Íslendingur - Ísafold


Íslendingur - Ísafold - 23.01.1971, Blaðsíða 8

Íslendingur - Ísafold - 23.01.1971, Blaðsíða 8
BM Fylgizt með fréttunum úr strjálbýlinu . . . | Isteitdintfur -ísafoM 1 Laugardagur 23. janúar 1971. | Laxárvirkjun má ekki tef jast SJALFSTÆÐISHUSIÐ Föstudagskvöld: Restaurant. Laugardags- og sunnudagskvöld: Nýtt skemmtiatriði: Þjóðlagatríóið „Lítið eitt“. SJALFSTÆÐISHÚSIÐ, AKUREYRI. - SlMI 12970. FERÐIR TIL SÖLARLANDA FYRIR KR. 6.000.00. (Kanaríeyjar og Mallorca). — Við brottför er aðeins greitt kr. 6.000.00, en eftirstöðvarnar deilast á næstu 10 mánuði. — Ferðir I jan., febr., marz og apríl. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR, - sími 11475. Svo sem hunnugt er, hefur stjórn Landeigendafélags Laxár og Klývatns lýst yfir því, að hún sc ehki til viðrœðu um sættir í Lax- á-deilunni á grundvelli samkomu- lagstillagna sáttasemjaranna og iðnaðarmálaráðuneytisins. Krefst sfjórnin þess, að framkvæmdir við fyrsta áfanga framkvæmda (rennsl isvirkjun) séu stöðvaðar, og hefur raunar alltaf gert því óbilgjarn- a-i nýjar kröfur sem meira hefur verið uppfyllt af fyrri óskum hennar. Stjórn landeigendafélagsins k afðist á sínum tíma lögbanns gogn virkjunarframkvæmdunum sjálfum, en var synjað um það mcð fógetaúrskurði, og hæstirétt- u- felldi um málið fullnaðarúr- sk.urð í desember siðastliðnum. I>ar var meginkröfum Félags land- eigendanna um tafarlausar stöðv- anir framkvæmda hrundið, en lé- iaginu hins vegar dæmt rétt að leggja lögbann við því, að breytt yrði rennsli Laxár, vatnsbotni hennar, straumstefnu eða vatns- magni, að fenginni tryggingu, er fógetadómur mæti gilda. I forsend um hæstaréttardómsins kom fram, að dómurinn taldi orkumálaráðu- neytið ekki hafa á sinum tíma til- kynnt hlutaðeigandi, svo viðhiít- andi væri, hvað ti! stæði, áður en það veitti sljórn Laxárvirkjunar heimildir til virkjunarframkvæmd- anna. Fógetadómur í lögbannsmálinu liggur nú fyrir, og eru úrskurðar- orð hans á þá leið, að áður en umbeðið lögbann verði á lagt, skuli gerðarbeiðandi fyrir hönd Landeigendafélags Laxár og Mý- vatns afhenda fógetadóminum tryggingu að fjárhæð 135 milljón- ir króna, er sé í formi peninga eða bankatryggingar. Því hefur verið lýst yfir af formanni Land- cigendafélagsins, að dómnum verði áfrýjað. Hver sem úrslit verða í því máli, eru orkumál Laxársvæðisins nú í því horfi, að úr því sem kom- ið er, ættu menn að sættast á að vinna kappsamlega að lausn virkj unardeiiunnar á grundvelli til- lagna sáttascmjara. en þær fela í scr tvo fyrstu áfanga hinnar upp- haflcgu Gljúfurversvirkjunar. — Tvær hreppsnefndir í Þingeyjar- sýslu, sem þetta mál hafa fengið til meðferðar, hafa þegar tekið jákvæða afstöðu, þ. e. í Reykja- hverfi og Aðaldal, en hreppsnefnd irnar í Rcykjadal og Mývatnssveit munu hafa hliðrað sér hjá að gera ályktun út af sáttatillögun- um. Viðbótarvirkjun Laxár er hin eina raunhæfa lausn vandans, aðr að virkjunarframkvæmdir yrðu nannað hvort alltof dýrar eða þeirra yrði allt of langt að biða, nema hvort tveggja sé, eins og oft hefur verið sýnt fram á. Og ekki una neytendur því, að fram- leitt sé handa þeim rándýrt raf- magn mcð rússneskri brennslu- olíu. Hér er ekki um náttúruvernd arsjónarmið að ræða, heldur hags Framhald á bls. 3. 1 I Nýr þjóðvegur lagður oð flugvelli? i I B 1 I I ætlunina á fundi Sjálfstæðisfélaga Samkvæmt viðtali við Stef- án Stefánsson, bæjarverkfræð- ing á Akureyri, standa vonir til að hafizt verði handa um lagn- ingu nýs vegar frá Hafnarstræti 20 og fram að flugvelli. Samkv. áætlun á hann að liggja austan við núverandi veg, og yrði því alveg um nýja vegarlagningu að ræða. Þá standa einnig vonir til að ný brú verði byggð á Glerá á sumri komanda. Samkvæmt lögum fá sveitar- félög vissa fjárhæð af benzínfé til að standa undir gerð og við- haldi þjóðvega í þeirra umdæmi. Fer upphæðin eftir íbúafjölda. Akureyrarbær er hins vegar bú- inn að leggja fram mun meira fé en lög fyrirskipa, og því er rætt um að flytja þessa vegar- lagningu af áætlun um þjóðvegi í þéttbýli inn á vegaáætlun. — Verður endanleg ákvörðun tek- in um þetta innan skamms. Ekki liggur fyrir endanleg kostnaðaráætlun um þessa veg- arlagningu. Likur benda til, að ný brú verði byggð á Glerá i sumar, og er talið að hún muni kosta um 8 milljónir króna. Fjörugar umræður um fjárhagsá- Sl. mánudagskvöld héldu Sjálfstæðisfélögin á Akureyri fund um fjárhagsáætlun bæjar- ins fyrir árið 1971, en hún var lögð fram á fundi bæjarstjórnar daginn eftir. Framsögumenn voru bæjarfulltrúarnir Jón G. Sólnes og Gísli Jónsson, og Stef- án Stefánsson, bæjarverkfræð- ingur. Fundarstjóri var Maríus Helgason, formaður fulltrúaráðs ins. JÓN G. SÓLNES gaf yfirlit um hina ýmsu liði fjárhagsáætl- unarinnar. Hann kvað því ekki að leyna, að með þessari áætlun væri boginn spenntur til hins ýtrasta, þegar útsvör væru lrom in upp í 125 millj. kr., en sam- kvæmt athugunum, sem starfs- menn bæjarins hafa framkvæmt hjá ýmsum fyrirtækjum í bæn- um. væri bersýnilega um mikla tekjuaukningu að ræða hjá laun þegum. Flins vegar væri ekki um að ræða hækkaða álagningu á tekjur manna í prósentum, enda væri slíkt ekki heimilt samkv. lögunum um verðstöðv- un. Það væri stefna Sjálfstæðis- manna nú, eins og jafnan áður, að berjast á móti álagningu á útsvarsstigann, enda væri ekki um álagningu að ræða nú, en hins vegar væri heldur ekki. gef- inn afsláttur. Hæsti liðurinn gjaldamegin væru félagsmálin, en þar væri ekki við heima- menn að sakast, því þessi liður væri að mestu bundinn lögum, þ. e. a. s. almannatryggingar. GÍSLI JÓNSSON lagði á- herzlu á það í framsöguræðu sinni, að nú væri meira fé varið til verklegra framkvæmda en nokkru sinni áður, og væri það í fullu samræmi við almennar óskir borgaranna. Hækkar lið- urinn gatnagerð, skipulag og byggingareftirlit um liðlega 51°/o frá síðasta ári. Einnig drap hann á skólamál, en nú eru veittar 8.7 millj. til byggingu skóla í Glerárhverfi, og einnig vakti hann athygli á því, að fjárhags- áætiunin gerir ráð fyrir hálfrar milljónar króna framlagi til byggingar dagheimilis, þá vænt- anlega á Brekkunni. STEFÁN STEFÁNSSON ræddi ýmis atr*-)i í sambandi við íþróttamál og heilbrigðisinál og fagnaði hann sérstaklega 5 millj ón króna framlagi til viðbygg- ingar sjúkrahússins. Nokkurt fé hefur safnast í fyrirhugaða bygg inpv með framlögum frá bæ og ríki. Stöðugt er unnið að athug- unum í sambandi við þá við- byggingu, en Stefán lagði á- herzlu á, að allan undirbúning þyrfti að vanda, áður en fram- kvæmdir hæfust. Standa vonir til, að það mál taki skýra stefnu á næstunni. Að loknum framsöguræðum voru almennar umræður og tóku margir fundarmanna til máls og komu með ýmsar at- hugasemdir og ábendingar. Fyrst tóku til máls bæjarfull- trúarnir Ingibjörg Magnúsdótlir og Lárus Jónsson, en auk þeirra töluðu eftirtaldir: Jón Rögn- valdsson, garðyrkjumaður, \'il- helm Þorsteinsson, forstjóri, Gunnlaugur Búi Sveinsson, brunavörður, Knútur Karlsson, forstjóri, Sigurður J. Sigurðsson, verzlunarmaður, Guðmundur Hallgrimsson, lyfjafræðingur, Maríus Helgason, umdæmis- stjóri, Árni Árnason, kaupmað- ur, Haraldur Hansen, nemi, og Bjarni Bjarnason, kaupmaður. Að lokum svöruðu fvamsögu- menn fyrirspurnum. Fundurinn var vel sóttur og sýndu fundargestir fjárhagsá- ætluninni mikinn áhuga, eins og fjöldi þeirra, sem til máis tóku, sýnir bezt. Var bersýni- legt, að menn kunnu því vel að fá upplýsingar um fjárhagsáætl- unina um leið og hún var full- gerð. ... kaupið „íslending-ísafold”, sími 21500

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.