Íslendingur - Ísafold


Íslendingur - Ísafold - 13.03.1971, Qupperneq 5

Íslendingur - Ísafold - 13.03.1971, Qupperneq 5
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - LAUGARDAGUR 13. MARZ 1971 5 „Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherzlu á að togararnir verði smíðaðir hér...“ — segir Jóhann Hafstein, forsætis- og iðnaðarráðherra m.a. í viðtaii við bSsðið fslendingur-ísafold lagði nokkrar spurningar fyrir Jóhann Hafstein, forsætisráðherra, þegar hann kom hingað norður um helgina. — Mynd- irnar með viðtalinu eru úr heimsókn forsætis- ráðherra í Slippstöðina hf., sem hann sótti heiin ásamt fíeiri fyrirtækjum. — Hvaða mál vill Sjálfstæðisflokkurinn leggja mesta áherzlu á í komandi alþing- iskosningum? — Ég tel eðlilegt, að Sjálfstæðisflokkurinn leggi áherzlu á þaö í kosningunum, hvaða árang- ur Jiafi náðst í ýmsum meginmálum í stjórnar- tíð hans. En þegar horft er til framtíðarinnar, þá þykir mér ekki ósennilegt, að landhelgismál- ið — hagnýting landgrunnsins — og réttur Is- Jendinga til þess, verði eitt af helztu málunum. Ég vil minna á það, að á þetta lagði ég áherzlu í stjórnaryfirlýsingu strax og þing kom saman í haust, en jafnframt hef ég lagt á það ríka á- herzlu, að takast mætti að ná sem víðtækastri samstöðu milli flokka í þessu máli, sem ég tel að eigi að vera hafið yfir flokkadrætti. Það var að tilhlutan Bjarna heitins Benediktssonar sett á laggir landhelgisnefnd á sl. vori skipuð full- trúum allra þingflokka, og í þessari nefnd höfum við reynt að samræma sjónarmiðin eftir föngum. — Eru líkur fyrir því, að Sjálfstæðisflokkur- inn verði í næstu ríkisstjórn, og þá með hvaða flokki? — Vissulega tel ég miklar likur fyrir því, að SjálfstæðisfloJdrurinn verði í næstu ríkisstjórn og byggi það á því, að ég tel aðstöðu Sjálfstæðis- flokksins mjög sterka. Hún er líka sterkari, þegar haft er í huga, að ýmsir aðrir flokkar hafa sundr- azt eða á annan svipaðan hátt veikt aðstöðu sína. Annars skyldi enginn spá um það, hvernig að- Forsætisráðherra ásamt fylgdarliði í brúnni á nýju Esju. (Myndir: Matthías). staða sé eftir kosningar. Við höfum ekki lekið neina ákvörðun um hugsanlegt stjórnarsamstarf með neinum einum stjórnmálaflokki, eins og kunnugt er. Fyrir kosningarnar 1963 lýstu stjórn- arflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokk- ur, því yfir, að þeir myndu starfa áfram eftir kosningar í ríkisstjórn, ef þeir fengju aðstöðu til þess, og sú varð raunin, Hvorki fyrir alþingis- kosningarnar 1967 né nú hafa slíkar yfirlýsingar verið gefnar. — Hvað gerist í haust, þegar lögin um verð- stöðvun falla úr gildi? Frá vinstri: Lárus Jónsson, Gunnar Ragnars og Jóhann Hafstcin í skoðunarferð í Slippstöðinni. — Ég get ekki fullyrt um það, hvað gerast muni í haust, þegar lögin um verðstöðvunina falla úr gildi. Hitt er víst, að hverjir sem þá fara með stjórn í þessu landi, standa mun bctur að vígi einmitt vegna áhrifa verðstöðvunarlaganna, því að meginstaðreynd er það, að þau hafa dreg- ið úr vexti verðbólgunnar og viðhaldið meiri kaupmætti launa en ella hefði orðið, en eins og kunnugt er, þá verða kaupsamningar einnig laus- ir á sama tíma og verðstöðvunarlögin falla úr gildi. — Hvernig líður samningum um smíði tveggja skuttogara í Slippstöðinni ? — Um þessar mundir standa þessir samning- ar yfir. Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherzlu á, að úr því geti orðið, að togararnir verði smíð- aðir hér, ekki sízt til þess að íslenzkur skipa- smiðaiðnaður fái sem mesta reynslu af því að smíða slík skip, en fullvíst má telja, að margir skuttogarar verði smíðaðir fyrir Islendinga á kom andi árum. Ég vil láta í ljós þá von, að samning- ar takist sem fyrst um þetta við Slippstöðina. — Hver verða helztu viðfangsefni landsfund- arins í apríl og hverjir munu veljast til forystu í Sjálfstæðisflokknum? — Um þetta vil ég segja, að helztu viðfangs- efni landsfundar eru nú sem endranær að móta meginstefnu flokksins og alveg sér í lagi með hliðsjón af þeim kosningum, sem framundan eru. Miðstjórn vinnur nú að því að ganga frá dagskrá landsfundar og fyrirkomulagi hans. Við gerum ráð fyrir, að landsfundur verði vel sóttur úr öllum hénfðum landsins eftir fréttum, sem við höfum þar um. Landsfundarfulltrúarnir svara því með venjulegum hætti í óbundinni kosningu á landsfundinum, hverjir veljast þar til forustu.

x

Íslendingur - Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.