Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2008, Síða 5

Faxi - 01.05.2008, Síða 5
hennar auk þess sem hann átti sæti í yfirstjóm reglunnar á íslandi. Stjórnmál Tómas var ætíð mikill áhugamaður um sveita- stjómarmálefni og sterkur talsmaður samein- ingar minni sveitafélaga í stærri einingar. Hann var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Keflavík frá 1954 til 1962 og síðan frá 1970 fil 1986. Hann var varaforseti bæjarsjórnar frá 1954 til 62 en forseti bæjarstjórnar frá 1970 til 86. Hann var formaður bæjarráðs i átta ár, frá 1954 til 62. Hann lagði hönd á plóg til margra góðra verka í sínum heimabæ. Tómas sat í margvíslegum nefndum og stjórnum á vegum Keflavíkurbæjar og i samstarfi sveitafélaga á Suðurnesjum. Hann var í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins frá 1975 til 1979. Árið 1978 var hann kosinn af Alþingi til setu í stjórnarskrár- nefnd. I ininningu ástríks eiginmanns ogfóður Hann er brimgarðurinn sem öldur lífs okkar brotna á Hann er vindurinn sem hvíslar viskunni í eyru okkar Hann er regnið sem ræsir fram sorgina Hann er máninn sem brosir til okkar í myrkrinu Hann er sólin sem sveipar okkur birtu og yl Hann er skærasta stjarnan sem lýsir okkur leiðina í nóttinni. Hann er skjólið okkar. Jórunn Tómasdóttir Tómas Tómasson er látinn. Hann vissi hvert stefndi, var við öllu búinn og tók orðnum hlut af yfirvegun og æðruleysi. Hvítblæði tók stjórn á atburðarásinni í lok febrúar, upphaf að endinum. Þeim fyrirsjáanlegu úrslitum mætti Tómas í styrk trúar og það var eins og honum léki fremur forvitni á að kynnast endalokunum en að kvíða þeim. Hans hinsta för varð honum að athyglis- verðum ferli. Dæmigert fyrir Tómas, að vilja kynnast málum að eigin raun, láta ekki segja sér. hannig voru líka mín fyrstu kynni af Tómasi, aö hans frumkvæði, fyrir um tveim áratugum. Hann bankaði óvænt uppá, áður en Jórunn dóttir hans hafði haft tækifæri til að kynna mig fil Qölskyldunnar. Þá þegar var mér ljóst að Tómas og Halldís, kona hans, á yngri árum í Albert Hall. Tómas og Halldís á Þingvöllum ásamt Guð- björg Samúelsdóttur. þar fór höfðingi og húmanisti, mannvinur með útgeislun, foringi. Tómas var afar vel greindur og hafði ástríðu fyrir aukinni þekkingu og símenntun. Hann var víðsýnn og skýr, óvenju bóngóður og hjálpfús og vildi greiða hvers manns götu án þess að ætlast til nokkurs fyrir sinn snúð. Ég hef fyrir satt að lögmannsstörf hafi oftar enn ekki verið unnin án endurgjalds. Honum fór því ljárhagslega betur að stunda launavinnu en reiða sig á sjálfstæðan rekstur, enda fór það svo að honum var trúað fyrir ábyrgðarstörfum í sínu samfélagi. Hann var óumdeildur leiðtogi sjálfstæðis- manna í Keflavík um árabil og forseti bæjarstjómar þar í 16 ár, lengur en nokkur annar. Það óvenjulega við Tómas i pólitíkinni var sú bjargfasta lífsskoðun hans að vinna samfélaginu gagn, ekki til eigin frama. Að hygla sér eða mylja undir sína var ekki hans stíll. Hann hafnaði öruggu þingsæti, vildi heldur nota hæfileika sína lieima í héraði. Hann var talsmaður sameiningar sveitar- félaga vegna þess að það var skynsamlegt, hagkvæmt og mundi styrkja nærþjónustu á svæðinu. Hann lét sig menntamál varða, var einn öflugasti frumkvöðull að stofnun Fjölbrautaskóla Suðurnesja og að þangað yrði ráðinn hæfasti stjórnandi. Skipti þá ekki máli þó sá hinn sami kæmi úr röðum hörðustu andstæðinga i pólitik. Slíkt var aukaatriði. Af mikilli framsýni var hann hvatamaður að stofnun Hitaveitu Suðumesja, fyrirtækis í þágu samfélagsins. Þá skipti máli að öll sveitarfélögin á Suðumesjunt væru með FAXI 5

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.