Faxi

Årgang

Faxi - 01.05.2007, Side 16

Faxi - 01.05.2007, Side 16
Lengi hefur verið talið að Ingólfur Arnarson hafi numið ísland og sest hér að árið 874. Er löngu komin hefð á að tímasetja landnám norrænna manna þetta umrædda ár en raunin er þó sú að Ari fróði nefnir það hvergi í íslendingabók sinni sem hann tók saman áður en hann hóf samantekt landnáma sem þó er í dag aðeins varðveitt í eft- irritum 13. og 14. aldar ritara. Álitið erað ártalið 874 sé einmitt sprottið af útreikningi 13, aldar manna og stafi af óljósum ástæðum. Fyrst birtist það í Sturlubók landnámu á 13. öld. Að því er séð verður nam Ingólfur hér land nokkru fyrr eða nálægt 870 ásamt Hjörleifi Hróðmarssyni, fóstbróður sínum og sátu þeir fyrsta veturinn í höfðunum sem bera nöfn þeirra og enn eru á sínum stað við sanda Suðausturlands. Sennilegt er að Ingólfur hafi sökum vina og veðurs orðið að hlcypa skipi sín í land við Ingólfshöfða til að halda lífi en Hjörleif hrakti lengra vestur með 16 FAXI landi og tók hann land síðan við Hjörleifshöfða en þar var þá fjörður inn í landið svo hann gat haft skipið þar hjá sér. ís og kuldar Skipalægi var hinsvegar ekkert við höfða Ingólfs og undirstrikar sú staðreynd að þar hefur hann orðið að hleypa skipi sínu á land eins og land- námsmenn gerðu margir. Ferðina til fslands 870 höfðu þeir Ingólfur og Leifur undirbúið vandlega og veturinn 864-5 eða 867-8 dvöldu þeir árlangt í Álftafirði eystra og könnuðu þaðan landið. Sáu þeir þá að landið var byggilegra syðra en nyrðra og má vera að þennan vetur hafi verið ís við landið og kuldar svo miklir að þeir hafa áttað sig á hvar byggilegast var sakir hafísa. Til þess bendir meðal annars bústaðaval Ingólfs við Faxaflóa. f vetrardvöl sinni hafa þeir að líkindum siglt umhverfis landið. Ekki getur Landnáma þess hve margir voru í för með Ingólfi og Leifi í ferðinni 870 en þó eru þar þrælar nefndir írskir sem Leifur tók í ferð til frlands árinu áður er þeir héldu í seinni íslandsferð sína. Þó má gera því skóna að margt manna hafi verið með þeim þar sem þeir hugðust setjast að á íslandi. Þess er ekki getið hvort Ingólfur hafi þá verið kvæntur Hallveigu Fróðadóttur en fræðimenn hafa talið að svo væri, til að mynda Guðbrandur Vigfússon í ritgerð sinni um tímatal í íslendingasögum. Eiginkonum þrælanna þyrmt Þar álítur hann að Þorsteinn sonur Ingólfs og Hallveigar hafi dáið um eða nærri miðri tíundu öld, aldraður maður. Aldur hans má meðal ann- ars ráða af forystu hans um stofnun héraðsþings sennilega á árunumm um 900-905. Þar er Ingólfur hvergi nefndur sem stofnandi en landsnámsmenn á Kjalarnesi hvöttu til stofnunar þingsins ásamt fleiri vitrum mönnum í landnáminu sem þó eru

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.