Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2008, Síða 15

Faxi - 01.05.2008, Síða 15
Ymsir munir frá dögum Varnarliðsins voru lil sýnis á kynningunni í Duushúsum. Ljósmyndir: Þorgils. Flestir munirnir á sýningunni eru í eigu tveggja safnara og áhugamanna um þessa sögu, þeirra Sævars Jóhannessonar og Hinriks Steinssonar. t*á var sýndur herjeppi í eigu Tómasar Knúts- sonar ásamt herjeppa í eigu Reynis Eiríks- sonar, flugstjóra. Sýndar voru rnyndir úr safni Heimis Stígssonar ljósmyndara frá árunurn 1961-1969 og einnig myndir frá Knúti Höriis, stöðvarstjóra Olíufélagsins á Keflavíkurflug- velli frá 1947 til 1993. Vaxandi áhugi Mikill og vaxandi áhugi er á þeirri sögu sem Reflavíkurflugvöllur geymir. Saga Vallarins er saga varnaliðsins og millilandaflugsins, en tengist einnig fjölmörgum öðrum þáttum, svo sem þróun byggðar í nágrenninu, íbúum svæð- isins, ntargvíslegum íyrirtækjum og starfsemi, félagastarfi, menningu og stjórnmálum. Mikil- vægt er að varðveita söguna, byggingar, bygg- ingarsvæði, hluti hverskonar, ntyndir, skjöl og afla munnlegra heimilda. Með það að mark- miði að rniðla til almennings þessari sérstæðu og mikilvægu sögu. Almenningur er hvattur til að huga að slíkum minjum í sínum fórum, en tekið er við minjum er tengjast þessari sögu. Áhugahópur starfandi Áhugahópur um varðveislu og miðlun sögu Kefiavíkurflugvallar hefur verið starfandi í urn áratug. Margar hugmyndir hafa komið frarn um hvernig best verður staðið að málum varð- andi uppbygginu safns um sögu Vallarins. Það er flókið og kostnaðarsaml að byggja upp og reka safn. Því skiptir miklu að slík stofnun hafi sterkt og ljölbreytt bakland, fjárhagslega, faglega og hafi virkan áhugahóp. Nú er starf- andi stjórn fyrir safnið en eitt af mikilvægari verkefnum hennar er að afla hugmyndinni fylgis sem víðast. Dagskráin í Duushúsunum var íyrsti áfanginn í kynningarátaki hópsins. Þar gátu áhugasamir skrifað sig á póstlista og hitt fulltrúa félagsins. Stjórnin Stjóm Flug- og söguseturs Reykjaness ehf er þannig skipuð: Björk Guðjónsdóttir alþing- ismaður er formaður. Aðrir í stjóm eru Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar, Hinrik Steinsson flugvirki og áhugamaður um her- og flugsögu Islands, Tómas J. Knútsson áhugamaður um sögu Keflavíkurflugvallar og Sævar Jóhannesson rannslögreglumaður og áhugantaður um her- og flugsögu lslands. Ráðgjafar stjórnar eru Guðmundur Pétursson ráðgjafi hjá IAV þjón- ustu, Friðþór Eydal upplýsingarfulltrúi hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar og Einar P. Einarsson, áhugamaður um sögu Keflavík- uiflugvallar. Brautryðjandaverk um herstöðina á Keflavíkurflugvell i r lok síöasta ári koni út stórmerk bók Friðþórs Eydals „Frá heimsstyrjöld til lierverndar - Ketlavíkurstöö- in 1942-1950.“ Keflavíkurstöðin var stærsta einstaka framkvæmd Banda- n'kjahers á íslandi í síðari heimsstyrj- öld. Hún var vettvangur mikilvægra hernaðarumsvifa í styrjöldinni og ört vaxandi alþjóðaflugs eftir að Islending- ar eignuðust hana í stríðslok. Mikilvægi Keflavíkurstöðvarinnar í varnaráætl- unum Bandaríkjanna í upphafi kalda stríðsins olli hatrömmum deilum um afkastamesta samgöngumannvirki þjóð- arinnar og samskipti íslands og Banda- ríkjanna. í bókinni segir Friðþór frá til- urð og starfsemi Keflavíkurstöðvarinnar a örlagatímum þegar grunnur var lagður að áratugadvöl Varnarliðsins. Við upphaf síðari heimsstyrjaldar var enga flugvelli að finna á íslandi og innan við 100 flugferðir höfðu verið farnar yfir Norður- Atlantshafið. Styrjöldin og umsvif erlendra herja í landinu gjörbyltu þjóðlífinu og skjót framþróun í flugtækni og flugvallargerð færði landið í alfaraleið. Bók Friðþórs lýsir hlutverki herstöðvarinnar á Keflavíkurflug- velli, umsvifúm í styröldinni og ört vax- andi alþjóðaflugi að henni lokinni. Einnig er lýst mikilvægi stöðvarinnar í upphafi kalda stríðsins þegar grunnur var lagður að áratuga dvöl Varnarliðsins. Fjallað er um hlutverk Keflavíkuiflugvallar sem framvarðarstöðvar í varnaráætlunum Bandaríkjanna og annarra bandalagsþjóða íslendinga. Þá er fjallað um skiptar skoðanir um hernaðarhlutverk þessa afkastamesta samgöngumannvirkis lands- ins og samskipti Islands og Bandaríkjanna á þessum örlagaríku tímum. Heimilda helur víða verið leitað til að gæða frásögnina lífi, t.d. í innlendum og erlendum skjalasöfnum og hjá einkaaðilum. Fjöldi ljósmynda úr söfnum erlendra herja og einstaklinga, sem fáar hafa birst áður, varpa skíru ljósi á viðfangsefnið. Bókin er byggð á skjölum hernaðaryfirvalda, íslenskra og bandarískra stjórnvalda og frásögnum heim- ildarmanna. Hún hefur að geyma mikið af áður óbirtum fróðleik. Rúmlega 300 fáséð- ar ljósmyndir úr söfnum erlendra herja og einkaaðila varpa ljósi á viðfangsefnið. Ríkisstjóm lslands veitti styrk til heim- ildaöflunar og Menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar styrkti útgáfúna. Bókin kom út 2007 og útgefandi er Bláskeggur. FAXI 15

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.