Faxi

Årgang

Faxi - 01.05.2008, Side 14

Faxi - 01.05.2008, Side 14
W^mMifáWÆifáWárLðj\ieMuimini^^miítánsiýishherMötaumifasémilliliindáflu2Ínum^ öguleikarnir sem felast í miðlun og varðveisl11 sögu Keflavíkurflugvallar og Varnarliðsins vort' ti! umræðu á fyrstu kynningu Flug- og söguset' urs Reykjaness ehf í Bíósal Duushúsa í ReykjO' neshœ 19. apríl sl. A sýningu sem haldin var i tengslum við kynninguna gafað lita ýjölmargO merkilega muni frá starfsemi Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Saga Varnarliðsins er saga okkar Björk Guðjónsdóttir, forseti bæj- arstjórnar Reykjanesbæjar, flutti ávarp á fyrsta kynningarfund- inum sem stjórn Flug- og söguseturs Reykjaness stóö fyrir í Duushúsum 19. apríl. I ávarpinu sagði Björk meðal ann- ars: „Það var 4. desember árið 2002 sem hóp- ur áhugamanna kom saman til að stofna félag sem hefði það að markmiði að stofna lifandi safn um fiug og tengda starfsemi. Áhuginn á málefninu var mik- ill og voru mættir á stofnfundinn íúlltrúar sveitarfélaganna, fulltrúar flugfélaga, fulltrúarflugmálayfirvalda, fulltrúi Varnarliðsins, fulltrúar flugvirkjafélagsins ásamt einstaklingum sem vildu taka þátt í að vinna þetta verkefni og koma þessari sögu á framfæri. Sagan um samskiptin við Varnarliðið „Áhugi minn kviknaði fyrir mörgum árum síðan varðandi þann þátt sem lýtur að veru Varnarliðsins. Sagan um samskipti íbúa á Suð- umesjum, varnarliðsmanna og ijölskyldna þeirra og þau miklu áhrif á þetta svæði sem vera Varnarliðsins sannanlega hafði, það er sagan okkar og hana þarf að rannsaka og varðveita. Ég hafði vakið athygli sveitarstjómarmanna á Suðurnesjum á þessum málum og var mikill áhugi fyrir því að vera þátttakendur í félaginu. Stofnfúndurinn var mjög áhugaverður. Þarna var saman komið fólk víða að, sem hafði mikla þekkingu á þessum málum og gríðarlegan áhuga fyrir að vinna þessari hugmynd brautargengi." Lifandi safn „Markmiðið er enn það sama að stofna lifandi safn, en verkefnið er ærið og bráð nauðsynlegt að standa vel að slíku. Margar hugmyndir hafa komið fram hvemig best væri að standa að þessu verkefni sem er mjög fjárfrekt. En til þess að unnt verði að koma hugmyndum í framkvæmd þarf fjölbreytt og sterkt bakland þeirra sem styrkja safnið fjárhagslega, það þarf fagfólk að verkefninu og virkan áhugahóp sem stendur þétt að baki þessari hugmynd." Varðveisla minja mikilvæg Björk Guðjónsdóttir sagði að lokum: „Mikill og vaxandi áhugi er á þeirri sögu sem Keflavíkurflugvöllur geymir. Saga Keflavíkurfiugvallar er saga Varnarliðs og millilanda- flugs og hún er einnig saga fjölmargra og margvíslegra fyrirtækja sem störfuðu á Vellinum, hún er saga menningar, félagsstarfs, saga stjórn- mála og saga íbúa á Suðurnesjum. Það er því mjög mikilvægt að varðveita hluti hverskonar sem tengjast Keflavíkurflugvelli og einnig ljósmyndir. Eflaust eiga margir í sínum einkasöfnum Ijósmyndir sem hafa verið teknar á Vellinum við hin ýmsu tækifæri, þær þarf að varð- veita svo unnt verði að miðla þessari sérstöku sögu. Ég hvet fólk til að huga að hlutum og myndum i sínum fórum, en við tökum við minjum sem tengjast þessari sögu.“ 14 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.