Faxi - 01.05.2008, Qupperneq 8
Eövarð T. Jónsson:
Skömmu eftir hádegi fimmtudaginn
21. janúar 1932 hélt Keflavíkurbát-
urinn Hulda GK 472 af stað frá
Reykjavík áleiöis til heimahafnar. Bátur-
inn hafði komið til viðgerðar í Reykjavík
þremur dögum áður og lá við Steinbryggj-
una í Reykjavíkurhöfn þar til viðgerð
lauk 20. janúar. Rætt hafði verið um að
Hulda héldi samdægurs til Keflavíkur en
formaðurinn, Páll Magnús Pálsson, ákvað
að fresta förinni til næsta dags. Þrír menn
voru um borð við brottför auk formanns-
ins: Magnús Sigurðsson vélstjóri, Dag-
bjartur Guðbrandsson, háseti, og Jóhann
Ingvason, fyrrverandi oddviti í Keflavík.
Dagbjartur, tvítugur að aldri, hafði ný-
lega verið ráðinn á Huldu og var þetta
fyrsta ferð hans með bátnum. Jóhann
var farþegi í þessari ferð. Fimmti mað-
urinn, Erlendur Sigurðsson bróðir Magn-
úsar vélstjóra, ætlaði einnig með Huldu til
Keflavíkur þennan dag. Hann var kom-
inn um borð þegar leysa átti landfestar en
hætti skyndilega við og stökk í land þegar
báturinn var að leggja frá.
Örstutt vélarstöðvun
Nokkrir menn voru staddir á Steinbryggj-
unni þegar báturinn lagði úr höfn. Meðal þeirra
var Símon Gíslason, vélamaður á Merkúr frá
Keflavík. Þegar Hulda var að fara út með þeim
hluta bryggjunnar sem var í sjó snerist afturendi
bátsins upp að bryggjunni og vélin stöðvaðist
sem snöggvast. Símon bar við réttarrannsókn
síðar að hann hefði ekki séð hvort spaðarnir
hefðu rekist í bryggjuna enda var hún í sjó og
hann sjálfúr í nokkurri fjarlægð. Taldi Símon
sennilegt að vélin hefði stöðvast annaðhvort
vegna þess að spaðarnir hafi slegist í bryggjuna
eða vélamaðurinn kúplað frá til þess að koma í
veg fyrir að slíkt gerðist. Vélin fór strax af stað
aftur og báturinn sigldi úr höfn.
Báturinn sást síðast frá Gróttu
Stinningskaldi var þegar Hulda lagði af stað
Frú Steinbryggjunni i Reykjavík um 1930. Mynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
8 FAXI