Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2007, Síða 10

Faxi - 01.05.2007, Síða 10
íslensks orkuiðnaðar og þar sem orkuiðnaðurinn er í harðri samkeppni í heimi án landamæra verður nú þegar að hefjast handa við að kanna með öflugum hætti umfang og eðli háhitakerfanna grunnt og djúpt. Á Hellisheiði og á Reykjanesi hefur nú verið lagður grunnur að sérstökum auðlindagörðum hvorum með sínu sniði og sínum sérstöku mögu- leikum. Auðlindagarðurinn, vettvangur þar sem fjöldi skyldra og óskyldra, hlutbundinna og óhlut- bundinna auðlinda koma saman og eru samnýttar í þéttriðnu auðlindaneti ber vott um nýhugsun með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Auðlindagarðurinn í Svartsengi sýnir glöggt hversu frjósamur jarð- vegur auðlindagarðs er, úr honum sprettur fjöldi fjölbreyttra og nýrra hugmynda, nýrra afurða og umfangsmikil og margþætt reynsla aflast, sem erfist frá einni kynslóð til annarrar. Með auðlindagörð- unum í Svartsengi, á Reykjanesi ogá Hellisheiði er hafin ný tegund iðnvœðingar á íslandi, sem er um margt mjög einstök. “ f slenskur háhitaiðnaður tekur á sig mynd eldsneytisiðnaðar Albert Albertsson segir að í hugtakinu og lífs- mynstrinu sjálfbær þróun séu fólgin gildi virk til mjög langs tíma a.m.k. nokkur hundruð ár. „Tilgangur starfsemi Hitaveitu Suðurnesja hf. með skýrum áfangavörðum stika því veg þróunar, nýsköpunar og hagsældar a.m.k. eitthundrað ár fram í tímann. Þetta leggur þær skyldur á herðar Hitaveitunnar að hún skilgreini auðlindir sínar af kostgæfni og skoði í kjöl eðli þeirra og umfang og á hvern hátt unnt sé að samnýta þær. Þetta er ekki hvað síst mikilvægt vegna þess að megin afurðir Hitaveitunnar, heitt vatn, kalt vatn og rafmagn eru frumþarfir einstaklinga, heimila og fyrirtækja nú og í framtíð. Eldsneyti til að knýja alls konar farartæki er orðin frumþörf í nútíma samfélagi. Algengasta eldsneytið er sem kunnugt er kolvetni þ.e. samband kolefnis, vetnis og súrefnis og er nærtækast að nefna bensín og dieselolíu sem dæmi um algengt elds- neyti. í háhitakerfunum felast ákveðnir möguleikar til framleiðslu farartækjaeldsneytis. Þeim mun hærra sem hitastig í jarðhitageymunum er þeim mun meiri möguleikar eru til þess að hagkvæmt gæti reynst að framleiða vistvænt eldsneyti.“ Vetnisframleiðsla möguleg „Áhugi Islendinga á vistvænum orkugjöfum á borð við vetni, áhugi íslendinga á því að koma á vetnisþjóðfélagi á Islandi, stofnun félaganna Vistorku og Nýorku ásamt vetnisvagnaverkefni félaganna hefur ótvírætt beint sjónum manna að því með hvaða hætti íslendingar geti framleitt vetni á vistvænan og hagkvæman hátt fyrir okkur sjálf og til útflutnings. Hitaveita Suðurnesja hf á í háhita- kerfunum gilda möguleika til framleiðslu vetnis og annars vistvæns eldsneytis. Takist með djúpbor- unum að sýna fram á vinnanlegan háhita við 400 - 600 °C aukast verulega líkur þess að Hitaveitan geti framleitt vetni í verulegu magni á hagkvæman hátt. Rætist sú ósk að unnt verði að nýta ylvolgan kælisjó Reykjanesvirkjunar í einhvers konar líf- massaeldi, sem útheimtir súrefni og jafnvel kolsýru gæti virkjunin framleitt súrefni á hagkvæman hátt með rafgreiningu þ.e.a.s. vatn væri klofið í vetni

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.