Íslendingur - Ísafold - 13.03.1971, Blaðsíða 7
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - LAUGARDAGUR 13. MARZ 1971 7
r og aðferðir til
út um land
— Er inikil vinna balc við skýrslugerðir sein þessar?
— Það er geysimismunandi, og fer allt eftir eðli og upp-
byggingu fyrirtækisins. Sem dæmi má nefna spónvreksmiðjuna
á Ólafsfirði. Sú skýrslugerð var mjög vandasöm og tímafrek,
þar sem gagnasöfnunin var miklum erfiðleikum bundin.
— Á hvaða hátt getur hið opinbera komið til aðstoðar?
— Efling iðnaðar er viðurkennd þjóðarnauðsyn. Flest sveit-
arfélög og einstaklingar hafa úr tiltölulega litlu áhættufé að
spila. Við teljum eðlilegt, að hið opinbera komi til aðstoðar til
dæmis með því að veita könnunarfélögunum hæfilegt lán til at-
hugana, sem yrði óafturkræft, ef athugun leiðir í ljós, að um
óarðbæran rekstur er að ræða.
— Er hægt að framleiða hagstæðar iðnaðarhuginyndir á
færibandi?
— Það er hægt að vinna mikið með skipulegri leit, en um
færibandaframleiðslu er varla að ræða. Úrvinnsla hugmyndanna
skiptir eklci höfuðmáli. Oft er hægt að hnýta saman fleiri en
Æyndin er úr trésmíðaverkstæði í Ölafsfirði. — Ljósm. B. Sv.
eina hugmynd, þannig að úr verði ein góð. Má benda á verk-
smiðjur, sem vinna jöfnum höndum að niðursuðu og niðurlagn-
ingu sem dæmi.
— Hvaða atriði eru þýðingarinest við gerð iðnaðaráætlana?
— Að blekkja ekki sjálfan sig og aðra. Ofmeta ekki né
vanmeta þau atriði, er máii skipta. Við áætlanagerð vill mönn-
um oft gleymast að reikna með mikilvægum liðum, svo sem
rekstrarfjárþörf og kostnaði vegna sölumennsku og auglýsinga,
svo eitthvað sé nefnt. Einnig að gera sér grein fyrir markaðnum.
— Koma ekki upp mörg óvænt atvik í kringum svona starf-
semi?
— Jú, svo sannarlega. Sárgrætilegast hefur okkur þótt að
missa af 15 ára sölusamningi við mjög stóran dreifingaraðila á
skemmtisnekkjum úr áli í Bandaríkjunum, vegna skorts á góð-
um álsuðumönnum. Ársveltan var áætluð að vaxa úr kr. 50
millj. fyrsta árið upp í a. m. k. 400 millj. kr. fimmta árið. Smíði
innréttinga er stór liður í þessari framleiðslu og stöndum við
Bandaríkjamönnum fyllilega á sporði í þeirri grein. Þessi samn-
ingur stendur sennilega enn til boða, ef við leggjum í kostnað
við að þjálfa, þó ekki væri nema 10 — 20 manns, í þessari iðn.
í þessu viðtali við Islending-ísafold lýsir Guðmundur
Óskarsson, verkfræðingur, hvernig fyrirtæki hans,
Verkfræðiþjónusta Guðmundar Óskarssonar, vinnur úr
nýjum hugmyndum um arðbær atvinnufyrirtæki, sem
unnt yrði að stofna og reka hér á landi. Hann greinir
frá, hvernig hið opinbera, bæði sveitarfélög, samtök
þeirra óg ríkisvaldið geta hagnýtt þessar hugmyndir í
samvinnu við einkaaðila og hvatt til eflingar þeirra fyr-
irtækja út um byggðir Iandsins, sem þar geta gefið
aukna og arðbæra atvinnu til frambúðar.
VÍSNABÁLKUR
Eftir lestur greinar Páls H. Jóns-
sonar í ísl.-ísafold 5. marz unr Lax
árvirkjunarmál:
Þetta er orSið andans span
eins og þjóð má vita.
Sýslu þinnar Ku-kux-klan
koma út á þér svita,
Bráðum liða býsnin lijá,
bezt er fátt að muna.
Blása flestir óspart á
Árness-mafíuna.
Peli.
Þegar Miðkvíslarhaftið var
sprengt:
Vatnsins botn er væður nú,
veiðihugar farnir.
Flestir hafa bætt sín bú
blessaðir „kvíslingarnir“.
N. N.
Maður leitaði láns til frattt-
kvæmda:
Á íhaldinu er orðinn leiður,
á því er hvorki roð né slrán.
Komist rnaður í Krala-hreiður.
kannske er unnt að ná í lán.
Sarni.
Maður var boðinn í smá-„geim“,
en var ekki upp lokið fyrir honum,
þótt svo fast væri barið, að fleiður
komu á hnúa:
— Eruð þið með mörg fyrirtæki í athugun um þessar mund-
ir?
— Fyrir utan spónverksmiðjuna á Ólafsfirði er athugun á
lagtréverksmiðju á sama stað á lokastigi. Þá höfum við gert frum-
kannanir á glerílátaverksmiðju, glerrúðuverksmiðju, asbestverk-
stniðju, soyabaunaverksmiðju, teppafiltverksmiðju, sögunar-
myllu, plastverksmiðju, vindlaverksmiðju, vindlingaverksmiðju,
prjónaverksmiðju, niðurlagningarverksmiðju, svo eitthvað sé
nefnt. Auk þess höfunr við gert kannanir á fyrirtækjum, sem við
höfum síðan álitið lélegan rekstrargrundvöll fyrir og því lagt til
hliðar.
— Hvar álítið þið möguleikana stærsta í dag?
— Tvímælalaust í byggingariðnaði og sjávarútvegi. Geysi-
leguin fjármunum er árlega ráðstafað í mótauppslátt svo dæmi
sé tekið. Notkun á hvers konar plötunr í byggingariðnaði hefur
aukist gífurlega. Við hljótum að leita að nýjurn innlendum efn-
um þarna og um margt er að velja. Um þetta og iðnað almennt í
landinu má segja, að rannsóknarstarfsemi, sem byggizt á íslenzk-
um aðstæðum, verður að aukast.
Við sjávarsíðuna hlýtur fullvinnsla sjávarafurða að vera núm-
er eitt á dagskrá.
Þá virðist lyfjaiðnaður mjög álitlegur. Einnig alls lconar iðn-
aður miðaður við ferðamenn. Keramikiðnaður er í vexti, en
einnig kæmi til greina að athuga möguleika á lítilli glerverk-
smiðju til framleiðslu á skrautmunum með séríslenzku sniði.
— Hvað um útflutningsiðnað og sölumennsku?
— Sölumennska er mjög bágborin. Við þurfum meðal ann-
ars að fá heildsölunum í hendur útflutningsfrjálsræði. Þar höf-
um við rétta vinnukraftinn til þeirra hluta. Sölumennska er
FJÁRFESTING, eins og verksmiðjuvélar o. þ. h. Kröfur urn
þekkingu í sölumálum, markaðsöflun o. fl. eru mjög ört vaxandi
og við erurn sannast sagna að verða mjög aftarlega á merinni
í þessunr efnurn. Útflutningsiðnaður er nánast óhugsandi nema
sölumennslcan sé í lagi. Við verðum að líta réttum augum á
þarfir hins erlenda neytenda, jafnvel þótt oklcur virðist þær
næsta hjákátlegar. Hinn erlendi neytandi kaupir slagorðin, aug-
lýsingarnar, litinn á matvörunni, umbúðirnar, innihaldið virðist
oft skipta minna máli. Skipulegar rannsóknir á ofangreindum
atriðum kosta geysifé, sem getur orðið margfalt það, sem beinn
stofnkostnaður framleiðslufyrirtækjanna nemur. Þessi fjárfesting
er því ÞYNGST á metunum í fjölmörgum tilvikum, á hinum
svokölluðu þróuðu erlendu mörkuðum. Við eigum að framleiða
það, sem kaupandinn vill kaupa en ekki fyrst og fremst það, sein
við viljum selja.
Framhald á bls. 10.
Kom ég í boð og drap á dyr,
dauft var undir tekið.
Hendin öll og hnúarnir
hafa sig vel á rekið.
Pell.
Hvcr á mýkri faðnj á fold,
fegurri brjóst en Lauga?
Rosalega rís mér hold,
renni ég þangað auga.
Sami.
Jóhannes Kjarval iistmálari hef-
ur gefið út nokkrar ljóðabækur. —
Hér eru aðeins tvær vísur af mörg-
um:
Sígur rökkur af syfjustráum —
sendist fákur uin veg —
bæirnir sjást með burstum háum,
nú brosir landið og ég.
Hátt við sólar æsku átt
elds hjá Ijósastjökum,
geislamóðir gengur hátt
gulls á fjallabökum.
Orðinn of feitur:
Eg vil skunda á þinn fund
unga hrundin fríða,
hjá þér blunda bjarta stund,
burtu pundin niða.
Peli.
Vanskil
EF ICAUPENDUR
FÁ EKKI BLAÐIÐ
MEÐ SKILUM,
ERU ÞEIR VINSAM-
LEGAST BEÐNIR AÐ
LÁTA AFGREIÐSLUNA
VITA.
SÍMINN ER 2-15-00. ^
-ísnfoU