Faxi - 01.05.2008, Qupperneq 2
,, Njarðvíkurkirkja er
gimsteinn í Reykjanesbœ “
- 125 ár jrá því ákvörðun var tekin um byggingu steinkirkju í Innri-Njarðvík
Einar G. Ólafsson í Innri-Njaróvík
hefur séð þær hugmyndir sínar
verða að veruleika að Njarðvík-
urkirkja og gamli Njarðvíkurbærinn, sem
stendur hjá kirkjunni og er nú safnhús
á vegum Reykjanesbæjar, verði opin al-
menningi frá kl. 13-17 frá og með 14. júní
á þessu ári. Endurbætur hafa verið gerð-
ar á kirkjunni og safnhúsinu með dyggum
stuðningi bæjarylirvalda í Reykjanesbæ
en Einar gerði tillögur að þessum fram-
kvæmdum og sá um aó útvega fjármagn
til þeirra.
Einar nefnir Njarðvíkurkirkju „gimstein í
Reykjanesbæ“ en bætir því við að því miður
vilji hún gleymast nema á tyllidögum. í tilefni
opnunar kirkjunnar og safnhússins hefúr Ein-
ar ritað eftirfarandi hugleiðingu fyrir Faxa urn
kirkjuna og endurbæturnar sem nýlega voru
gerðar á henni:
Guðhús á bjargi byggt
Sérhvert ferðalag byrjar með einu skrefi. Svo
var og raunin er þau hjónin Ingveldur Jafets-
dóttirogÁsbjörn Ólafsson, hreppsstjóri í Innri-
Njarðvík, lögðu það til á átaka safnaðarfundi
þegar til stóð að endurbyggja timburkirkju þa
er fyrir var og hann hafði sjálfur reist 1858,
samanber bréf Þórarins prófasts í Görðum sem
birt er með þessari grein, að guðshús bæri að
2. tölublað - 68. árgangur - 2008
Útgcfandi: Málfundafélagið Faxi, Keílavík.
Skrifstofa: Grófin 8,230 Reykjanesbær, pósthólf 182.
Ritstjóri: Eðvarð T. Jónsson, netfang: edvardj(g>gmail.com
Sími 899 4823.
Blaðstjóm: Kristján G. Gunnarsson, formaður,
Kristján A. Jónsson, Helgi Hólm, Karl Steinar Guðnason
og Eðvarð T. Jónsson.
ÖII prentvinnsla: Stapaprent ehf. Gróiin 13c - 230 Keflavík.
Sími 421 4388 - Netfang: stapaprent@mitt.is
Netfang v/auglýsinga: helgiholm@vogar.is
Sími vegna auglýsinga 699 2126
Forsíðumynd: Um borð í Tómasi Þorvaldssyni frá
Grindavík. Ljósmynd: Maria Olsen.
Allir myndatextar í þessu og iiðrum hcftum Faxa eru blaðsins.
2 FAXI