Faxi

Årgang

Faxi - 01.05.2008, Side 4

Faxi - 01.05.2008, Side 4
1 Markaði djúp og merk spor í uppbyggingu Suðurnesja Tómas Tómasson, fyrrv. Spari- sjóösstjóri, lést 28. mars síðastlið- inn á 84. aldursári. Með honum er genginn einn þeirra merku einstaklinga sem mótuðu mannlíf, menningu og fram- farir á Suðurnesjum með margháttuðum störfum um áratugaskeið. Útför Tómasar var gerð frá Keflavíkurkirkju 4. apríl. Tómas fæddist að Jámgerðarstöðum í Grindavík þann 7. júlí 1924. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 28. mars sl. Foreldrar hans voru Jórunn Tómas- dóttir, húsfreyja, f. 31. mars 1890, d. 3. október 1966 og Tómas Snorrason, skólastjóri og leið- sögumaður, f. 29. ágúst 1872, d. 20. desember 1949. Maki, 6. desember 1952, Halldís Bergþórs- dóttir, f. 23. september 1926. Foreldrar henn- ar vom Ásgerður Skjaldberg, húsfreyja, f. 31. maí 1894, d. 19. janúar 1993 og Bergþór Berg- þórsson, bóndi, hótelhaldari og verkamaður, f. 13. maí 1893, d. 17. nóvember 1967. Börn Tómasar og Halldísar 1. Ásgerður Kormáksdóttir gift Jóni R. Jó- hannssyni. Þeirra böm eru: a. Jóhann Gunnar Jónsson , b. Halldís Jónsdóttir. Maki Halldísar er Sigurður Ingimundarson og börn þeirra eru Nói Sigurðarson og Frosti Sigurðarson. 2. Jómnn Tómasdóttir, sambýlismaður Skúli Thoroddsen. Dóttir þeirra er Halldís Thorodd- sen. 3. Halla Tómasdóttir gift Pálma B. Einars- syni. Börn þeirra em: a. Linda B. Pálmadóttir, sambýlismaður Björn Vilberg Jónsson. Dóttir þeirra er Jórunn, dóttir Lindu er Þórdís Halla Gunnarsdóttir. b. Jómnn Pálmadóttir, látin 2004. c. Finna Pálmadóttir, sambýlismaður Guðjón Árni Antoníusson, d. Tómas Pálma- son. 4. Bergþóra Tómasdóttir, sambýlismaóur Tómas Tómasson var forseti bœjarstjórnar í Kejiavik frá 1970-1986. Enginn hefur gegnt embœttinu lengur í bæjarfélaginu. Stefán Eyjólfsson. Dóttir þeirra er Bryndís Stefánsdóttir. 5. Tómas Tómasson, sambýliskona Svala B. Reynisdóttir. Sonur þeirra er Tómas Tóm- asson. Náms- og starfsferill Tómas lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1943. Hann lauk cand. juris prófi frá Háskóla Islands árið 1950 og fékk réttindi sem héraðsdómslögmaður 1951. Tómas stundaði lögfræðistörf á Akureyri frá 1950 til 1951 og var jafnframt ritstjóri Islend- ings. Hann starfaði sem fulltrúi hjá bæjarfó- getaembættinu í Keflavík frá 1954 til 1961. Frá þeim tíma og allt fram til þess að hann tók við starfi sparisjóðsstjóra við Sparisjóðinn í Kefla- vík árið 1974 rak hann eigin lögfræðiskrifstofu og fasteignasölu í Keflavík. Félagsmál Tómas vann alla tíð ötullega að félagsmálum. Hann var formaður Stúdentaráðs HÍ frá 1947 til 1948. Hann var einn af stofnendum Lions- klúbbs Keflavíkur og fyrsti formaður klúbbs- ins. Hann var umdæmisstjóri Lionshreyfing- arinnar á íslandi frá 1960 til 1961. Hann var jafnframt einn af stofnendum Oddfellowstúku í Keflavík árið 1976 og fyrsti yfirmeistari 4 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.