrum stöðum á landinu
og einnig erlendis frá. Þróun
þessi hefur gengið tiltölulega
hægt, sem er að vissu leyii
kostur, meðan verið er að bæta
aðstöðuna í Hlíðarfjalli eftir
fönaum. Síaukinn áhugi virð-
ist vera erlendis fyrir skíða-
ferðum til Akureyrar. Hafa
pantanir verið gerðar til
Ferðaskrifstofu Akureyrar frá
Bandaríkjunum, og eru vænt-
anlegir þaðan a. m. k. fjórir
hópar, 20 — 50 manns í hverj-
um, á þessum vetri.
Þá hafa ýmsir starfshópa? í
Reykjavík fyrir venju að dvelja
í Hlíðarfjalli nokkra daga á
vetri við skíðaiðkanir.
Nýr vegur verður væntan-
lega fullgerður upp í Hlíðar-
fjall innan skamms, og er þar
um mikla samgöngubót að
ræða. Er miðað við, að hann
verðí fær öllum bifreiðum. Eru
þá horfur á, að umferð auki,?t
enn í Hlíðarfjall, og er tilvalið
fyrir foreldra að taka fram
gömlu skíðin og bregða sér í
fjallið með börnum sínum. —
Síðar í vetur verður skíða-
kennsla í sambandi við trimm,
og eru engin skilyrði sett um
kunnáttu á skíðum til að geta
tekið þátt í henni. Brekkur
verða upplýstar á kvöldin, og
því lafhægt að fá sév hreint
loft í lungun, áður en gengið
er til náða. Ferð með skíða-
lyftunni kostar 25 krónur, en
hægt er að kaupa ýmis afslátt-
arkort, sem lækka verðið að
miklum mun.
Framundan eru nú miklar
annir hjá skíðamönnum, mörg
mót verða haldin í Hlíðarf jalli
í vetur, og ber þar hæst Skíða-
mót Islands og Unglingameist-
aramót Norðurlanda, er fram
fara um páskana. Eru öll rúm
í Skíðahótelinu bókuð yfir
þann tíma. Mótaskrá S. R. A.
er birt á öðrum stað á síðunni.
Tveir slcíðamenn frá Alcur-
eyri hafa dvalið erlendis í vet-
ur við skíðaiðkanir, þeir Hall-
dór Matthíasson, sem sðtti
skíðagöngunámskeið i Svíþjóð
og er nýkominn heim, og Þor-
steinn Baldvinsson, sem er við
skíðaiðkanir og vinnu í Sun
Vallev í Bandaríkjunum. Þar
eiga Islendingar hauk í horni,
sem er Magnús Guðmundsson,
golf- og skíðakappi. — Hefur
hann mikil áhrif þar vestra og
kom tveim unglingum að í Sun
Valley í fyrra, og Þorsteini nú
í vetur, en erfitt er að komast
að á bessum þekkta skíðastað.
Þorsteinn er væntanlegur
heim í marz eða apríl.
Ferðir í HHðarfjall annast
Hópferðir sf. Fyrst um sinn
verða ferðir á hverjum degi
kl. 13.30 og á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 17.30 og
19.30. Um helgar eru ferðir
kl. 10 f. h. og ld. 13. — Frek-
ari upplýsingar um ferðir í
fjallið veitir Ólafur Þorbergs-
son, heimasími 12878. Geta
má þess, að skíðabrekkur fvrir
almenning verða troðnar eftir
því sem ástæður leyfa.
Þeim, sem óska nánari upp-
lýsinga um starfsemi Vetrar-
íþróttamiðstöðvarinnar, er
bent á að snúa sér til fram-
kvæmdastjórans, Ivars Sig-
mundssonar, Skíðahótelinu, —
sími 12930.