Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1999, Síða 22

Faxi - 01.10.1999, Síða 22
FAXI OklóliiT 199» i i Benedikt B. (iuðmundsson við eitt af skipsmódel þeim sem hann hefur sett saman. Þetta er Gutty Sark. Svona segl- skip nefndust klipperskip. Þau þóttu hraðskreið og var Guttý Sark notuð til teflutninga milli Englands og austur- landa einkum Kína. Ljósm. KAJ. Að aldnir sjósóknarar drepi niður penna er að mínu mati allt of fátítt. Þess vegna var það mér sérstakt ánægjuefni þegar ég komst á snoðir um að vinur minn og frændi Bene- dikt B. Guðmundsson á slíkt til í bland með annarri eljusemi sinni. Nú var mér nokkur vandi á höndum að nálgast það ætlunarverk mitt að fá hann til að fallast á að við hjá Faxa fengjum frásöguþátt frá hans hendi til birtingar í blað- inu. Fljótlega gat ég nú kríað út vandlega skrifaða örk en fyrst í stað með því skilyrði þó, að hans yrði ekki getið sem höfundar. Um síðir féllst hann þó á að ég mætti geta hans að nokkru varðandi það sem hér birtist og þá ekki síst vegna þess að hann vildi að það færi alls ekki milli rnála að skipstjóri á m/b Jóni Dan vetrarvertíðina 1942 hefði verið Axel Pálsson. Einnig varð Benedikt fús til að bæta í frásögnina nöfnum skipsfélaga sinna sem allir munu nú gengnir. Á vetrarvertíðinni 1942 var ég há- seti á m/b Jóni Dan GK 341, frá Vog- um, sem var danskbyggður 22 tonna bátur. Albert Bjamason og Axel Páls- son voru með bátinn á leigu og hann var gerður út héðan frá Kcllavík. For- maður á bátnum var Axel Pálsson, sá sómamaður. Auk okkar voru í áhöfninni þeir Herbert Eyjólfsson vélstjóri, Guðjón Valdimarsson og aðkomumaður sem kallaður var Tani. Við fórum fyrsta róðurinn strax í byrjun janúar. Það var ágætis veður og vorum við að tala um hvað gott væri að fá svona veður í fyrsta róðri. Við lögðum af stað í róðurinn kl.l að nóttu. Af því þetta var á stríðstímum, var bannað að útvarpa veðurfregnum. Þegar komið var á miðin var línan lögð og allt gekk eins og best var á kosið. Línan var látin liggja í tvo og hálfan tíma og rétt fyrir klukkan átla var ræst út til að fara að draga. Þá var byrjað að kula á suðaustan og lljótlega var komin hörkubræla. Þrátt fyrir 70 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.