Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2008, Síða 11

Faxi - 01.05.2008, Síða 11
PáU Magmís Pálsson, formaður á Huldu. Skuldinni skellt á Verkamálaráðið Strax og mönnum varð Ijóst að Hulda hefði larist skelltu útgerðarmenn í Keflavík skuld- ■nni á verkalýðsforystuna. Föstudaginn 22. Janúar sendi félag þeirra Verkamálaráði ASI svohljóðandi skeyti: „Vélbáturinn „Hulda“ ekki kominn fram. Eftir góðum heimildum leljum við Verkamálaráðið í Reykjavík ábyrgt fyrir bát og mönnum." Ekki er þess getið hvaða heimildir útgerð- arnienn hefðu fyrir þessum grafalvarlegu ásök- unuin. Alþýðusambandsstjórnin var á fundi þegar skeytið barst frá Keflavík. Hún brást hart við og mótmælti skeytinu sem ósönnum og ærumeiðandi áburði. Verkamálaráð ASI sendi tafarlaust kæru til lögreglustjórans í Reykjavík, dagsetta 23. jan. 1932, og krafð- ist þess að opinber réttarrannsókn fari fram út af brottför mb. Huldu þar sem útgerðarmenn í Keflavík hafi dróttað að ráðinu glæpsamlegu atferli. Undir kæruna skrifa Héðinn Valdimars- son, Jón Axel Pétursson, Ólafur Friðriksson og Jóhanna Egilsdóttir. Blaðadeilur hefjast Ofsafengnar blaðadeilur hófust nú um málið og komu þar við sögu öll reykvísku dagblöðin, Morgunblaðið, Alþýðublaðið og Vísir. Gengu þau tvö fyrstnefndu harðast fram í orrahríð- inni. Alþýðublaðið segir 23. janúar að „Morg- unblaðsliðið“ beri þær sögur út á meðal fólks að verkamenn í Reykjavík hafi skorið á land- festar Huldu og hrakið vélbátinn olíulausan frá bryggju. Blaðið segir þennan áburð sví- virðilegan og ekki samboðinn mönnum sem siðaðir vilji teljast. Bátsverjar hafi aldrei lent í nokkurri deilu við alþýðusamtökin enda hafi báturinn ekki kornið til Reykjavíkur í neinu banni, hvorki frá félaginu í Keflavík né verka- málaráðinu. Blaðið segir síðan: „Rétt áður en báturinn fór áttu menn tal við skipverja og kváðust þeir hafa næga olíu, gætu jafnvel miðlað öðrum og ekkert vera að vanbúnaði. Er þetta vottfast." Gætinn og athugull formaður I frásögnum blaðanna og viðmælenda þeirra kemur fram að Magnús Pálsson hafi verið þekktur sem gætinn og athugull formaður. Óhugsandi var talið að hann hefði lagt af stað í tvísýnu veðri með ónóga olíu og þannig stefnt báti og skipverjum í hættu að þarflausu. I framhaldi af þessu ber Morgunblaðið aftur sína eigin frétt um olíuleysi Huldu. Blaðið seg- ir þann 24. janúar að „samkvæmt símtali við Keflavík“ sé því ekki þannig varið að vélbátinn Huldu hafi vantað olíu þegar liann lét úr höfn. Hinsvegar hafi Huldu vantað smurningsolíu og Magnúsi heitnum hafi verið ómögulegt að ná í smurningsolíu „sökum ofstopa og hótana verkamálaráðsins“. Sú skoðun að Hulda hefði hrakist olíulaus úr höfn var mjög lífseig eins og sjá má af frásögn Gunnars M. Magnúss í bók hans Ar og dag- ar. Upptök og þróun alþýðusamtaka á Islandi 1875-1934. Þar segir að báturinn hafi ekki fengið „afgreidda olíu eða aðrar nauðsynjar sakir afgreiðslubanns Verkamálaráðs." Lögreglurannsókn hefst Hennann Jónasson, sem gegndi embætti lög- reglustjóra í Reykjavík, lét þegar í stað helja rannsókn á ásökunum Morgunblaðsins og út- gerðarmanna í Keflavík. Rannsóknin beindist fyrst og fremst að því að kanna hvort Hulda hafi verið hrakin úr höfn með hótunum um skemmdarverk eftir að fyrirtæki í Reykjavík og víðar höfðu neitað henni um olíu til brott- fararinnar. Mánudaginn 25. janúar var réttur settur á skrifstofu lögreglustjóra og haldinn í forföllum Hermanns af fulltrúa hans Jónatan Hallvarðs- syni með vottum. Dómarinn lét þess getið strax í upphafi að samkvæmt upplýsingum frá hafnarskrifstofunni hafi mb. Hulda komið lil Reykjavíkur 18. janúar síðdegis og farið þrem- ur dögum síðar, 21. janúar, laust eftir hádegi. Réttarrannsóknin stóð í tæpan mánuð og lauk 23. febrúar. Alls voru tólf manns kall- aðir til yfirheyrslu, þar á meðal allir meðlimir Verkamálaráðs ASI. Verkalýðsforinginn yfirheyrður Sá fyrsti sem kvaddur var fyrir réttinn var Héðinn Valdimarsson, formaður verkamanna- félagsins Dagsbrúnar. Héðinn var einn helsti verkalýðsforingi landsins og jafnframt fram- kvæmdastjóri Olíuverslunar íslands, en það fyrirtæki hafði hann stofnað árið 1928. Héðinn skýrði frá því fyrir réttinum að engar sérstakar ráðstafanir hefðu verið gerðar af hálfu Verka- málaráðsins né Dagsbrúnar gegn mb. Huldu frá Keflavík meðan báturinn lá í Reykjavík. Hinsvegar hefði Jón G. Pálsson útgerðarmaður í Keflavík hringt í sig kvöldið áður og ákært sig fyrir að vera valdur að slysförum Huldu. Hefði Jón byggt þær sakagiftir á því að Héð- inn ætti sæti í Verkamálaráðinu sem hefði gert bátnum ómögulegt að vera í bænum. Jón sagði í þessu símtali, að Magnús Pálsson hefði hringt til konu sinnar skömmu áður en hann fór frá Reykjavík og sagt henni, að hann gæti ekki haldist við í bænum sakir óeirða. I lögreglu- skýrslunni segir að Jón hafi ekki byggt ákæru sína á öðru en þessu. Héðinn kvaðst þá um morguninn hafa hringt til Magnúsar í Höskuldarkoti í Njarðvíkum og hafi hann sakað alþýðusamtökin í Reykjavík um hið sama og sagt að Jóhann lngvason hafi símað til konu sinnar hið sama og formað- urinn á Huldu átti, að sögn Jóns G. Pálssonar, að hafa símað til sinnar konu. Héðinn sagði að sér væri ekki kunnugt um að amast hefði verið við bátnum á nokkum hátt, hvorki af alþýðusamtökunum né einstökum mönnum í Reykjavík. Hann tók fram að Sigurður Guð- mundsson verkamaður hefði verið viðstaddur á bryggjunni þegar báturinn fór og gæti borið um burtför hans. Héðinn neitaði um smurningsolíu Héðinn var þá spurður hvort honum væri persónulega kunnugt um olíubirgðir um borð í Huldu. Hann svaraði því til að Magnús Pálsson hefði verið fastur viðskiptamaður Olíuverslun- ar Islands og hefði fengið 8 tunnur af sólarol- íu snemma í janúar. Magnús Pálsson og Egill Jónasson, formaður á mb. Braga í Njarðvíkum, komu á skrifstofu Héðins í Olíuverslun íslands þriðjudaginn 19. janúar þegar verkbannið var skollið á og bátar þeirra beggja lágu við FAXI 11

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.