Faxi

Volume

Faxi - 01.05.2008, Page 21

Faxi - 01.05.2008, Page 21
fluttur á ntarkað. Mér hefur fundist sérkenni- legt hversu lítil tengsl markaðurinn hefur við þennan atvinnuveg og hve lítið hinn almenni neytandi veit um fiskveiðar og sjósókn. Ut- lendingar gera sér litla sem enga grein fyrir því striti, þeirn hættum og erfiðleikum sent liggja að baki vörunni sem þeir leggja sér til rnunns á veitingahúsum. Það er eins og fiskveiðar séu hjúpaðar ákveðnum dularblæ í hugum þeirra og að vissu leyti er þetta heimur út af fyrir sig. Meðan ég var í Færeyjum uppgötvaði ég þennan heim og ákvað að reyna að varpa ljósi á hann og það starf sem sjómennirnir vinna.“ Krefjandi og hættulegt starf „Eg hafði frekar rómantíska sýn á sjómennsk- unni og þessum „hetjum hafsins" eins og sjómennimir voru kallaðir í gamla daga. Afi minn, Sárnal Jacob Olsen, var Færeyingur og var skipstjóri á sínu eigin skip í fjölda mörg ár. I síðari heimsstyrjöldinni var hann einn þeirra sem hætti lífi sínu í siglingum með fisk og fisk- afurðir frá íslandi til Bretlands. Margir Fær- eyingar og íslendingar fórust við þessa flutn- inga á þessurn tímum Hann var heppinn að halda lífi ólíkt því sem gerðist með marga aðra sjómenn á þessum tímum. Síðan þá hafa orðið margskonar tæknilegar framfarir í sjávarútvegi og fiskveiðum og lífið urn borð er mjög frábrugðið því sem það var um miðja síðustu öld. Samt er það gríðarlega krefjandi, vandasamt og að ýrnsu leyti hættu- legt starf. Mér verður ekki síst hugsað til þess andlega álags sem er á þeim sjómönnum sem þurfa að vera að heiman frá íjölslyldum sínum, konu og börnum, vikum og jafnvel mánuðum saman. Mig langaði til að komast að raun um hvernig lífið væri um borð í fiskiskipi nú á dögum, fá raunverulega tilfinningu fyrir sjó- mannslífinu og deila þeirri reynslu með öðrurn landkröbbum.“ Alþjóðlegur ráðgjafi „Þegar við unnim að bókinni fengum við ráð- gjöf og aðstoð frá heimskunnum sérfræðingi um sjávarútvegsmál og markaðssetningu sjáv- arafurða, Menakhem Ben-Yami. Hann á meðal annars ítarlega grein í bókinni um fiskveiðar í færeysku lögsögunni. Myndirnar í bókinni tók ég á árunum 2005-2006 um borð í íslenskum, færeyskum, grænlenskum og hjaltlenskum tog- urum. íslenski togarinn var Tómas Þorvalds- son GK10 frá Grindavík. Skipstjóri á honurn i ferðinni sem ég fór var Sæmundur Halldórsson, en aðrir sem aðstoðuðu mig voru þeir Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. og Sigvaldi Þorsteinsson, stýrimaður. Fær- eysku togarana þekkja íslenskir sjómenn vel. Það voru þeir Bakur, Stelkur, Norðborg og Kristján í Grjótinum. Hjaltlenski togarinn heit- ir Copious og sá grænlenski Nanoq Trawl.“ Sjávarútvegssýningin í Kópavogi Sjávarútvegssýningunni sem venjulega gengur undir heitinu Icefish var fyrst hleypt af stokk- unum árið 1984. Sýningin hefur nteð árunum orðið einn af þekktustu viðburðunum í heirni sjávarútvegsins. Þar má hverju sinni sjá allar helstu nýjungar á sviði sjávarútvegs á sviði veiða, vinnslu, pökkunar, markaðssetningar og fleira. Talsmenn Mercator, sem er nýr eig- andi sýningarinnar, segja að góðar undirtektir síðustu sýningar hafi orðið hvatning til að gera sýninguna í ár enn viðameiri og betri. Síð- asta sjávarútvegssýning sló öll met hvað varð- ar vinsældir. Alls sóttu þá sýningu tæplega 15.000 gestir frá 50 löndum. Þeirra á rneðal voru útgerðarmenn, sjómenn og fiskverkend- ur. Mercator hefur ráðið Mariu Olsen og Búa Tyril til að hanna, safna efni og taka viðtöl í sýningarskrána sem gefin verður út í lilefni Icefish 2008. FAXl 21

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.