Íslendingur - Ísafold - 07.07.1971, Blaðsíða 2
fojg ISLENDINGUR-ISAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLl 1971.
LITIÐ Á ÚRSLIT
KOSNINGA
Kosningar til Alþingis eru
nýlega um garð gengnar, og
svo sem jafnan áður er rætt
um úrslit þeirra á eftir og
dregnar mísjafnar ályktanir af.
Það sem hæst ber, er sú stað-
reynd, að sú stjórn, er lengst
hefur setið að völdum á Is-
landi, missti nauman þinymeiri
hluta sinn eftir marg-ítrekaðar
tilraunir sundurleitrar sijðrn-
arandstöðu til að bera sigur af
henni í kosningum. Þótt stjórn
arandstaðan bæri loks sigur af
hólmi, benda úrslitin mjög til
Á leið til kjörstaðar.
...á förnum vegi
þess, að fráfarandi stjórn hafi
þótt „góð stjórn“, þar sem að-
alstjórnarflokkurinn heidur öll
um sínum kjördæmakjörnu
þingmönnum og tapar aðeins
einu uppbótarsæti vegna þess,
að þau sldptust nú milii fleiri
flokka en áður. Á sama tíma
og sá flokkur, sem talið hefur
sig forustufiokk í stjórnarand-
stöðunni ,tapar bingmanni og
lækkar atkvæðatölu sína um
rúm 700 atkvæði i heild, þrátt
fyrir mikla fjölgun kjósenda,
bætir Sjálfstæðisflokkurinn
við sig nokkuð á 3. þúsund
atkvæðum. Má því Sjálfstæðis
flokkurinn vel una því traustí,
er honum var sýnt í nýafstöðn
um lcosningum, enda hlutur
hans mun betri en aðal-flokks
stjórnarandstöðunnar.
Eins og jafnan áður ræður
fjölbýlið mestu um kosninga-
úrslit, svo sem sjá má af því,
að á Faxaflóasvæðinu eykst
fylgi kommúnista um ca. 4300
atkvæði en tap Alþýðuflokks-
ins á hinu sama svæði nemur
um 3240 atkvæðum. Þá vinna
kommúnistar einnig verulegan
sigur í Austurlandskjördæmi,
en tapa verulega á Vesífjörð-
um og í Norðurlandskjördæmi
eystra, þar sem fyrri kjósendur
þeirra hópast um hinn nýja
flokk Hannibals Vaidimarsson
ar, enda verður að teija, að
enginn einn maður hafi í kosn
ingunum unnið stærri persónu
legan sigur en Hanniba!.
TAP OG GRÓÐI
Ef litið er á vinninga og töp
gömlu flokkanna, sézt, að ein-
ungis í Austur'andskjördæmi
bætir Alþýðuflokkurinn við
sig nokkrum atkvæðum er, tap
ar í öllum hinum meira og
minna. Framsókn rapar í 5
kjördæmum 702 atkvæðum en
vinnur í 3 öðru*n 310. Sjálf-
stæðisflokkurinn tapa*- í 5 kjór
dæmum samanlagt 393 atkvæð
um en vinnur í þremur 2526
atkvæði. Kommúnistar tapa í
tveim kjördæmum 590 atkvæð
um en vinna í hinum sex 5339
atkvæði. En vegna nýs flokks
í kosningunum, er hlaut veru-
legt fylgi og fimm þingmenn
kjörna að uppbótarþingmönn-
um meðtöldum, er erfitt að
gera sér tölulega grein fyrir tii-
fiutningi kjósenda miiii
flokka.
HÓGVÆRÐIN
I FYRIRRÚMI
Sjaldan mun kosningaáróð-
ur í ræðu og riti hafa verið
hógværari en nú og að því er
virtist minni áhuga almennings
en áður fyrir kosningunum. —
Mátti hvarvetna finna, að
stjórnarandstaðan hafði litlar
sakir fram að bera á fráfar-
andi stjórn. Áróðurinn kora
helzt fram í því, að tírni væri
kominn til að BREYTA TIL'.
Og hví skyldu ekki hinir
mörgu nýju kjósendur hafa tal
ið eðlilegt að „breyta til“, þótt
óvissan væri miki! og sé enn
um það, hvort tilbreytingin
verði til bóta eða ekki? Mál-
efnalega var stjórnarandstað-
an snauðari en nokkru sinni,
er gengið hefur verið til kosn-
inga. Mörg gömul barátíumál
þeirra hurfu í skuggann fyrir
þessu eina vígorði: Við þurf-
um að breyta til. Og nú bíður
þjóðin róleg eftir því, hvort
þessum breytingagjörnu mönn
um tekst að slíðra sverð sín
hver gegn öðrum og koma upp
nýrri ríkisstjórn, enda telja
þeir sjálfir sér skylt að reyna
slíkt til þrautar. Margt mælir
með, að slíkt gangi sæmilega.
Fátt vandamáia er framundan.
Góðæri um allar sveitir, —
ekki minnst á kalskemmdir í
túnum eða önnur vandamál,
sem fráfarandi stjórn nafði við
að giíma sumar eftir sumar á-
samt annarri óáran um skeið,
svo sem hvarfi síldarinnar af
miðunum fyrir Norður- og
Austuriandi og verðhruns á
flestum útfiutningsaturðum
okkar.
SIGURGLEÐI
OG VONBRIGÐI
Eðlilega hefur sigurgleði
gripið ýmsa vinstri mcnn að
kosningum loknum, þótt þeir
hafi enn ekki séð fyrir end-
ann á, hvernig honum verður
bezt fylgt eftir. Líklega oreym-
ir kommúnista fyrst og fremst
um það, að nú fái þeir tæki-
færi til að losa ísland úr tengsl
um við vestrænar þjóðir og
gera landið varnarlaust, ef til
ófriðar dragi. I- annan stað
munu þeir Hannibal og Magn-
ús Kjartansson verða að
kyngja ýmsu því, er þeir hafa
sagt hvor um annan á undan-
förnum mánuðum, áður en
þeir setjast hlið við hlið í ráð-
herrastóla. En sigur eins »etur
orðið öðrum vonbrigði. Og því
skal ekki leynt, að þeim, er
þetta ritar, urðu úrslitin í Norð
urlandskjördæmi evstra nokk-
ur vonbrigði, og mun svo fleir
um farið, þótt þeir hafi aðrar
þjóðmáiaskoðanir. En þar gerð
ust þau tíðindi, að margir Al-
þýðuflokksmenn og senni-
lega nokkrir Sjálfstæðismenn
fórnuðu á Björn Jónsson
tveim uppbótarþingmönnum:
Halldóri Blöndal og Braga Sig
urjónssyni, til að bjarga Birni
undan Stefáni dagskrárstjóra.
Þetta er mikil fórn, þegar á
það er litið, að Norðurlands-
kjördæmi eystra kom að tveim
landkjörnum þingmönnum við
kosningarnar 1967 en nú
ENGUM.
Þó má ekki skiija orð mín
svo, að landkjörnum þing-
mönnum beri að gæta hags-
muna sérstaks kjördæmis, en
sú hefur þó reynslan orðið, að
þeir hafa eðiilega ofarlcga í
huga að taka a. m. k. fullt til-
Ii( til óska og þarfa þeirra, er
veittu þeim kjörfylgi tii að ná
sæti á Aiþingi, og þá reynslu
hygg ég að Eyfirðingar og Þing
eyingar hafi af þeim frændum,
Bjartmari og Braga á síðasta
kjörtímabili. Ég efast hins veg
ar ekki um, að Björn muni eft-
ir sem áður verða gagnsamur
kjördæminu, en spurningin er
sú, hvort hann rís undir
þriggja manna hlut.
BARNABLAÐ
FRAMSÓKNAR
Rétt fyrir kosningar var
myndskreytt unglingablað B-
listans borið í hús á Akureyri
og kenndi þar margra kynlegra
grasa. Auk þingmannsefna
Framsóknar var þar leitað til
margra unglinga í kjördæminu
um innlegg í kosningabarátt-
una. Ung stúlka í Svarfaðar-
dal kvaðst kjósa Framsókn, af
því að hún vildi „efla trygg-
ingar og bæta hagsmuni þjóð-
arbúsins." (Góð fyndni þetta
með tryggingarnar). Og ungur
maður á Akureyri er ómyrkur
í máli og bregzt ekki rökvísin:
...... Ég veit það verður
enginn barnaleikur fyrir næstu
stjórn að taka við og greiða úr
flækjunum. En ef þessi stjórn
skyldi sitja áfram, bá er það
bara mátulegt á hana að fá að
ráða fram úr þeim ógöngum,
sem hún er búin að skapa sér
og þjóðinni....“ En sleppum
frekara gamni.
NÝJA STJÓRNIN
En þótt „mátulegt væri á“
stjórnina að sÞja áfram, þá
hefur hún beðið um lausn frá
störfum, og formaður Fram-
sóknar sezt með sveiltan skall
ann við að koma upp annarri
stjórn, sem væntaníega verð-
ur þannig skipuð, ef raarka má
draumvitrun, er oss birtist í
nótt sem leið, nánast milli
svefns og vöku:
Ólafur fóhannesson. forsæt
is-, dóms- og kirkjumálaráð-
herra.
Einar Ágústsson, fjármála-
og bankamálaráðherra.
Ásgeir Bjarnason, Inndbún-
aðar- og flugmálaráðherra.
Hannibal Va'dimarsson, ut-
anríkis- og me 'ntamálaráð-
herra.
Björn Jónsson, viðskipta-,
vegamála- og íðnaðarmálaráð-
herra.
Magnús Kjartansson, félags-
og heilbrigðismálaráðherra.
Lúðvík Jósefsson, sjávarút-
vegs-, siglinga- og raforku-
málaráöherra.
Og höfum svo ekki fleiri orð
um þessa hluti. — J.
Vistheimilið að Sólborg verður vígt laugard. 10. júlí nk.