Faxi - 01.03.1970, Blaðsíða 5
ingu í Keflavík. Kom það mál oftar til
umræðu á fundum stúkunnar og var al-
mennur áhugi fyrir því að stúkan aflaði
því máli fylgis og reyndi að ýta því áfram.
18. okt. 1914 var rætt um fjárhagsástand
hússins, sem þá var orðið allbágborið, og
stóð fyrir dyrum að það væri selt á nauð-
ungaruppboði. Var þá samþykkt svohljóð-
andi tillaga:
„Stúkan samþykkir að láta af hendi
Goodtemplarahúsið til hlutafélags“ ef það
getur myndast hér í Keflavík og felur
húsnefnd sinni að ráða því máli til lykta,
þó með þeim fyrirvara, að stúkan eigi með
sanngjörnum kjörum aðgang að húsinu
til bindindisfunda.
Aður hafði hreppnum verið boðið húsið
til kaups. Dróst alllengi að svara því til-
boði, en að lokum kom neikvætt svar.
21. febr. 1915 skýrði Guðmundur Hann-
sson frá því, að nú geti húsnefndin selt
G. T. húsið hlutafélagi, sem þegar væri
myndað í því skyni að viðhalda fundar-
húsi fyrir byggðarlagið og nefndist „Hluta-
félagið Skjöldur“. Var húsnefndinni gefið
fullt umboð til að selja húsið.
Á gamlársdag árið 1914 hélt stúkan
hátíð í G. T. húsinu með guðþjónustu cg
ræðum, til að minnast þess, að bannlögin
gengu að fullu í gildi um þau áramót.
Sr. Kristinn Daníelsson flutti guðsþjón-
ustuna, en ræðumenn voru Ágúst Jónsson
og Tómas Snorrason. Rætt hafði verið um
að halda hátíð þessa í kirkjunni, sem þá
var verið að byggja, en hún var ekki til-
búin.
(Þetta er samkv. dagskrá undirbúnings-
nefndar en engin skýrsla er um hátíð þessa
í fundarbókinni.)
Fertugasti fundur Sameiningarinnar er
bókaður 25. sept. 1915 og er það sá síðasti.
Mun nú allt stúkustarf hafa legið niðri
hér í Keflavíkurhreppi næstu 3 árin.
Framhald.
<><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><>><><><><><><><><><<X><><5><>0
LÚTÓ
svefnsófasettið fæst hjá okkur
Húsgagnaverzl. Garðarshólmi
Hafnargötu 18 — Sími 2009
BAÐLYF fyrir hesta
fyrirligg jandi.
APÓTEK KEFLAVÍKUR
FJALLÁGRÖS
nýkomin
APÓTEK KEFLAVÍKUR
<*>&<1>&&<1>C>C>C>0<Í>C*Z^^
FAXI fœst í bókabúðinni „Bókin" ó Skólavörðustíg í Reykjavík.
F A X I — 37