Íslendingur - Ísafold - 13.03.1971, Blaðsíða 8
8 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - LAUGARDAGUR 13. MARZ 1971
EEdborgin
sflðhæst á
lelfmiSMii
Loðnuverlíðin stendur nú
sem hæst, og hefur gífurlegur
afli borizt á Iand í verstöðv-
unum sunnanlands.
Aflahæsta skipið er Eldborg
!n frá Hafnarfirði, sem var bú
in að fá yfir 5 þúsund lestir í
vikubyrjun.
Skipið hefur verið einstak-
lega gott aflaskip allt frá því
er það h'ióp af stokkunum hjá
Slippstöðinni hf. á Akureyri,
og í alla staði reynzt mjög vcí.
9
Framhald af bls. 12.
tekningu ósanninda í Degi og
AM, að stjórn Atvinnujöfnun-
arsjóðs afgreiðir aldrei mál
öðru vísi en samhljóða. Ingv-
ar Gíslason og Emil Jónsson
bera því fulla ábyrgð til jafns
við Magnús jónsson á stöðv-
un Valbjarkar, sé sú lygi sönn,
sem þessi blöð halda æ ofan í
æ fram. Hið sanna í málinu
er þó, að þessir menn ásamt
Magnúsi Jónssyni hafa reynt
að koma í veg fyrir það, sem
þeim er borið á brýn að hafa
gert.
• VINSTRI VIÐRÆÐUR
í ýtarlegri grein um svo-
nefndar „vinstri viðræður“,
sem Styrmir Gunnarsson ritar
I síðasta hefti tímarits Sam-
bands ungra Sjálfstæðis-
manna, Stefni, segir svo um
viðræður Frjálslyndra og
vinstri manna við unga Fram-
sóknarmenn: „Samband ungra
Framsóknarmanna er skipu-
laga séð hluti af Framsóknar-
flokknum og það gefur nokkra
innsýn í ástandið í þeim flokki,
að hluti hans skuli með þess-
um hætti taka upp viðræður
við annan stjórnmálaflokk.
Þátttaka SUF í þessum við-
ræðum hefur að vonum vald-
ið nokkrum áhyggjum meðal
forystumanna Framsóknar-
flokksins. Tilboð um þátttöku
í viðræðunum kom frá SFV,
en margt bendir til, að frum-
kvæði að þeim hafi átt tveir
forystumanna ungra Framsókn
armanna, þeir Baldur Óskars-
son og Ölafur Ragnar Gríms-
son. Þeir hafa á undanförnum
árum gert ákveðna tilraun til
þess að komast til áhrifa í
Framsóknarflokknum og gerðu
sér um skeið góðar vonir um
verulegan árangur. Einn liður
í þessum tilraunum þeirra fé-
laga var að tryggja Ölafi R.
Grímssyni a. m. k. 2. sæti á
framboðslista Framsóknar-
flokksins í Reykjaneskjör-
dæmi, ef ekki það fyrsVi. Þessi
tilraun mistókst með ijllu.
Hugsanlegt er, að með við-
ræðum SFV og SUF hafi átt
að skapa Ólafi Ragnari Gríms
syni stöðu til þess að ganga til
samstarfs við SFV í þingkosn-
ingunum í vor, t. d. sem efsti
maður á lista þeirra í Reykja-
neskjördæmi eða Vestfjarða-
kjördæmi. Gagnvart ungum
Framsóknarmönnum hafa þeir
hins vegar túlkað tilgang við-
ræðnanna á þann veg, að þær
séu nauðsynlegar til þess að
koma í veg fyrir, að SFV verði
þriðja hjólið undir vagni nú-
verandi ríkisstjórnar að kosn-
ingum loknum, ef núverandi
stjórnarflokkar missa meiri-
hlutann." — Að Iokum segir
Styrmir: „Hér skal engu um
það spáð, hvort Ó. R. Gríms-
son og einhverjir aðrir ungir
Framsóknarmenn, sem verið
hafa í vinstri armi Framsókn-
arflokksins, hafa kjark til þess
að taka stökkið yfir í herbúðir
SFV. Geri þeir það og reynist
það rétt, að Kristján Thorla-
cius og ýmsir óánægðir stuðn-
ingsmenn hans styðji Alþýðu-
bandalagið í kosningunum í
vor, má með nokkrum sanni
segja, að Framsóknarflokkur-
inn verði mun samstarfshæfari
í ríkisstjórn en hann er nú.“
Leiðarinn —
Framh. af bls. 12.
Á næstu árum er brýn þörf á
stórátökum í atvinnumálum þjóð-
arinnar. Því þarf ekki einungis
að hverfa frá boðum og bönnum
til aukins frjálsræðis, beldur þarf
að auka um allan helming opin-
bera starfsemi, sem ieiðbeinir og
livetur einkaaðila til stóraukinna
atvinnuumsvifa.
Topaz —
Áskriftar-
síminn er
21500
Framhald af bls. 12.
maðurinn fyrst og fremst að
vera heiðarlegur. Það æxlast þó
þannig til, að Topaz verður að
yfirgefa starfið sökum heiðar-
leika og einfeldni, og fer þá
leikurinn að æsast.
Þetta leikrit var sýnt í Þjóö-
leikhúsinu fyrir 19 árurn og
naut þá mikilla vinsælda, enda
er þetta afburða skemmtilegt
verk á köflum.
• VIÐHORFIN I NORÐ-
URLANDSICJÖRDÆMI
VESTRA
! forystugrein Norðanfara,
málgagns Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
vestra, segir svo meðal ann-
ars um stöðuna í upphafi
kosningabaráttunnar í því
kjördæmi:
Kosningabaráttan hér í
kjördæminu er nú að hefj-
ast og Sjálfstæðismenn hyggj
ast berjast til sigurs. Tak-
markið er að fá þrjá menn
kjördæmakosna, þannig að
Siálfstæðisflokkurinn verði
sterkasta aflið í þessu kjör-
dæmi. Ljóst er, að mikið átak
þarf til að ná þessu marki,
en þó er margt, sem bendir
til þess, að slíkan sigur sé
einmitt nú hægt að viona.
í síðustu kosningum, 1967,
munaði að vísu 300 atkvæð-
um á Framsóknarflokknum
og Sjálfstæðisflokknum. AI-
þýðuflokkurinn fékk þá mun
meira fylgi en við var búizt.
Ástæðurnar til þess voru
margar. 1 fyrsta lagi voru þá
tveir nýir menn í framboði
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en
ætíð tekur nokkurn tíma fyr-
ir þá, sem í framboð fara,
að vinna sér fylgi. í öðru
lagi naut Jón Þorsteinsson
persónufylgis og trausts, en
hann fer nú ckki í framboð,
og Alþýðuflokkurinn hefur
átt í erfiðleikum að finna
frambjóðanda. ! þriðja lagi
tókst á síðustu dögunum fyr-
ir kosningar að sannfæra all-
marga um það, að Jón Þor-
steinsson væri líklegastur til
að fella Björn Pálssou, og
talsvert af atkvæðum stjórn-
arsinna féll á lista Alþýðu-
flokksins, en hefðu verið
greidd Sjálfstæðisflokknum,
ef líkur hefðu verið taldar
á því, að þriðji maður hans
gæti náð kosningu. Nú er úti
lokað með öllu, að Alþýðu-
flokksmaður geti fellt þriðja
mann Framsóknarflokksins.
Ætti því að mega gera ráð
fyrir, að atkvæði þau, sem
hér um ræðir, falli nú á lista
Sjálfstæðisflokksins. Er ekki
óhófleg bjartsýni að ætla þau
eitthvað á annað hundrað,
og er þá munurinn orðinn
innan við 200 atkvæði eða
minna en 100 atkvæði, sem
Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti
að vinna frá Framsóknar-
flokknum til að ná takmark-
inu.
Mikil óánægja ríkir í röð-
um Framsóknarflokksins
vegna franrboðsins hér í kjör
dæminu, ekki sízt í Vestur-
Húnavatnssýslu og í Siglu-
firði. Fer vart á milli mála,
að eitthvað af því fylgi, sem
Skúli hcitinn Guðmundsson
og Jón Kjartansson nutu,
muni nú hverfa til Sjálfstæð
isflokksins.
Hannibalistar munu nú
bjóða hér fram. Nægir fram-
boð þeirra til þess, að algjör-
lega er útilokað, að komm-
únisti geti fellt þriðja mann
Framsóknarflokksins, og
þess vegna er ljóst, að bar-
áttan stendur milli Framsókn
arflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins.
AHt það, sem nú hefur ver
ið upptalið, — og ýmislegt
fleira, — gerir það að verk-
um, að Sjálfstæöismcnn
heyja sína baráttu á þeim
grundvelli, að þeir ætli sér
að verða öflugasti flokkur-
inn í kjördæminu.