Faxi

Årgang

Faxi - 01.07.1980, Side 19

Faxi - 01.07.1980, Side 19
M/B ÓLAFUR MAGNÚSSON, GK 520. Myndin ertekiner báturinn var á siglingu undan garðskaga, á leið norður fyrir land, til Austfjarða. Myndina tók Ólafur Ingvarsson, er þá var háseti á m/b Úðafossi, en Úðafoss var samskipa m/b Ólafi til Austfjaröa til veiða þar þetta sumar. ísafirði. En þegar við komum til Siglufjarðar að tveim dögum liðnum, þá vildu þeir ekki kaupa kolann þar, svo við héldum þaðan fljótlega eftir hádegið á leið til ísafjarðar. Þegar við erum komnir á móts við Horn, um dimmumótin, þá skellur hann á meö norð-austan rok og blindbyl, svo viðfórum að gera klárt á dekkinu, létum allt lauslegt niður í lest og negldum aftur lestarlúgurnar og lúkars- kappann, og þar voru þeirniðri í lúkar, Þórarinn og piltur frá Seyðisfirði, sem var með okkur suður, en hann hafði komið á bátinn fyrir austan. Sigurjón Kristjánsson fór af bátnum og varð þar eftir vegna veikinda. Svo var veðrið hart, ofsarok og blindbylur, að við urðum að keyra upp í sjó og vind alla nóttina. Allir gluggar á stýris- húsinu voru opnir, þvi sjórinn hafði brotið allar rúðurnar. Lunningin að aftan, hekkbog- inn, fór allur i burtu, þegar brot- sjóirnir gengu yfir bátinn. Allt var Ijóslaust, því Ijósareimin tolldi ekki ávegnableytu, þvísvo mikill sjór rann niður í vélarrúm- ið. Báturinn var alltaf á kafi í sjó. ísjakar sem hæstu hús Við Albert stóðum við stýrið alla nóttina og skiptumst á hálfrar stundar vöktum og Sig- urður vék aldrei frá vélinni. Þannig leið nóttin. En þegarbirti blasti við okkur annarlegur og óvæntur heimur. Umhverfis okkur var allt umflotið ís. Þar voru stórir og smáir ísjakar, svo langt sem augað eygði, sumir háir sem hæstu hús. Frammi á hádekki höfðum við gengið frá legufærunum, ankeri og lið af keðju eins vel og kostur var á, bundið allt niður með vír. Þetta var allt farið fyrir borð, en hékk þó á vírnum við spilið. Það fyrsta sem við urðum að gera, þegar bjart var orðið, var að höggva frá okkur legufærin. Ég náði í öxi og ætlaði út á dekk, en þá kallaði Albert og sagði: ,,Þú ferð ekki út á dekk, þú átt konu Veiðarfæraþjónusía Tökum síldamætur til viðgerða. Uppsetningar og viðgerðir á trollum og netum. Tökum fiski- og humartroll til geymslu og viðgerðar. Víraþjónusta Þrykkjum augu á vír frá 8-28 mm sverleika með öruggri pressu. Ávallt fyrirliggjandi vír og tóg af flestum stærðum. Útbúum hvers konar virleggi og stroffur af öllum gerðum. Fullkomnari þjónusta með föstum viðskiptum. NETAGERÐIN NETANAUST i Básvegi 1, Keflavík, sími 32751 og börn heima. Ég fer sjálfur". Og hann bað mig að taka við stýrinu. ★) Þegar við vorum loksins lausir við legufærin, fórum við að reyna að koma okkur út úr ísnum. Það tók okkur allan dag- inn. En þegar við vorum loks lausir við ísinn, þá var sjólagið svo slæmt. Það voru brotsjóirog ekki hægt að snúa bátnum undan fyrr en eftir langan tíma, en þá héldum við til Dýrafjarðar því þangað var styst. Svo langt hafði okkur hrakiö í ofviðrinu. Við komum þangað daginn eftir. Þar fengum við olíu og mat. Vorum við þar um nóttina, et«. lögðum af stað til Reykjavíkur snemma daginn eftir. í Reykja- vík ætluðum við að selja kolann, en það var ekki hægt, hann var farinn að skemmast. Við fórum svo suður til Keflavíkur daginn eftir og þar fleygðum við kolan- um við legufæri bátsins. Svona fór sjóferð sú, þetta sumar. Aflinn var tregur, en þar við bættist, að við fengum ekk- ert greitt fyrir það sem aflaðist, nema það sem við tókum út fyrir austan, rétt það nauðsynleg- asta, mat, olíu og ís, því þeir urðu gjaldþrota eftir sumarið, sem keyptu fiskinn. Heimferðinni var lokið eftir um viku minnisstæða siglingu frá Seyðisfirði, norður- og vestur fyrir landið. Allan þennan tíma höfðum við aldrei getað látið vita af okkur, fyrr en við komum til Dýrafjarðar, því þá voru talstöðvar ekki komnar í bátana. Erlendur Jónsson SKIPVERJAR Á M/B ÓLAFI MAGNÚSSYNI: Albert Ólafsson, skipstjóri Erlendur Jónsson, stýrimaður Siguröur Gislason, vélstjóri Þórarinn Kristinsson, háseti ★) Þegar ég leitaöi eftir mynd hjá Sigurði Gíslasyni, sem var vélstjóri á m.b. Ólafi Magnússyni í þessari ferð, og ég las fyrir honum ofanskráða frásögn Erlendar, þá sagði hann þetta: ,,Það er rétt, þar sem sagt er frá því, þegar Albert vildi sjálfur fara til þess að höggva legufærin frá. Erlendur fór að stýrinu, en kallaði siðan til mín og bað mig að taka stýr- ið, sem ég geröi. Erlendur fór siðan fram á dekk til Alberts og unnu þeir síðan báðir að því að höggva legu- færin frá. En um það bil er þvi var lokið, gekk brotsjór yfir bátinn." Sagði Sigurður að um tíma hefði hann talið tvísýnt að hann sæi þá Albert og Erlend aftur. Þeir hefðu um tíma alveg horfið í brotsjóinn, sem þá gekk yfir bátinn. R.G. FAXI - 99

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.