Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.05.2008, Qupperneq 18

Faxi - 01.05.2008, Qupperneq 18
Kerlingarbúðir undir Vogastapa Sumarið 1974 heimsótti ég Guðmund Björgvin Jónssnn í Vogum, sem fæddur var og uppalinn á bænum Brekku undir Vogastapa. Sá bær var þá löngu kominn í eyði. Fór Guðmundur með mér út að Brekku og gengum við á fjör- unni undir Vogastapa út í Hólmann og þaðan út að Kerlingarbúðum sem voru yst út undir Vogastapa að utanverðu. Kerl- ingarbúðir voru ævaforn útróðrastaður á litlum grasigrónum tanga sem þarna lá og varð ekki komist út í hann gangandi nema á háfjöru undir hlíðum Stapans að austan. A flóði féll sjórinn upp að Stapanum og allt í kringum tangann sem Kerlingarbúð- ir eru á. Líklega fornt útræði Þarna hefur því orðið mikið landbrot og fyrr á öldum, líklega fyrir 1800 eða sennilega fyrr, hefur líklega mátt ganga þurrum fótum út í Kerlingarbúðir undir Stapann heiman frá Brekku. Hvort útræði var stundað frá Kerling- arbúðum eftir að þangað varð alófært gang- andi nema á ijöru er ekki ljóst, en þó er það vel hugsanlegt. Vegna legu staðarins nálægt hinum góðu fiskimiðum undir Vogastapa má telja líklegt að menn hafi róið þaðan eins lengi og fært var enda var styttra úr Búðunum á mið- in undir Stapanum en t.d. úr Hólmanum sem liggur innar undir Stapanum. Nöturleg vist Ur Hólmanum vará 19. öld hálftímaróður und- ir Stapann, samkvæmt frásögn Ólafs Jónsson- ar, fiskimatsmanns í Reykjavík sem Þórbergur Þórðarson skráði 1934-35. Þar er raunar hvergi minnst á Kerlingarbúðir og ekki heldur í sókn- arlýsingu sr. Péturs á Kálfatjörn frá 1840. Frá Kerlingarbúðum hefur því varla verið róið á 19. öld. Raunar hef ég hvergi séð þeirra get- ið svo ég muni í þjóðsögum eða frásögum af verferðum og vermönnum frá 18. og 19. öld. Það hlýtur að stafa af því að útræði hafi lagst niður vegna landbrotsins og erfiðleika á því að komast út í Búðimar úr landi nema á bát á flóð- inu. En hafi verið róið þaðan við þær aðstæður hefur sú vist verið nöturleg og háskaleg með köflum. Minnir raunar á verstöðina á Odd- bjarnarskeri hinu alkunna. Aflangar búðir Að frá Kerlingarbúðum hafi menn róið á miðin á miðöldum og fram á 17. öld er líklegast. Árið 1974 sáust þó enn tóftabrot á staðnum þegar við Guðmundur Björgvin komum þangað á síðsumarsdegi í góðu veðri. Voru tóftir þess- ar minjar um aflangar búðir sem þarna voru fyrrum fremur en ferhyrndar í Iaginu, en grasi grónar. Ekki man ég nú eftir að vottur sæist íyrir uppsátri en líklegt er að það hafi verið að innaverðu við búðatangann. Annars má vera að sú þögn sem er um Kerlingarbúðir í prentuðum sögnum og sögurn frá 18. og 19. öld stafi m.a. af því að þaðan hafi menn helst róið úr Vogunum sjálfum en síður vermenn út fjarlægari landshlutum. En frá Kerlingarbúð- um gátu Vogamenn auðveldlega tví- og þríróið saman sólarhringinn undir Stapann væri þar hlaðafli eins og iðulega var fyrrum. Afli brást þar a.m.k. sjaldan að fullu í hörðum árum eins og heimildir um afla frá 18. og 19. öld bera greinilega með sér. Örnefnið Kerlingarbúðir Sögu um upphaf og tilurð nafnsins Kerling- arbúðir sagði Guðmundur B. Jónsson inér í ferð okkar þarna 1974 en meginefni hennar hef ég því miður gleymt. Þó minnir mig að nafn- ið hafi verið dregið af mennskri kerlingu sem vermenn elduðu grátt silfúr við og komu loks fýrir kattamef. Ekki var kerlingin þó tröllkona eða óvættur sein vermenn áttu í höggi við. En mörg kerlinga- og karla örnefni víða um land munu þó fremur dregin af og tengd ris- um og tröllum til forna en mennsku fólki. Má nefna hið alþekkta Kerlingarskarð á Snæfells- nesi. Þannig virðast t.a.m. nöfnin á þau Karl og Kerlingu undan Reykjanesi vera sprottin í byrjun eftir gos við Reykjanes á 13. öld og á þau hefur einhver fom átrúnaður verið likt og á Karl og Kerlingu við Drangey á Skaga- firði. Leifar gamals átrúanaðar á kerlingu við Reykjanes birtist í sérkennilegu háttalagi sjó- manna er þar fóru framhjá á 19. öld. En Kerl- ing við Reykjanes hmndi raunar einhvertíma á áttunda eða níunda tug 19. aldar. Vera má að nafnið á Kerlingarbúðum undir Vogastapa vísi einmitt til gamals tíma og jafnvel til gam- als átrúnaðar tengdu því nafni í serimoníum sjó og vermanna til forna. Vísa má til ýntissa hugmynda og umtals um konur þegar þeir voru allir samankomnir í hóp. Konur voru iðulega umtalsefni þeirra, bæði til lofs og lasts. Karl og Kerling við Reykjanes voru líka allmiklu hærri og stærri um sig fyrr á öldum en hafa minnk- að sökum hmns fram á 19. öld. Þetta vom því áberandi kennileiti sem vöktu óskipta athygli sjómanna til forna. Byggðin ekki valin af tilviljun Ljóst er að nöfnum á dröngum þessum benda til þess að nöfnin hafi e.t.v. orðið til á þeim tíma þegar eðli manna og trölla hafði blandast saman í hugum manna. Um slíkar hugmyndir eru heimildir í Landnámu og má hugsanlega tímasetja þær allt aftur til tímans frá því um 1100 eða eftir 1200. En hvort nafn Kerlingar- búða er svo gamalt skal ósagt látið. Sennilega er það þó eitthvað yngra. 18 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.