Faxi - 01.05.2007, Blaðsíða 12
Ragnheildur Sif
Gunnarsdóttir,
forstöðumaöur
Bjargarinnar
-varformlega opnaö þann 4. febrúar 2005
Upphaf Bjargarinnar
Guðrún Ágústa Steinþórsdóttir núverandi
félagi í Björginni hefur í mörg ár glímt við
erfiða geðsjúkdóma. Vorið 2003 fór hún á
fund bæjarstjórans í Reykjanesbæ þar sem
hún benti á þörf fyrir skipulagt félagsstarf
fyrir geðfatlaða á Suðurnesjum. Það var síðan
fyrir tilstuðlan Fjölskyldu og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar, Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra á Reykjanesi og Sjálfsbjargar á Suðurnesj-
um, að þeirri hugmynd var hrint í framkvæmd
og Björgin, athvarf fyrir fólk með geðraskanir
var formlega opnað þann 4. febrúar 2005.
Björgin er rekin með styrkjum frá opinber-
um aðilum, fyrirtækjum og félagasamtökum
Uppbyggingin hefur gengið framar vonum
og greinilegt að þörfin fyrir slíka þjónustu er
mikil. Björgin er eina úrræðið sinnar tegundar
fyrir fólk með geðraskanir á Suðurnesjum en
á svæðinu búa um 20 þúsund manns. Talið er
að einn af hverjum íjórum íbúum þjóðarinnar
þjáist á einhverjum tímapunkti í lífi sínu af
geðröskun.
Rótarýklúbbur Keflavíkur styrkti meðal ann-
ars útgáfu á bæklingi um Björgina. í honum
er að finna helstu upplýsingar um starfsemina.
Þessum bæklingi var meðal annars dreift á
geðdeild Landspítalans, Reykjalundi, Klepp-
spítala, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
félagsþjónustur á Suðurnesjum svo eitthvað sé
nefnt. Stuðningur sem þessi er afar mikilvægur
fyrir uppbyggingu starfseminnar.
Starfsemin
I Björginni er lögð áhersla á þægilegt
andrúmsloft þar sem félagar taka virkan þátt í
starfseminni, eftir getu hvers og eins. Opn-
unartími er frá 10 - 16 virka daga og 13 - 17 á
laugardögum. Morgnarnir eru rólegir og not-
12 FAXI