Íslendingur - Ísafold


Íslendingur - Ísafold - 13.03.1971, Blaðsíða 2

Íslendingur - Ísafold - 13.03.1971, Blaðsíða 2
■ ÍSLENÐINGUR-ÍSAFOLÐ - LAUGARDAGUR 13. MARZ 1971 Jakob Ó. Pétursson: II. bréf til Kristjáns á Björk Ég þakka bréfið þitt frá 23. febrúar sl. og lof það, sem þú berð á mig, þðtt „oflofið“ sé vafasamt eins og þú kannast við af vísu Steingríms: Með of lofi teygður á eyrum var hann, o. s. frv. En það kemur ekki orkumálum Norðlendinga við, né heldur, hvort við höfum frá æskuárum verið Sjálfstæðis- menn eða eitthvað annað. Hafi íslendingur-ísafold birt meira af sjónarmiðum almennings á Norðausturlandi en landeig- enda við Laxá og Mývatn í þessum málum, þá held ég hall ist þar ekki á nema sem svarar því litla, er ég hef lagt þar til mála á eigin ábyrgð en hvorki blaðs eða flokks. Þótt flokks- maður sé, tel ég minna máii skipta, hvort einhver flokkur fær 2 — 3 atkvæðum meira eða minna í kosningum en það, hvort hálfur landsfjórðungur getur séð öllum sem þar búa og starfa fyrir sæmilegum lífs- skilyrðum, atvinnuöryggi og góðri lífsafkomu um næstu framtíð. Og ekki þurfa sér- hyggjumenn í héraði þínu að kvarta undan stuðningi mál- gagna, eða sjáið þið ekki við og við Mánudagsblaðið og Ný vikutíðindi? Ég er ekki einn um þá skoð un ,að við eigum að nýta vatns orkuna til að lýsa okkur, sjóða matinn okkar, knýja vélar okk ar og hita húsin okkar og losna þannig við diesel-stöðvar og olíukyndingar húsa og þar með mengunarhættu í lofti og vötn um. En til þess þurfum við að leita sem ódýrastrar RAF- orku, svo að fólkið telji sér hag að skiptunum. Og með Laxárvirkjun III yrði orlcan ó- dýrari en frá öllum þeim virkj- unum í öðrum landshlutum, sem ,,veiðiréttareigendur“ eru að benda á. Og mér finnst lít- ið samræmi í því að fjasa um mengunarhættuna og berjast á sama tíma gegn því, að úr henni sé dregið eða hún gerð að engu. Yrði sú náttúruvernd þing- eyskari en Laxárvirkjun III að virkja Jökulsá á Fjöllum við Dettifoss eða leiða hana ausi- ur í Fljótsdal? „Þó af þínum skalla / þessi dynji sjár / finnst mér meir, ef falla / fáein ungbarnstár," — sagði Matthías, og verði Jökuls á flutt austur munu engin „geysiföll“ falla af „hengil- bergi“ þess konungs íslenzkra fossa, heldur í mesta lagi nokk ur „ungbarnstár". Og án ein- hverrar röskunar á jarðvegi verður stórvirkjun við Detti- foss aldrei fram komið. Eða munduð þið Mið-Þing- eyingar una betur virkjun Goðafoss, sem stundum hefur borið á góma, þessu náttúru- undri og fornsögulega minn- ingastað, sem flestum útlend- ingum, er ykkur neimsækja vestan yfir Vaðlaheiði, verður fyrst staðsýnt á, — heldur en að stækka Laxárvirkjun, þótt nokkrir hektarar af landi, mik ið til ógrónu, fari undir vatn, er'tekið yrði til silungsræktar? Það yrði þó aldrei nema smá- munir miðað við það Iand í Stíflu og Fljótum við Skeið- fossvirkjun, og heyrðist þá ekki slíkt Ramakvein, er þið hafið nú rekið upp vegna Lax- árvirkjunar III. Eftir því sem málin hafa skýrzt betur í seinni tíð er nú sýnilegt, að „náttúruverndar“- hjalið í þessu sambandi er að- eins kápa, sem nokkrir veiði- réttareigendur við Laxá hafa brugðið yfir sig og kallað á múgæsingu heima og heiman með þessari fallegu upphróp- un, svo að ýmis gamalmenni af þingeyskum uppruna, nú sunnlenzk, hafa tekið undir við gróðahyggjuna gegn hags- munum alls almennings frá Eyjafirði tii Langaness með langlokuskrifum í blöð um „náttúruvernd“. Þér ætti að vera kunnugt um, að þegar verið var að koma upp iðjuveri í þinni eig- in sveit til að efla atvinnulif þar og hagsmuni bysgðakjarn- ans í Suður-Þingeyjarsýslu, voru náttúruverndar-sjónar- miðin svo miki’s ráðandi, að ekki var horft í milljónir í stofnkostnaði til þess að sem minnst röskun yrði á hinni fögru náttúru við Mvvatn. Og svo ert þú að benda á Bjarn- arflag og gufuafiið þar. Mér er sem ég sæi ykkur, æstustu and virkjunarmennina við Mývatn, ef menn frá orkumálastofnun færu að snudda þar með mæli tæki og aðrar tilfæringar. Er ekki Bjarnarflag ykkur EIG- ENDUM öllu helgara en nokkr ir hraunhryggir neðst í Laxár- dal í eign ríkisins? Það yrði of langt mál að svara öllum spurningum þín- um lið fyrir lið, og því aðeins stiklað hér á því ,er mestu skiptir. Hví virkið þið ekki eyfirzku árnar? spyr þú. Glerá var virkjuð á sínum tíma og nægði aðeins fyrir Akureyri rúman áratug. Eyjafjarðará, straumlítil og vatnslítil berg- vatnsá, gæti aldrei séð fyrir mikilli né ódýrri raforku. Með virkjun Laxár í Aðaldal í á- föngum var unnt að sjá hálf- um landsfjóröungi fyrir nauð- synlegustu raforku. Með und- irbúningi að III. áfanga ærast veiðiréttareigendur við Laxá og draga ykkur Mývetninga með, og síðan aldrað fólk í fjörrum landshiutum, sem að- eins lesa blekkingar ykkar í blöðum, sem þið þykist ekki fá húsaskjól i! Blessað gamla fólkið í fjarlægðinni, sem vill veita yklcur )ið til „náttúru- verndar", heldur að með Lax- árvirkjun III eigi að sökkva Mývatnssveit, Laxárdal og þurrka út tekjur veiðiréttar- eigenda í Aðaldal. Það munar svo sem um minna. Ég hætti svo að sinni. Kristj án minn, þótt margt sé ósagt. En þið ættuð að hælta að blekkja hrekklaust fólk syðra með GLJÚFURVERSVIRKJ- UNAR-grýlunni, — hætta að leika „Slcrepp seiðkarl'1 úr sjónvarpinu og horfa a m. k. með öðru auganu til framtíö- arinnar og hagsmuna FJÖLD- ANS á austanverðu Norður- landi, en ekki nokkurn ein- stakra landeigenda. Kveð svo með beztu óskum. 190 íbúðir í byggingu á Akureyri um sl. áramót Eftirfarandi yfirlit um bygg ingaframkvæmdir á Akureyri hefur blaðinu borizt frá bygg- ingafulltrúa. — Tölur í sviga eru sambærilegar tölur frá ár- inu 1969. fbúðarhús: Hafin var bygging 27 (13) í búðarhúsa með 97 (34) íbúð- um á árinu. Skráð voru full- gerð 28 (42) íbúðarhús með 53 (98) íbúðum. Fokheld voru um sl. áramót 44 hús (45) með 113 (69) íbúðum og 15 (11) íbúðarhús með 23 (18) íbúð- um voru skemmra á veg kom- in. Á árinu voru því 87 (98) íbúðarhús með 189 (184) i- búðum í byggingu. Aðrar byggingar: Af öðrum byggingum, sem skráðar voru fullgerðar á ár- inu, má t. d. nefna: Loðsúíun Iðunnar, hús Almennu toll- vörugeymslunnar hf., Hjalteyr argötu 10, Sólborg, vistheimili vangefinna, 2. áfangi Elliheiin ilis Akureyrar, vörugeymslu B.T.B., Glerárgötu 32, skipa- smíðaverkstæði Gunnlaugs og Trausta, Óseyri 18, auk fjölda bílgeymsla. Þá voru fullgetðar 12 meiriháttar breytingar og vðibætur við ýmis hús, m. a. við frystihús Ú.A. hf., og verk- smiðjuhús Gefjunar og lðunn- ar. Af byggingum, sem fokheld- ar voru um sl. áramót, má m. a. nefna: Afgreiðslu- og við- gerðarhús Norðurflugs á Ak- ureyrarflugvelli, verkstæðis- og skrifstofuhús Vegagerðar ríkisins, Miðhúsavegi i, verzl- unar og skrifstofuhús Oliu- verzlunar Islands við Tryggva braut, trésmíðaverkstæði Reyn is sf., Furuvöllum 1, og sem- entsgeymslu Malar og sands hf. Upplýsingabæklingur um landbúnaðarvörur og vélar Glóbus hf. hefur nú í fjórða sinn gefið út upplýsingabækl- ing yfir búvörur og landbún- aðarvélar, sem fyrirtækið hef- ur á boðstólum. Glóbus gaf fyrst út slíkan bækling á árinu 1964, síðan árin 1966 og 1968 og svo þann, sem nú er kom- inn út. Rit þetta inniheldur nauð- synlegustu upplýsingar um öll þau þýðingarmestu landbúnað artæki, sem notuð eru hér á landi, ásamt myndum af þeim. Fyrirtækið gefur jafnframt út verðlista yfir öll tækin. Hafa allflestum bændum á landinu verið sendir þessir bæklingar, en þeir bændur, sem ekki hafa fengið þá, geta haft samband við fyrirtækið, sem þá sendir þeim bæklinginn um hæl. Glóbus hf. er eina fyrirtæk- ið hér á landi, sem gefur út svo yfirgripsmikið rit um vör- ur þær og vélar, sem landbún- aðurinn þarfnast. Landbúnað- arvélar kosta margar hverjar mjög mikið, og því er mikill hagur að því fyrir bændur að geta haft allar upplýsingar um margvísleg tælci á einum stað. Fulltrúafundur Sam- ábyrgðar Islands með bátaábyrgðarfélögunum Nýlega boðaði Samábyrgð íslands á fiskiskipum til fund ar með fulltrúum frá bátaá- byrgðarfélögum þeim, sem end urtryggja hjá Samábyrgðinni, en slíkir fundir eru haldnir eigi sjaldnar en þriðja hvert ár . Fundurinn stóð yfir dagana 11 .og í 2. febrúar sl. og sátu hann, auk stjórnar og forstjóra Samábyrgðarinnar, fulltrúar 8 bátaábyrgðarfélaga víðs vegar af landinu, en fulltrúar Skipa- tryggingar Austfjarða gátu þó ekki mætt vegna samgönguerf iðleika. Stjórnarformaður Samá- byrgðarinnar, Matthías Bjarna son alþingismaður, flutti skýrslu stjórnarinnar, en auk hans fluttu eftirtaldir menn erindi á fundinum: Jón Erlingur Þorláksson, tryggingafræðingur, ræddi um Trvggingasjóð fiskiskipa. K. Guðmundur Guðmunds- son, tryggingafræðingur, ræddi um hringtryggingar. Páll Sigurðsson, forstjóri Samábyrgðarinnar, ræddi um starfsemi Samábyrgðarinnar og bátaábyrgðarfélaganna. Á fundinum voru rædd ýmis málefni varðandi vátryggingar starfsemi bátaábyrgðarfelag- anna og Samábyrgðarinnar og þar á meðal fyrirhuguð stofn- un hringtrygginga innan Sam- ábyrgðarinnar og bátaábyrgð- arfélaganna í þeirri mvnd að bátaábyrgðarfélögin takí að sér endurtryggingar á áh^ltum hvers annars, þannig að á- hættudreifinsin verði ö" inn- anlands og þá fyrst os frrnnst innan Samábyrgðarinror os bátaábyrgðarfc'avnpn^. nú eru áhættudreifinsar 'nnan- lands 87.45% os sr'-'nais 12.55%.

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.