Faxi - 01.09.1993, Qupperneq 5
Ililitj
Bishup Islands. herra Olafur Shúlason. hefur á pessu ári verið á
qfirreið om Kjalarnesprðfaslsdæmi í vtsifosTuertndum.
íhessum heimsóhnum slnum. bæði hérT prófasfsdæminu sem ogTöúrum
prófasisdæmum. sem hann hefur vTsiteraö. hefur bishup lagt
mon meiri áherslu á pað. en forverar hans. að homa úi
á medal fólhsins. - mæta pvTT hinni daglegu önn.
Svo sannarlepa brá herra Ólafur bishup ehhi úiafþessarí venju
sinniThinum gamla heimabæ smurn Heftavíh.
Til aS gefa lesendum Faxa nohhra innsgnT nnfang vTsilasíunnar
birtum við hér útdrátt Of vTsitasíugiörðinni.
nóg af vita af kirkjunni sinni í nálægt heldur
tóku litlar liendur í sínar og allir leiddust í
helgidóminn.
Heimsókninni lauk svo með að sungið
var Fyrr var oft í koti kátt.
Haldið íHoltaskóla
í Holtaskóla fögnuðu Sigurður E.
Þorkelsson, skólastjóri og Ingvar
Guðmundsson, aðst. skólastjóri, biskupi og
fylgdarliði og sýndu þeim nýtt tölvuver
skólans og ileira, meðan tími vannst til, uns
skólabjallan hafði boðað nemendur á sal.
Þar kynnti skólastjóri biskup, sem síðan
ávarpaði nemendurna um 450 talsins.
Biskup bar lof á þá glæsilegu aðstöðu,
sem ungt fólk í Keflavík byggi nú við.
Ræddi nauðsyn þess að finna kröftum
sínum holl viðfangsefni og reynast
hvarvetna traustur liðsmaður.
Heimsókninni í Holtaskóla lauk svo á
kennarastofunni með veitingum í kaffihléi
starfsfólks, sem biskupi gafst kostur á að
spjalla við drykklanga stund.
*
A Hlévangi
Næsli viðkomustaður var dvalarheimili
aldraðra, Hlévangur við Faxabraut.
1 samkomusal heimilisins bauð
forstöðukonan, Auður Guðvinsdóttir,
biskup og fylgdarlið velkomið en þar hafði
heimilisfólkið safnast saman til að fagna
gestunum.
Þarna var síðan helgistund með miðlægu
ávarpi biskups auk þátttöku prófasts og
prestanna, Einars Arnar Einarssonar,
organista og sex l'élaga úr kirkjukórnum,
sem leiddu sálmasönginn.
Eftir helgistundina gafst svo kostur á að
skiptast á orðum við vistmennina 31 talsins
og starfsfók, á meðan veitinga var neytt.
Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraðs
heimsótt
Nú lá leiðin í sjúkrahúsið. Jóhann
Einvarðsson, sjúkrahússforstjóri tók þar á
móti biskupi og fylgdarljði ásamt
Hrafnkatli Óskarssyni, yfirlækni, Ernu
Björnsdóttur, hjúkrunarforstjóra og
Sólveigu Þórðardóttur, yfirljósmóður.
A stuttum fundi, með þeim, kom m.a.
fram að sjúkrarýmið er fullnýtt, en það er
fyrir 18 sjúklinga og 8 sængurkonur.
Vikulegir samstarfsfundir eru mjög
þýðingarmiklir, þar vegur þungt, að góð
samvinna er við sóknarprestana á
Suðurnesjum, en þeir skiptast á um að veita
þjónustu á sjúkrahúsinu.
Síðan heilsaði biskup sjúklingum, sem
biðu þess ásamt hjúkrunarfólki að eiga
helgistund með biskupi og fylgdarliði. Sú
helgistund var með sama sniði og á
Hlévangi.
Hádegisverður
Næst beið biskupshjóna, prófasts og
fulltrúa heimamanna hádegisverður í
veitingasal Glóðarinnar. Þar stóð yfir falleg
sýning Quiltteppa eftir keflvfska fóstru,
Astu Sigurðardóttur.
Undir borðum ríkti frjáls og ferskur andi
eftir að séra Ólafur Oddur fór með
borðbænavers eftir Hallgrím Pétursson.
Margt bar á góma varðandi hagi
Keflvíkinga á Keflavíkurárum biskups og
einnig það sem efst er hér á baugi nú.
Frystihús sótt heim
Eftir hádegisverð var haldið fram á
Vatnsnes og niður í Bás.
í frystihúsinu Sjávarréttum við Básveg
fögnuðu eigendur, Haraldur Jónsson og
Gísli Erlendsson. biskupi og föruneyti. Þeir
skýrðu í sameiningu ganginn í
hráefnisöflun á fiskmörkuðum vítt og breitt
um landið og nýjungar í frystiiðnaði og
sölumálum. Síðan var haldið í
vinnslusalinn. Þar voru 30 konur við flæði-
línuna að pakka ufsaflökum eftir að
flökunarvél og fimir flakarar höfðu, rétt
áður, skilið fisk frá beini.
Komiðvið áhæfingarstöð
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á
Suðurnesjum hefur nýlega sett á stofn
Hæfingar- og þjálfunarstöð að Hafnargötu
90 og þangað var næst haldið. Þar veittu
gestunum móttöku þær Anna Margrét
Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og
Signður Daníelsdóttir, þroskaþjálfi.
Sögðu þær frá verkefnum sem legðust til
skjólstæðingum þeiira, 10 að tölu, að vinna
við og öðrum viðfangsefnum, sem þama er
unnið að.
Biskupi og fylgdarliði gafst síðan kostur
á að kynnast af eigin raun vinnugleði
skjólstæðinganna og leiðbeinenda þeina.
Þroskahjálp á
Suðumesjum
Næst var haldið í húsakynni
Þroskahjálpar á Suðurnesjum á
Suðurvöllum 9. - Ragnarssel -.
Þar fögnuðu og fræddu gesti sína þær
Helga Margrét Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri, Sigríður Eyjólfsdóttir,
forstöðumaður og Ragna S. Ragnarsdóttir,
deildarþroskaþjálfi.
Viðstödd voru 6 dagvistarbörn og
viðmót þeirra leyndi sannarlega ekki
ánægjunni yfir biskupsheimsókn.
Auk dagvistar eru þarna til húsa
ungbamadeild og þjálfunarstöð, vel búnar
til farsæls þroskunarstarfs bæði af starfsliði
og tækjakosti.
í athvarfí aldraðra
Niður á Suðurgötu í athvarf aldraðra,
Hvamm, lá nú leiðin. Þar sátu við
veisluborð um 40 eldhressir aldurhnignir
Keflvíkingar, sem fögnuðu innilega fyrrnm
kaupfélagssendli sínum, herra Ólafi
Skúlasyni, og fylgdarliði.
Þess er hér að geta að sökum lasleika
hafði nú prófastur orðið að hætta þátttöku í
vísitasíu þessa sólríka og fagra dags í
Keflavík.
Þarna í Hvamnti kom það í hlut Elsu
Kjartansdóttur, forstöðumanns starfs
aldraðra í bænum. að ávarpa gestina og
segja frá blómlegu starfi með öldruðum í
bænum. Gat hún sérstaklega Hallberu
Pálsdóttur og Einars organista, sem
fórnfúsra gleðigjafa í athvarfinu allar
stundir.
Elsu til fulltingis var Björgvin Arnason,
félagsmálastjóri og starfsstúlkur, sem
reiddu fram veisluföng.
Undir borðum leiddi organisti og
kórfélagar söng og biskup flutti ávarp.
Lagði hann m.a. áherslu á að minningamar
götnlu og góðu væru sér „dýrmæti í mal til
lífstíðar", og liann væri stoltur yfir því
samfélagi, sem hann hefði hvarvetna kynnst
nánar og betur á ferð sinni hér í dag.
Sóknarnefnarfundur
Klukkan 17 var sóknarnefnd og
starfsfólk samankomið í Kirkjulundi til að
eiga fund með biskupi.
Sóknarnefndarformaður setti fundinn og
stjómaði honum. Að ósk formanns leiddi
biskup okkur í upphafsbæn. Síðan skýrði
formaður frá fyrirhuguðum fræðslufundi
fyrir sóknamefndir og starfsmenn safnaða á
Suðumesjum sem haldinn verður að boði
prófasts í Kirkjulundi 16. okt. n.k. og
dreifðri prentaðri dagskrá fundarins.
FAXI 133