Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2007, Blaðsíða 6

Faxi - 01.05.2007, Blaðsíða 6
Bryggjuhúsið, sem hér er á miðri mynd, bar nafn með rentu. Á þessari mynd er verið að afgreiða tunnur á bryggjunni, til eðafrá vörugeymslunni. Brugghúsið er lengst til hœgri. Verslunarhús Duusverslunar eru í baksýn. honum kynntust, rak hann verslunina með mikilli fyrirhyggju og naut almenns trausts“. Verslun Duus efldist undir styrkri stjórn Krist- jönu og Hans Peters. Fögur og háreist húsin risu í Keflavík. Þrem árum eftir að Hans Peter og Daníel taka við fyrirtækinu láta þeir reisa nýtt verslunar- hús yfir búðina sem stendur enn í dag og er kölluð „Gamla búð”. Sex árum síðar reisa þau Hans Peter og Kristjana nýtt pakkhús „Bryggjuhúsið“. Leysti það af hólmi, sams konar byggingu, sem hafði verið reist í tíð einokunarverslunarinnar. I dag er Menn- ingar - og listamiðstöð Reykjanesbæjar til húsa norðan við pakkhúsið. Fischersverslun Sama ár og pakkhúsið er byggt kemur til Keflavíkur Waldimar Fischer sem hafði keypt verslun Siemsen sem var fyrir í þorpinu. Fjórum árum síðar byggði Waldimar Fischer hús sem eflaust hefur stungið í stúf við aðrar byggingar í þorpinu, og var þá talið fallegasta húsið á öllu Suðurlandi. Húsið var flutt hingað tilsniðið frá Danmörku, hver spýta var merkt áður en húsinu var pakkað niður, og það síðan reist í Keflavík án þess að einn einasti nagli væri notaður í grindina, húsið var allt geirneglt. Fischershús stendur við Hafnargötu 2 og hýsir Galley Björg. Vinsældir Duushjónanna Hans Peter og Kristjana öfluðu sér vinsælda meðal Suðurnesjamanna og verslun þeirra þótti rekin af framsýni og stórhug. Þau eignuðust 3 börn sem öll fæddust í Keflavík. Árið 1881 veiktist Hans Peter kaupmaður, þá fluttu þau alfarin til Kaupmanna- hafnar í þeirri von að Hans Peter fengi lækningu þar. H.P. Duus lést 3 árum síðar eða árið 1884 að- eins 55 ára. Þá var Kristjana 40 ára með þrjú börn á Pétur Duus framfæri sem voru á aldrinum 8,6 og 4 ára. Kristjana Duus og Ólafur Olavsen Frú Kristjana Duus stjórnaði versluninni eftir lát manns síns og fékk til liðs við sig yngsta bróð- ur sinn Ólaf Ásbjörn Sveinbjörnsson sem kallaði sig Ólaf Olavsen. Hann varð seinna meðeigandi í Duusverslun. Ólafur Olavsen var giftur Ásu Jacobsen hún var systur Egils Jacobsens kaupmanns í Reykjavík. Þau fluttu til Kaupmannahafnar árið 1886 og Ásta Tómasdóttir Bech urðu aldrei búsett eftir það hér á landi. Ása var barngóð með eindæmum. Hún kom nokkr- um sinnum til Islands og þá til Keflavíkur og bauð þá öllum börnum í þorpinu heim til sín og hélt þar miklar veislur með tilheyrandi veitingum. Ása stóð fyrir jólatrésskemmtun fyrir börn á hverju ári og stjórnaði þvf frá Kaupmannahöfn ef hún komst ekki sjálf á staðinn. Skemmtunin var haldin á neðstu hæðinni í Pakkhúsinu en þar var stór salur sem notaður var sem fiskigeymsla. Salurinn var pússaður og þveginn. Þar var sett stórt jólatré á mitt 6 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.