Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2007, Blaðsíða 20

Faxi - 01.05.2007, Blaðsíða 20
Runóljur Ágústsson, framkvœmdastjóri Keilis. Vopnin kvödd: Herstöð verður að lœrdómssetri Talið er að milli 15-17 þúsund manns hafi heim- sótt gömlu varnarstöðina á Miðnesheiði sunnu- daginn 20. maí s.l. til að kynna sér aðstöðu til háskólanáms sem á að hefjast á hausti komanda. Keilir, ný miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, hefur lagt undir sig allstóran hluta gamla varn- arsvæðisins og ætlar að bjóða upp á fjölþætt há- skóianám auk ódýrustu ncmendaíbúðir á landinu og ókeypis áætlunarferða fyrir nemendur milli Reykjavíkur og nýja háskólasvæðisins. Fram- kvæmdastjóri Keilis er Runólfur Ágústsson, fyrrv. rektor háskóians á Bifröst, en stjórnarformaður er Árni Sigfússon bæjarstjóri. Háskólanám sem útflutningsgrein „Keilir ætlar að nálgast menntun á Islandi með alveg nýjum hætti“, segir Runólfur í samtali við Faxa. „Við ætlum að byggja upp alþjóðlegt háskóla- samfélag hér á Vellinum, sækja fram fyrir hönd ís- lenskra háskóla og laða til okkar erlenda nemendur. Við viljum leiða saman fyrirtæki og háskóla, þekk- ingu og fjármagn, hvoru tveggja til nýsköpunar og útrásar í íslenskum menntamálum. Við viljum gera háskólanám á íslandi að útflutningsgrein með sama hætti og gerst hefur á sviðum verslunar, fjármála, bankamála og í fjölmörgum öðrum greinum hér- lendis á undanförnum árum. Samstarf við Háskóla íslands er lykilatriði í þessari framtíðarsýn og há- skólanámið verður vottað í samræmi við gæðakröf- ur Hí. Markmiðið er að leiða saman háskóla og atvinnulíf, þekkingu og fjármagn. Hlutafélagið Keilir verður þannig rammi utan um fjöbreytta og margþætta starfsemi. Keilir er öflugt fyrirtæki strax í upphafi með þrjá sterka og nokkurnveginn jafn- stóra hluthafahópa. Háskóli Islands er stærstur með 100 milljónir, nokkur öflug íslensk útrásarfyrirtæki eins og Glitnir og Icelandair koma næst. Fyrirtæki Hermenn við friðsamlega afþreyingu í bragga á Keflavíkurflugvelli 20 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.