Faxi

Årgang

Faxi - 01.05.2008, Side 9

Faxi - 01.05.2008, Side 9
: eftir hádegi og brátt skall á hvassviðri með dimmum hryðjum. Um fjögurleytið sá Har- aldur Jónsson, bóndi í Gróttu, til Huldu um 2 sjómilur suðvestur af Gróttu. Gerði þá suðvest- anhryðju og hvessti svo mjög að Haraldur taldi yíst að báturinn myndi snúa við til hafnar. Svo varð þó ekki. Hulda hélt áfram og miðaði vel að því er virtist. Hryðjan stóð í um 20 mínútur °g syrti mjög í lofti meðan hún gekk yfir. Þeg- ar henni slotaði skyggndist Haraldur aftur eftir bátnum en sá ekkert, hvorki ljós né annað. Þá var farið að skyggja og hryðjurnar orðnar svo þéttar að lítt birti upp á milli þeirra. Haraldur var vanur að tilkynna Hafnarskrifstofunni ef honum þótti eitthvað athugavert við ferðir báta en svo var ekki í þetta sinn enda Keflvíkingar, að hans sögn, vanir að fara fram hjá Gróttu í vondum veðrum. Þetta var í síðasta sinn sem sást til vélbátsins Huldu. Báturinn hvarf inn í skammdegissortann og til hans og mannanna um borð spurðist aldrei aftur. Leit hafin Þegar Hulda kom ekki fram fóru menn að ottast um afdrif hennar og að sögn reykvísku blaðanna var símað í allar áttir til þess að grennslast fyrir urn bátinn. Rúmum sólarhring eftir að hann fór frá Reykjavík var varðskip- ið Þór sent til leitar. Slysavamafélagið lét jafnframt útvarpa áskorun til skipa og báta á Faxaflóa að svipast um eí'tir Huldu. Meðal báta sem leituðu var mb. Súðin sem var að koma að vestan. Varðskipið kom aftur til hafnar á laugardagsmorgun og hafði þá leitað alla leið vestur fyrir Þormóðssker en einskis orðið vart. Þórsmenn höfðu þó séð olíutunnu á reki á milli eyjanna. Þann 26. janúar rak bómu úr vélbáti og hurð af stýrishúsi á land á Akranesi. Töldu menn að hvortveggja væri úr Huldu. Var Huldu neitað um olíu? Þegar ljóst þótti að báturinn hefði farist flutti Morgunblaðið þær fregnir að Verkamálaráð Alþýðusambands íslands hefði beitt sér fyrir því að honum hafi verið neitað um oliu fyr- ir brottför. Heimildarmenn fyrir þessari frétt voru útgerðaraðilar i Keflavík. Morgunblaðið staðhæfði 23. janúar að vegna afgreiðslubanns sem Verkamálaráðið hafði nýverið sett á Kefla- víkurbáta hefði Hulda hvorki fengið afgreidda olíu né vistir þegar hún ætlaði af stað þrátt fýrir tilraunir til að útvega þessar nauðsynjar í Reykjavík, Hafnarfirði og víðar. Báturinn var þannig að sögn blaðsins „rekinn olíulaus og allslaus út á sjó“. Morgunblaðið segir þó að einhverjar olíubirgðir hafi verið um borð og báturinn hafi því farið í útsynningsroki upp á von og óvon um að olían mundi endast - og það hefði hún líklega gert í góðu veðri. Með Bátshvarfið olli mestu deilum íslenskrar verkalýðssögu r þessu tölublaði Faxa birtist fyrsti hluti ítarlegrar frásagnar um hvarf vélbátsins Huldu frá Keflavík. Bát- urinn lagði út höfn í Reykjavík þann 21. janúar 1932 og síðan spurðist ekki til hans meira. Bátshvarfið olli einhverj- um hatrömmustu deiluni sem um getur í íslenskri verkalýðssögu. Ásakanir um mannrán, misþyrmingar, skemmdarverk og jafnvel morð gengu á milli deiluaðila, samtaka launþega og atvinnurekenda. Deilurnar urðu til þess að nýstofnað Verkalýðsfélag Keflavíkur var lagt niður fáeinum dögum eftir sjóslysið. Ætla má að sá harmur sem var kveðinn að öllu byggðarlaginu við fráfall þeirra sem fór- ust með Huldu hafi átt ríkan þátt í að yfirgnæfandi meirihluti verkamanna greiddi atkvæði með niðurlagningu síns eigin félags í janúar 1932. Verkalýðs- félagið var endurreist tæpu ári síðar undir nafninu Verkamannafélag Kefla- víkur (síðar Verkalýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur). Þegar þessir atburðir gerðust var heim- skreppan gengin í garð á íslandi og hún olli þungum búsiljum í sjávarplássum suður með sjó. Árið sem Hulda fórst voru auglýst í Lögbirtingi 6 nauðungaruppboð á fasteign- um í Keflavík, allar í eigu útgerðarmanna eða vélbátaeigenda í þorpinu. Þessi áföll skýra að einhverju leyti hörð viðbrögð útgerðarmanna við nýjum og vaxandi samtökum verkafólks og kröfum þeirra um samningsrétt fyrir hönd sjómanna og landverkafólks. í eftirfarandi frásögn er stuðst við umfjöllun í fjölda bóka, blaða og tímarita um Keflavík- urdeiluna svonefndu og hvarf Huldu. Blöðin eru Morgunblaðið, Alþýðublaðið og Vísir á tímabilinu janúar-júní 1932. Timinn kom út einu sinni i viku á þessum árum en ekki verður séð að blaðið hafi nokkru sinni minnst á hvarf Huldu né deilumálin í Keflavík fyrri hluta árs 1932. Stuðst er einnig við grein- argóða skýrslu lögreglustjórans í Reykjavík sem tekin var við rannsókn málsins. Þá var rætt við eldri Keflvíkinga sem muna þessa atburði og sérfróða aðila sem þekktu vel til vélbáta á þessum tímum. Vélbáturinn Eining (síðar Hulda) var skráð í GK umdæmi 26. júlí 1916. Eigandi var Jón Jónsson í Junkaragerði og fleiri. Báturinn var seldur Magnúsi Pálssyni og sex öðrum 28. apríl 1917 og nafni hans breytt í „Hulda“ árið eftir. Fyrstu meðeigendur Magnús voru þeir Guðmundur Hannesson, Helgi Jensson, Guð- mundur Árnason, Páll Magnússon, Sigurður Gunnarsson, Guðmundur Sigvaldason og Jón Jónsson í Junkaragerði. Síðar keyptu bæði Jóhann Ingvason og Jón Gunnarsson Pálsson hlut í bátnum. Magnús hafði ásamt öðrum verið formaður á Huldu frá 1916. Hulda var lengd árið 1922 og mældist 11.11 rúmlestir brúttó eftir lengingu. Tvívegis var skipt um vél í bátnum, fýrst 1919 (Alpha 22 h.a.) og síðan 1929 (Skandia 40. h.a. tvígengis). Eigandi bátsins árið 1929 var skráður fyrr- nefndur Magnús Pálsson í Keflavík. Fullt nafn hans var Páll Magnús Pálsson eins og fram kemur á skráningarvottorði. Magn- ús var meðal virtustu og aflasælustu skips- stjómenda í Keflavík á þessum tíma eins og fram kemur í ummælum samtiðarmanna og aflaskýrslum. í eftirmælum er hann sagður hafa verið „hinn athugulasti og aðgætnasti af formönnum í Keflavík, en jafnframt hinn ötulasti." FAXI 9

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.