Íslendingur - Ísafold - 07.07.1971, Page 6
6 " ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1971.
irlm ««
Ferðamál —
Vaxandi atvinnugrein
• ÞÖRF NÝRRA ATVINNUGREINA
Hér í þessum þáttum hefur margoft ver-
ið á það bent, hversu rík þörf er á aukinni
fjölbreytni í atvinnulífi oldcar íslendinga.
Áriega koma nú út úr skólum landsins fieiri
ungmenni en nokkru sinni fyrr með fjöl-
þætta menntun og starfsþjálfun. Það lykil-
verkefni, að veita þessu unga fólki arð-
bæra atvinnu, sem aðrar framfarir í þjóð-
arbúskapnum byggjast á, verður ekki leyst
nema til komi efling allra hugsaniegra at-
vinnugreina. Ein þeirra er án efa feröamál.
Það er atvinnugrein, sem vaxið hefur mjög
verulega hér á landi hin síðari ár. Ferða-
mannastraumurinn vex árlega milli Ianda
í öllum heiminum, og þeir, sem farið hafa
víða, vilja nú Ieggja aukna áherzlu á að
skoða lönd, sem eru sérkennileg að nátt-
úrufari, sögu og menningu. Samgöngur við
umheiminn fara sífellt batnandi. Því er aug
ljóst, að skilyrði eru að batna fyrir ennþá
auknum ferðamannastraumi til íslands, séu
á annað borð aðstæður fyrir hendi til þess
að hýsa og dvelja fyrir ferðafólki í landinu.
• AÐSTAÐAN í REYKJAVÍK
Langflestir ferðamenn, sem koma til Is-
lands, gista í Reykjavík um lengri eða
skemmri tíma. Forsenda fyrir því að ferða-
menn komi til landsins er því sú, að að-
stæður til þess að taka þar við ferðafólki
séu nægar og góðar. Á síðari árum hafa
orðið stórstígar framfarir á þessu sviði. I
Reykjavík hafa risið mörg og glæsileg hót-
el, nú síðast hótel Esja, ásamt stækkun
hótels Loftleiða, en í þeirri byggingu er
bryddað á þeirri þörfu nýjung, að koma upp
sérstökum ráðstefnusölum. Þessi bætta að-
staða til ferðamannaþjónustu í Reykjavík,
ásamt með auknum ferðum flugvéla og
skipa að og frá landinu, stuðlar að því að
vöxtur ferðamannastraumsins til iandsins
mun fyrirsjáanlega halda áfram, ef ekki
koma óvænt atvik til skjalanna.
• FERÐAMÁLIN OG LANDSBYC.GÐIN
Því miður hefur ekki orðið sama raun
á úti á landsbyggðinni í ferðamálum og í
Reykjavík, þótt í rétta átt hafi miðað á
mörgum sviðum. Ástæðurnar eru margar
og verður ekki frekar fjallað um þær hér
að þessu sinni. Á hinn bóginn er þörfin
hvergi brýnni á að skjóta aukastoðum und-
ir atvinnulífið og einmitt úti á landsbyggð-
inni. IJar eru einnig náttúruleg skilyrði lil
þess að laða að ferðamenn, óspillt nátt-
úrufegurð, veiðiár, jöklar og fjöll, vötn og
firðir. Vandinn er hins vegar sá, að ferða-
mannatíminn er þar svo stuttur, varla nema
tveir mánuðir. Það liggur því í augum uppi,
að örðugt er að reka dýr mannvirki með
svo stuttum nýtingartíma, nema til komi
annars konar not yfir vetrarmánuðina. —
Einnig kemur til, að erfitt er að uppfylía
öll þau skilyrði víða út um land, sem þurfa
að vera til staðar til þess að aðstaða til
ferðamannaþjónustu verði góð. Þar má til
nefna vegi, íþróttamannvirki o. m. fl.
• SKIPULEG UPPBYGGING
FERÐAMANNAÞJÓNUSTU
Vegna þess, hversu margir þættir hafa
áhrif á skilyrði til aukinnar ferðamanna-
þjónustu út um land, er þar meiri vandi á
höndum að byggja skipulega upp aðstöðu
til þess að þessi atvinnugrein geti vaxið
verulega, heldur en þörf er á í Reykjavík.
Þar skiptir meginmáli, að hótelrými sé til
staðar. Önnur skilyrði eru meira eða minná
fyrir hendi, nema vera kynni aðstaðan tii
ráðstefnuhalds. Mikilvægt er að gera sér
grein fyrir þessu og bregðast rétt við því,
m. a. með því að unnt sé að afla fjár til
alhliða framkvæmda, sem hafa í heild það
meginmarkmið að efia aðstöðuna til ferða-
mannaþjónustu í hinum ýmsu landshluíum.
Einnig skiptir meginmáli, að hin ýmsu
byggðarlög, sem áhuga hafa á því að þróa
ferðamálin, vinni saman. Þau hafa aug-
ljóslega sameiginlega hagsmuni. Ef fIeíra
fólk ferðast til Mývatns, er líldegt að það
gisti Akureyri einnig. Þetta er einungis
sagt hér sem dæmi um, hvaða innbyrðis
tengsl eru milli einstakra byggðarlaga á
þessu sviði, sem elcki eru á öðrum sviðunr
atvinnurekstrar.
• FRAMTÍÐARVERICEFNIN í IS-
LENZKUM FERÐAMÁLUM
Þótt vel hafi miðað undanfarin ár að cfl-
ingu ferðamála hér á landi, er Ijóst, að
mikil verkefni bíða framundan. í undirbún-
ingi hefur verið að gera sérstaka úttekt á
aðstæðum hér á landi til þess að gera ferða-
mannaþjónustu að vaxandi tekjulind. Það
eru tvímælalaust rétt vinnubrögð að gera
slíka úttekt. Á grundvelli hennar þarf að
afla stóraukins fjármagns til þess að fram-
kvænta þau verkefni, sem brýnust eru, eink
um úti á landsbyggðinni, svo að framan-
greindu markmiði verði náð. í því efni skipt
ir höfuðmáli, að komið sé á skipuiegva sam
starfi milli opinberra aðila og einkoaðiia,
sem vinna að því sameiginlega ma 'ki.
L. J.
RAGNAR RAGNARSSON, HÓTEL KEA:
Ríkið á ekki að keppa
við hótelin í bænum
— Mín persónulega skoðun er sú, að þau hótel, sem starfrækt
eru allt árið hér í bænum, eigi að annast rekstur Eddu hótelsins
á Akureyri, sagði Ragnar Ragnarsson, hótelstjóri á Hótel KEA,
þegar blaðið hafði samband við hann.
— Mér finnst óhæfa, að ríkisfyrirtæki skuli halda uppi sam-
keppni við hótel bæjarins þessa þrjá mánuði á ári, sem ferðamenn
hafa hér viðdvöl, því lítið er um að vera yfir vetrarmánuðina.
Þó hefur nýtingin yfir veturinn farið stöðugt batnandi á þessu
hóteli.
— Júní-mánuður hefur verið ágætur, og með þeim betri und-
anfarin sjö ár. Pantanir eru ekki miklar í sumar, en reynslan
hefur sýnt, að á þeim er ekki alltaf milcið að byggja, og því þarf
það ekki að þýða minni aðsókn að hótelinu í sumar.
— Veðurfarið hefur milcil áhrif á ferðamannastrauminn, og ef
veður er gott hér fyrir norðan, þá verður vafalaust nóg að gera
hjá okkur.
GUÐRÚN ÞÓRARINSDÓTTIR, HÓTEL EDDA:
Itljög mikið pantað
ffyrir sumarið
— Við opnuðum hér stuttu fyrir 17. júní og síðan hefur verið
mikið að gera, þótt aðalferðamannastraumurinn sé ekki byrjað-
ur, sagði frú Guðrún Þórarinsdóttir, hótelstjóri á Hótel Eddu.
— Við fáurn jafnan marga hópa frá Ferðaskrifstofu ríkisins á
hverju sumri, og lítur út fyrir talsverða aukningu frá því í fyrra.
Er nú fullbókað yfir suma daga bæði í júlí og ágúst. Við höfðum
hér marga gesti yfir 17. júní og síðan gisti hjá okkur stór hópur
af Vestur-íslendingum. Fyrir stuttu dvöldu hér fulltrúar á aðal-
fundi Slysavarnarfélagsins, og því er nýtingin í júní góð. Þá hefur
milcið verið pantað í sambandi við landsmótið í golfi, sem fer
fram á Akureyri í ágúst. Við höfum 70 gistiherbergi með samtals
140 rúmum og ennfremur svefnpokapláss.
JÚLÍUS FOSSDAL, HÓTEL AKUREYRI:
Dauft yfir vertíðinni
nú sem stendur
— Fyrri hluti júní var góður hjá okkur, en upp úr 17. fór
gestum að fækka, og er ákaflega dauft yfir þessu núna, sagði
hótelstjórinn á Hótel Akureyri, Júlíus Fossdal.
— Nokkuð hefur verið pantað fyrir næstu mánuði, og býst ég
við að það sé álíka mikið og í fyrra, Hótelið er opið allt árið, en
yfir veturinn er sáralítið að gera. Við rekum hér stóra veitinga-
stofu, og er aðsókn að henni sæmileg.
— Herbergi hótelsins eru 20 með samtals 49 rúmum.