Faxi - 01.05.2007, Qupperneq 7
Hans Pétur Duus
gólfið og stoðir og veggir tjölduð dúkum. Dansað
Var í kringum jólatréð og sungin jólalög.
Ólafur Olavsen
Arið 1900 kaupir Ólafur Olavsen allar eignir
Fichersverslunar. Kom fram í tilkynningu um
eignaskiptin að kaupandinn hyggðist reka verslun
fyrir eigin reikning í húsunum, en ekki varð að
þessari samkeppni því nokkrum mánuðum seinna
seldi Ólafur þessar eignir til H. P. Duus verslunar-
'nnar. Flutti þá Duusverslun starfsemi sína í nýja
íbúðar- og verslunarhúsið. Þegar flutningarnir eiga
ser stað tilkynnti Ólafur viðskiptavinum sínum að
°Pnuð yrði sölubúð í fyrrverandi verslunarhúsum
herra Knudtzons í Keflavík “og verða þar seldar alls-
konar vörur með lægsta verði gegn borgun í pen-
•ngum”. Sumar munnmælaheimildir telja að þessi
verslun hafi verið vínbúð. Sé það rétt var það fyrsta
serverslunin í Keflavík á eftir Bakaríinu.
Ágúst Olavsen
Arið 1898 kemur bróðir Kristjönu og Ólafs til Is-
lands frá Ameríku og tekur við verslunarstjórastöðu
1 Duus versluninni. Hann hét Ágúst Egill og var
Sveinbjörnsson, en hann kallaði sig Ágúst Olavsen.
Ágúst var mjög forframaður því hann hafði dvalið
iangdvölum í Danmörku og í Chicago í Ameríku.
Ágúst Ólavsen bjó yfir margskonar ráðagerðum
varðandi Keflavíkurþorpið. Hann hafði mikinn hug
a að fegra bæinn. Hafði hann í huga gatnagerð og
skipulag bæjarins, lét færa hús til og rífa, ef honum
þótti betur fara. Hann hvatti verkamenn verslunar-
mnar og aðra íbúa til þess að byggja sér ný hús og
siuddi þá til þess með því að lána þeim efni og vera
þeini ráðhollur. Voru á næstu árum byggð mörg hús
1 Keflavík, en flest ofursmá.
Á þessum árum hafði sjór gengið mjög á land, þar
Sem lægst var og flætt upp á Hafnargötuna í stór-
síreymi. Ágúst lét byggja mikla varnargarða með
sjónum sem lágu frá norðanverðri Miðbryggjunni
°8 ut í Gróf. Símon Eiríksson steinsmiður var feng-
nn til að vinna verkið. Duusbryggjan sem hafði
Verið byggð úr timbri, var nú fyllt af grjóti til að hún
uéldi betur.
Ágúst hefur að öllum líkindum látið byggja brunn
Sem stendur við Brunnstíg. Til stóð að íbúarnir
Kristjana Duus
borguðu vatnsskatt upp í kostnaðinn og til viðhalds
á brunninum. Þetta gekk ekki eftir menn mótmæltu
vatnsskattinum þegar átti að borga.
Ágúst Olavsen gekk með stóran draum í mag-
anum. Hann var vanur því að geta gengið um listi-
garða Ameríku og langaði til að koma upp blóma-
og trjágarði í Keflavík.
Hann hafði hugsað sér að listigarðurinn yrði stað-
settur fyrir ofan nýja verslunarhús Duus verslunar
sem flutt var frá Danmörku, sem þá var orðið heim-
ili og sölubúð Duusverslunar.
Hafði hann í því skyni látið byggja steingarð stóran
sem að Símon Eiríksson steinsmiður sá um að hlaða
fyrir hann. Hvorki trén né blómin fóru niður í
moldina því Ágúst var fluttur um set til Duusversl-
unar í Reykjavík árið 1909 og lést í Danmörku
skömmu síðar. Það má velta því fyrir sér hvort allar
þessar fegrunaraðgerðir Ágústar hafa orðið of stór
tala í bókhaldi Duusverslunar.
Ágúst giftist aldrei en hann eignaðist eina dóttur
sem hét Ágústa Ólafía. Ágúst hafði ráðskonu á
heimili sínu um langt skeið sem hét Ingibjörg Guð-
mundsdóttir hún tók að sér bróðurson sinn sem
varð síðasti verslunarstjóri Duusverslunar.
Duus verslun var seld árið 1920 með húsum og
mannvirkjum fyrir kr 350.000 kr. Kaupandinn var
Matthías skipstjóri Þórðarson frá Móunt á Kjal-
arnesi.
RannveigL. Garðarsdóttir
(Samantekt úrSögu Keflavíkur 1766 - 1890 og
1890 - 1920 með leyfi höfundar )
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Garðs
við Berghóla að Helguvík
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs auglýsir frá og með 16. maí 2007 breytingar
á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Garðs 1998 - 2018.
Breytingin á aðalskipulagi nær til 958 ha svæðis. í breytingunni felst að stór hluti
svæðis sem áður féll undir varnarsvæði og Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar
2005-2025 verður að svæði í Sveitarfélaginu Garði. Skilgreint er iðnaðarsvæði,
afmarkað er þynningarsvæði vegna starfsemi álvers, gerð grein fyrir orkuöflun
og afmörkuð lega raflína og skilgreindar takmarkanir á landnýtingu vegna ofan-
greindra breytinga.
Gögnin liggja frammi á bæjarskrifstofu til 27. júní 2007. Samhliða eru auglýstar
breytingar á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 1995-2015 og aðalskipulagi Kefla-
víkurflugvallar 2005-2025. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gef-
inn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og skul þær vera skriflegar og
undirritaðar. Frummatsskýrsla HRV um áhrif fyrirhugaðs álvers í Helguvík hefur
verið gefin út og birt á vefnum www.hrv.is . íbúar eru hvattir til að kynna sér til-
lögurnar og frummatsskýrsluna.
FAXI 7