Faxi - 01.10.1999, Side 17
FAXI llklólier l!l!l!l
en eitthundrað alþjóðlegir vísinda-
menn, sérfræðingar í umhverfisrann-
sóknum og tengdum málefnum, sam-
an á ráðstefnu til að fjalla unt þessa
spurningu. Það varð niðurstaðan að
þrátt fyrir að hægt væri að afla mikilla
upplýsinga úr umhverfinu með mæli-
tækjum í gerfihnöttum þá bráðvantaði
upplýsingar sem aðeins væri hægt að
afla með mælingum á jörðu niðri. Það
var því ljóst að Globe nemendur gætu
lagl til nauðsynlegar upplýsingar.
Jafnframt urðu menn sammála um að
uppfylla þyrfti eftiifarandi skilyrði til
að tryggja trúverðugleika mæling-
anna:
♦ Færustu vísindamenn yrðu
ábyrgir fyrir því að velja Globe
mæligasvið og staðlaðar mæliaðferðir
sem bæði myndu tryggja að nauðsyn-
legar upplýsingar fengjust og að fram-
kvæmd þeirra yrðu á færi skólanem-
enda. (Globe er ætlað nemendum 6 -
18 ára en sumar mælinganna eru ein-
ungis fyrir þau eldri.)
♦ Vísindamenn myndu sernja auð-
skiljanlegar vinnureglur eða verklýs-
ingar um Globe mælingar sem auðvelt
væri að framfylgja.
♦ Haft yrði eftirlil með gögnum á
öllum stigum mælinga.
♦ Globe nemendum yrði leiðbeint
af kennurum sern hlotið hel'ðu þjálfum
í að framfylgja Globe reglum um
mælingar.
7600 SKÓLAR í 80 LÖNDUM
Globe verkefnið hófst formlega á
degi jarðarinnar þann 25. apríl 1995.
A sl. fjórum árum hafa hafa alls um
7600 skólar í 80 löndum slegist í hóp-
inn. Eins og áður sagði varð Globe
verkefnið til í Bandaríkjunum og er
starfsemin þar rekin með stuðningi al-
ríkisstjórnarinnar, geimferðáætlunar
Bandaríkjanna (NASA) og nokkurra
lleiri stofnana. Á fimmta þúsund skól-
ar í Bandaríkjunum eru þátttakendur í
verkefninu en þegar skólar í öðrum
löndum vilja gerast þátttakendur þá
gerir viðkomandi land samning við
Bandaríkin um það með hvaða hætti
þálttökunni verði komið á. Alls liafa
nú verið gerðir samningar við yfir 80
lönd og er Island þar á meðal. Um-
sjónarmaður Globe á Islandi er Jó-
hann Guðjónsson, kennari við Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði.
HVAÐ ER MÆLT
Eftirtaldir þættir eru uppistaðan í
þeim umhverfismælingum sem í dag
eru gerðar í Globe :
Nemendur FS gera athuganir á gróðurþekju á holtinu við skólann.
ANDRUMSLOFT/VEÐURFAR
Lofthiti- hiti á mælingatíma auk
hæsta og lægsta hita dagsins
Skýjafar - skýjahula og skýjagerð
Úrkoma - dagleg úrkoma, hvort
heldur regn eða snjór.
Sýrustig - til að skrá súrt regn
VATNSMÆLINGAR
Yfirborðshili vatns og gegnsæi
(hversu tært það er)
Samsetning yfirborðsvatns - sýru-
stig, hörkustig, uppleyst súrefni,
nítröt, rafleiðni og selta
JARÐVEGUR
RAKAINNIHALD
Hitastig á mismunandi dýpi
Eiginleikar - gerð, litur, samloðun,
áferð, þéttleiki, kornastærð, sýrustig
og frjósemi
GRÓÐURÞEK.IA
Lífríki
- laufþekja, gróðurþekja á jörðu,
hæð og ummál trjáa, tegundagreining
Landþekja
- hlutfall gróðurþekju
Flokkun
- gróðursamfélagið er flokkað eftir
kerfi frá UNESCO (MUC)
Þessar mælingar eru allar gerðar í
nágrenni við viðkomandi skóla (innan
15 km) og fyrir gróðun'annsóknirnar
eru þá valdir reitir sem eru 30 x 30
metrar að stærð og fara mælingamar
fram eins og áður sagði eftir ákveðn-
um reglum sem eiga að tryggja að þær
séu framkvæmdar eins hvar sent um
er að ræða í heiminum. Eins og sést á
töflunni hér að ofan ættu þessar mæl-
ingar að gefa góða mynd af helstu um-
hverfisþáttum í næsta nágrenni við
hvem skóla.
STÓRKOSTLEGIR
SAMSKIPTAMÖGULEIKAR
Hin hraða útbreiðsla internetsins á
sennilega hvað mestan þátt í þeirri
undraverðu útbreiðslu sent Globe hef-
ur hlotið á aðeins örfáum árum. Allar
mælingar sem Globe nemendur fram-
kvæma eru skráðar eftir ákveðnum
reglum inná heimasíðu Globe :
http://www.globe.gov. Mjög öflugur
hugbúnaður sér síðan um að vinna úr
upplýsingununt og getur síðan hver
sem er nálgast þær upplýsingar og
kynnt sér þær á margvíslegan máta.
Nú þegar eru það fjölmargir vísinda-
menn sem hafa getað nýtt sér þessar
upplýsingar við rannsóknir. Þess utan
er næsta víst að hinar reglubundnu
mælingar og þær útkomur sem þær
gefa auka þekkingu og skilning nem-
endanna á umhverfinu.
ÞATTTAKAISLENDINGA
Vorið 1997 voru þrír kennarar send-
ir á námskeið í Þýskalandi til að læra
um Globe og öðlast réttindi til að
kenna það öðrunt. Þá um haustið fór
verkefnið af stað hjá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og Álftamýrarskóla í
Reykjavík. Hjá Álftamýrarskóla fóru
fram athuganir á veðri og einnig var
vatnið í Tjörninni mælt. Hjá FS
mældu nemendur flest alla þætti.
Tveir nemendur úr FS tóku sumarið
1998 þátt í Evrópuráðstefnu urn Globe
í Finnlandi. Þriðji skólinn, Öldutúns-
skóli í Hafnarfirði, hefur og slegist í
hópinn. Og nú fyrir skömmu fór ffarn
í Álftamýrarskóla fyrsta Globe nám-
skeiðið fyrir íslenska kennara. Nám-
skeiðið var undir stjóm þeima Jóhanns
Guðjónssonar, Þoivaldar Ö. Ámason-
ar og Kristínar Axelsdóttur Globe
kennara við Álftamýrarskóla og var
kennslan að mestu á þeirra höndum.
Meðal annara leiðbeinanda var Dr.
Elissa Levine jarðvegssérfræðingur frá
NASA og Freysteinn Sigurðsson sér-
fræðingur á orkustofnun. Þátttakendur
voru um fimmtán talsins hvaðaðæva
af landinu og má því reikna með því
að fljótlega Ijölgi þátttökuskólum hér-
lendis. Verður rnjög forvitnilegt að
fylgjast með framvindu verkefnisins í
framtíðinni.
HH
FAXI 65