Faxi - 01.10.1960, Page 7
F A X I
127
Naetur- og hclgidagalæknur í Kcflavíkurhcr-
aðiaði í október og nóvember 1960:
22.—23. okt. Arnbjörn Ólafsson.
24. okt. Björn Sigurðsson.
25. okt. Guðjón Klemenzson.
26. okt. Jón Jóhannsson.
27. okt. Kjartan Ólafsson.
28. okt. Arnbjörn Ólafsson.
29. —30. okt. Björn Sigurðsson.
31. okt. Guðjón Klemenzson.
1. nóv. Jón Jóhannsson.
2. nóv. Kjartan Ólafsson.
3. nóv. Arnbjörn Ólafsson.
4. nóv. Björn Sigurðsson.
5. —6. nóv. Guðjón Klemenzson.
7. nóv. Jón Jóhannsson
8. nóv. Kjartan Ólafsson.
9. nóv. Arnbjörn Ólafsson.
10. nóv. Björn Sigurðsson.
11. nóv. Guðjón Klemenzson.
12. —13. nóv. Jón Jóhannsson.
14. nóv. Kjartan Ólafsson.
15. nóv. Arnbjörn Ólafsson.
16. nóv. Björn Sigurðsson.
17. nóv. Guðjón Klemenzson.
18. nóv. Jón Jóhannsson.
19. —20. nóv. Kjartan Ólafsson.
Lciðrcttingar:
I stuttri afmæliskveðju í síðasta tbl. Faxa
til Guðm. M. Jónssonar rafvirkja, varð það
ranghermi, að faðir hans var sagður hafa verið
Loftsson, en var Jónsson. I öðrum stað í
sama blaði var birt mynd af Arnheiði Magn-
úsdóttur í tilefni af sextugsafmæli hennar.
I blaðinu stóð: Arnheiður, sem er rangt. Þá
slæddist einnig villa inn í viðtal við Ólaf
Björnsson í sama blaði, þar sem rætt var
um báta með síldarbotntroll,, að gott þyki,
ef þeir fái 1 til 1% tunnu síldar í róðri. A
auðvitað að vera 1 til lVi tonn.
Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
sama mál. Var þeirri tillögu einnig vísað til
nefndar. Önnur þingskjöl hafa ekki komið
fram í Alþingi varðandi þetta mál, svo vitað
sé. Hins vegar höfum við nú fengið þessar
ágætu fréttir frá ríkisstjórninni og munu
menn hér suðurfrá vissulega fagna þeim.
Gagnfræðaskólinn í Kcflavík
var settur 4. október í Keflavíkurkirkju.
Nemendur eru 260 í 10 bekkjardeildum. Við
setningu skólans flutti sóknarpresturinn,
sr. Björn Jónsson bæn og las ritningarorð, en
skólastjóri, Rögnvaldur Sæmundsson, flutti
setningarræðuna. Vegna þrengsla verður
skólinn nú starfræktur á 4 stöðum í bænum
og reyndar 5, því unglingar frá Njarðvíkum,
sem á undanförnum árurn hafa stundað nám
í Gagnfræðaskóla Keflavíkur, verða nú, vegna
þrengsla, að læra heima, og mun þeim þar
verða séð fyrir sambærilegri kennslu.
Á þessu sumri var hafin bygging á nýjum
gagnfræðaskóla í Keflavík og miðar því verki
vel áfram, þó ekki geti það leyst húsnæðis-
vanda skólans á þessu hausti. Yfirsmiður við
þá byggingu er Þórarinn Ólafsson og verk-
stjóri Georg Helgason.
..............I
Sundhölliu opiu á ný.
1. okt. var Sundhöll Keflavíkur opnuð á
ný eftir gagngera viðgerð á þaki hússins.
Nýr sundkennari hefur verið ráðinn við
Sundhöllina frá 15. okt. en hann heitir Aðal-
steinn Jónsson íþróttakennari.
Orðsending frá Filiníu.
Eins og lesendum Faxa mun eflaust kunn-
ugt, starfaði Filmía hér í Keflavík í fyrra-
vetur með miklum glæsibrag. Nú lítur helzt
út fyrir að af starfsemi deildarinnar geti ekki
orðið í ár, vegna þess, að ekki hafa náðst
samningar við kvikmyndahúsin. Harmar
stjórnin þetta, en mun reyna að tryggja starf-
semi Filmíu á næsta vetri.
Stcinstcyplur vegur til Suðurncsja.
Nýlega hefir verið sagt frá því í dagblöð-
um að ríkisstjórnin hafi ákveðið að láta nú
þegar hefja framkvæmdir hér á lagningu
steinsteypts jijóðvegar milli Reykjavíkur og
Suðurnesja. Um nauðsyn þessa mikla verks
hefir oft verið rætt í Faxa, cnda mun blaðið
framvegis fylgjast með gangi málsins og
skýra lesendum sínum frá öllu markverðu
sem þar gerist. — Forsaga málsins er sú, að
haustið 1958 flutti Ólafur Thors tillögu til
þingsályktunar um lagningu steinsteypts
vegar frá Hafnarfirði, um Keflavík, Garð og
lil Sandgerðis. Var þessari tillögu þá vísað
til fjárveitinganefndar. Eftir það var hljótt
um málið, þar til á síðasta þingi, er Jón
Skaftason flutti tillögu til þingsályktunar um
Gjöf þökkuð.
Fyrir nokkru bárust safninu að gjöf nokkr-
ar bækur frá frú Halldóru Bjarnadóttur rit-
stjóra Hlínar á Akureyri. Fyrir hönd safns-
ins bið ég Faxa að flytja henni okkar beztu
þakkir.
H. J.
18. l>ing S. U.J. í Kcflavík.
18. þing Sambands ungra jafnaðarmanna var
haldið í Keflavík dagana 15. og 16. okt. s.l.
Milli 50 og 60 fulltrúar víðsvegar að af land-
inu sóttu þingið.
Keflavík — llafnarfjörður.
Bæjarkeppni í knattspyrnu milli Keflvíkinga
og Hafnfirðinga fór fram í Hafnarfirði 24.
sept. s.l. Úrslit urðu þau, að Hafnfirðingar
sigruðu með 4:1. Þetta var í annað sinn, sem
keppt var um SBK-bikarinn. 4. fl. sömu aðila
lék undanleik og varð jafntefli 0:0.
Hálfum mánuði fyrr eða 11. sept. léku
meistaraflokkar Keflvíkinga og Hafnfirðinga
á grasvellinum í Njarðvík og sigruðu Kefl-
víkingar þá með 3:2.
Þar scm margar kvartanir
hafa borizt blaðinu um óskemmtilega hegð-
un ýmissra bíógesta í hléum, vill blaðið koma
því á framfæri, hvort ekki sé rétt, að tekinn
verði hér upp sami siður og í Reykjavík, að
hléin verði afnumin.
í sumar hefur algerlega keyrt um þverbak
í sambandi við gauragang og ærsl unglinga
í kvikmyndahúsinu. Hafa flöskur hvað eftir
annað verið brotnar og þeim síðan sparkað
niður ganga og stiga. Gæti hlotizt stórslys
af þessum ólátum, auk þess sem það spillir
ánægju fólks af að horfa á góða kvikmynd
og bókstaflega fælir marga frá húsinu. Það
er því eðlileg og sjálfsögð krafa almennings,
að eigendur kvikmyndahússins leiti einhverra
þeirra úrræða, er að gagni mættu koma til
þess að kippa þessu í lag, t. d. með því að
fjarlægja ólátaseggina og gera þeim ljóst, að
við þetta verði ekki unað, hvorki af hálfu
hússins né siðlátra bíógesta.
Þorsteinn Árnason 75 ára
Nú þann 28. október verður Þorsteinn
Árnason byggingameistari 75 ára, en hann
á, eins og flestum Suðurnesjamönnum er
kunnugt, að baki sér merkan starfsferil.
A sjötugsafmæli hans fyrir 5 árum flutti
Faxi um hann afmælisgrein eftir Guðna
Magnússon, þar sem starfssaga hans er
rakin í stórum dráttum. Vísast hér til
þeirrar greinar.
Faxi óskar Þorsteini og fjölskyldu hans
til hamingju með almælið.