Faxi

Årgang

Faxi - 01.09.1993, Side 15

Faxi - 01.09.1993, Side 15
bær í framför Við hjá Faxa reynum eftir mætti að fylgjast með því helsta sem gerist í sveitaifélögunum á Suðumesjum. En svo hratt líður tíminn, að maður má hafa sig allan við svo merkilegir hlutir fari ekki framhjá manni. Þvívai'það að einn góðan veðurdag fyrir skömmu var strikið tekið til Grindavíkur og fer hér á eftir frásögn af því sem fyrir augu og eyru bar. Ég hafði haft samband við bæjarstjórann, Jón Gunnar Stefánsson, og látið hann vita af ♦ör minni. Taldi hann best fara á því, að hann fengi byggingarfu 11trúa bæjarins, Jón Sigurðsson, til að fylgja mér um bæinn og sýna mér það helsta sem markvert væri að sjá. Væri mér heimilt að mæta á bæjarskrifstofurnar og ná þar í leiðsögumanninn. Eftir að ég hafði eytt lunganum úr deginum með Jóni og fræðst af honum, þá var ég ekki hissa á þessu vali bæjarstjórans. Sundhöll í byggingu Fyrst skoðuðum við nýja sundhöll sem er í byggingu á hinu ágæta íþróttasvæði bæjarins. Er hún staðsett rétt austan við íþróttahúsið. Framkvæmdir hófust haustið 1992 og reiknað er með að þeim Ijúki í mars á næsta ári. Hér er um að ræða sundlaug sem verður 25 metrar á lengd og 121/2 metri á breidd. Þess utan verður sérstök vaðlaug fyrir börnin, vatnsrennibraut og heitir pottar. Rúmgott svæði verður fyrir þá sem vilja stunda sólböð. Búið er að setja niður laugina, en hún er byggð upp af dúkklæddum stálplötum og víu' hún flutt inn frá ltalíu. Þá er langt komið byggingu sundhallai'hússins sem rýma skal búningsklefa og annað það sem tilheyrir starfseminni. Htisið er um 700 fermetrar að stærð og verða búningsklefar fyrir 2(X) manns. Þar verður einnig gufubað og í kjallara verður þreksalur. Hönnuður þessara mannvirkja er Ormar Þór. Er ekki nokkur vafi á, að sundhöllin verður injög fallegt og nytsamlegt mannvirki. Aftur til fortíðar Að undanfömu hefur verið gert stórátak hvað varðar frágang og malbikun bílastæða við íþróttahúsið. En steinsnar frá mátti sjá forvitnileg mannvirki sem þar hafa verið reist í sumar. Þeir sem heimsótt hafa Grindavík að undanförnu hafa efalaust tekið eftir því að búið er að útbúa n.k. torg á svæöinu frá kirkjunni og út að Víkurbrautinni. Auk kirkjunnar eru þarna í næsta nágrenni hús Landsbankans og Félagsheimilið Festi. Þetta svæði hefur verið útbúið á skemmtilegan máta með hlöðnum grjótgarði, grassvæðum og stórum gijóthnullungum. Þetta hefur verið gert á einkai' smekklegan hátt. En vikjum þá aftur að mannvirkjunum sem minnst var á áðan. A einum stað á umræddu svæði gefur að líta hraunnibbu eina, sem er ca. 4 metrar í þvermál. Umhverfis nibbuna hefur mönnum dottið í hug að hlaða upp ýmis konar mannvirkjum úr hraunhellum og torfi í byggingastíl sem minnir á gamla tíma. Þessu er best lýst með þeini tnyndum sem greininni fylgja. Verk þetta varð víst til í sambandi við FAXI 143

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.