Íslendingur - Ísafold - 07.07.1971, Side 4
4 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLl 1971.
Góð heimsókn
Þegar við hjónin, fyrir tveim-
ur árum, sóttum Færeyjar heim,
komum við til Klakksvíkur. Þá
var kór þaðan í söngför til Dan
merkur.
Nú ætlar kór frá Klakksvílc
að heimsækja ísland. Kemur
í vændum
hann til Akureyrar og syngur í
Samkomuhúsinu, Hafnarstræli
57, sem hér segir:
Föstudag 30. þ. m. kl. 20.30.
Laugardag 31. þ. m. kl. 20.30.
Sunnudag 1. ágúst kl. 20.30.
Söngstjórinn, Jógvan við
Keldu, kom hér árið 1963, þeg-
ar Pétur Háberg frá Þórshöfn
kom með æskulýðskór sinn til
Akureyrar. Jógvan var þá einn
áf einsöngvurum kórsins. Nú
kemur hann aftur með fríðu
föruneyti, góðum og þjálfuðum
kór.
Auk söngsins verða vitnis-
burðir eða stuttar ræður, því að
unga fólkið hefir skipað sér und
ir merki frelsarans, það hefir
með því valið góða hlutskiptið
hér í líf.
Ekki þarf að efa, að söngur-
inn verður góður og ánægjulegt
að hlýða á hann. Fjölmennið,
góðir bæjarbúar, og aðgangur-
inn er ÖICEYPIS.
Sæmundur G. Jóhannesson.
I ferðalagið
TJÖLD - SVEFNPOIÍAR - VINDSÆNGUR -
BAIÍPOKAR - SPORTFATNAÐUR —
Góðar vörur — Gott verð!
Klæðaverzlun
Sigurðar Guðmundssonar
Tilkynning
um útboö
Vegagerð ríkisins býður hér með út jarðvinnu við
Norðuriandsveg sunnan Akureyrar, og nefnist útboðið:
Norðurlandsvegur, Áfangi NVl, Jarðvinna.
1 Útboðinu fylgja eftirtalin gögn:
(a) Hluti I — Tilkynning þessi um útboð.
^ (b) Hluti II — Almennir útboðs- og samningsskil-
málar — ÍST 30 ásamt sérprentuð-
um breytingum,
(c) Hluti III — Form samnings.
(d) Hluti IV — Eyðublöð fyrir framkvæmdatrygg-
ingu og tilboðstryggingu.
(e) Hluti V — Útboðslýsing.
(f) Hluti VI - Tilboðsskrá.
(g) HlutiVII — Tilboðseyðublað.
(h) HlutiVIII — Almenn verklýsing.
(i) Hluti IX — Uppdrættir.
Tilboð skal vera í samræmi við útboðsgögn. Verð í
tilboði skulu miðast við verðlag og kaupgjald eins og
það er hinn 22. júlí 1971.
Tilboði skal skila í lokuðu umslagi, merktu nafni út-
boðs, til Vegamálaskrifstofunnar fyrir kl. 14:00 hinn
' 22. júlí nk., og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opn-
uð þar opinberlega.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og breyt-
ingar skulu berast brautadeild Vegagerðar ríkisins
skriflega eigi síðar en 14. júlí.
Útboðsgögn verða til sýnis á Vegamálaskrifstofunni
og afhent þar og hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri
gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Reykjavík, 1. júlí 1971.
VEGAMÁLASTJÖRL
Hrossakjöt
Nýtt, saltað og reykt — af ungu og fullorðnu. —
Sendi í póstkröfu.
Kjötverzlun Sævars
Goðabyggð 18 — Sími 12868.
Golfkennsla
Þorvaldur Ásgeirsson, golfkennari, mun annast golf-
kennslu á Golfvellinum næstu daga. — Þátttakendur
láti skrá sig á lista í Golfskálanum eða hjá stjórn
Golfklúbbs Akureyrar.
TIL SÖLIJ
Til sölu 3ja herbergja íbúð í Glerárhverfi.
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
GUNNAR SÓLNES
STRANDGÖTU 1 - SÍMI 21820.
Byggingafélag
Akureyrar
Til sölu 4ra herbergja íbúð við Grenivelli,
Þeir félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsréttar, hafi
samband við formann félagsins,
SVEIN TRYGGVASON,
fyrir 15. júlí.
Akureyringar —
nærsveitamenn
Höfum opnað rafvinnustofu — Rafljós hf. — síiimii
11176 — að Hjalteyrargötu 4, Akureyri.
Munum annast nýlagnir og viðgerðir á eldri lögnum,
einnig hvers kyns viðgerðir á heimilistækjum.
Teiknum raflögnina fyrk yður og gerum tilboð, ef
ðskað er.
HÁKON GUÐMUNDSSON, Kotárgerði 6, símí 11377.
VTLHELM GUÐMUNDSSON, Lönguhl. 7c, sími 21184.
BÍLALEIGAN
AÐALSTRÆTI 68
AKUREYRI
Símar: 12841 —
12566 - 11450
Volkswagen.
Sendum — Sækjum.
Bill óskast
Óska eftir að kaupa rúm-
góðan 5 manna bíl af ár-
gerð 1969 eða 1970. —
Má vera station.
Uppl. í síma 61122, Dalvík.
BÍLAR í BOÐI
SAAB, árgerð 1966, — í
mjög góðu ástandi.
Björgvin Jörgenson,
sími 11698.
Norðurverk -
Framhald af bls. 1.
ið hefur verið við verktaka. Vél
arnar hafa einnig verið boðnar
út, en frestur er fram í septemb
er.
Fyrir slcömmu voru fram-
kvæmdir við Dalvíkurveg, 6.5
km lcafla frá Hjalteyrarvegi
norður að Syðri-Haga, boðnar
út. Er hér að mestu leyti um
nýjan veg að ræða. Aðeins eitt
tilboð barst, og var það frá Norð
urverki hf.} að upphæð um 9
milljónir króna, að því er Árni
Árnason hjá Norðurverki tjáði
blaðinu.
Aðspurður kvaðst Árni reikna
með að Norðurvetk byði í hrað-
brautarframlcvæmdir þær við
Akureyri, sem auglýstar eru í
blaðinu í dag.
Fjórðungssjúkra-
húsiÖ -
FramhaH af hls. 1.
hjúkrun og umönnun allan sól-
arhringinn, á almennri deild
líggja sjúklingar, sem þuría um
önnun daglega og síðan er skipu
lögð göngudeild fyrir þá sjúkl-
inga, sem dvalið geta heima, en
koma til eftirlits á deiidina.
Hver legudagur á sjúkrahúsinu
kostar nú um eða yfir 2000 kr.
á dag og er göngudeildin því
einnig til sparnaðar fyrir stofn-
unina.
Sjúkrahúsið hefur haft ur
litlu að spila á undanförnum
árum til tækjakaupa, en á þessu
ári mun það kaupa tæki fyrir
8 milljónir króna. í síðustu viku
kom fyrsta stóra sendingin til
Sjúkrahússiris, en það eru verk-
færi til beinbrotalækninga Síð-
an koma fleiri tæki á eftir, m.
a. svæfingayél, en nú er lartgí.
komið að útbúa aðra fullkomna
skurðstofu á sjúkrahúsinu, að-
eins beðið eftir nægum búnaði.