Straumar - 01.07.1927, Blaðsíða 9

Straumar - 01.07.1927, Blaðsíða 9
STRAUMAR 103 Þótti það í þá daga eigi minni goðgá en nú þykir það, að halda að Jesús haíi átt mannlegan föður, nema meira væri, og á svo hver öld sinn sérstaka hirtingarvönd til þess að sveifla yfir höfðum þeirra, sem eiga erfitt með að sveigja hugsun sína í mót fjöldans. í Kaupmannahöfn kyntiat Guðbrandur einnig Páli Madsen, er síðar varð Sjálandsbiskup og studdi mjög mál Guðbrands hjá kon- ungi og rak erindi hans í Kaupmannahöfn um langt skeið. Varð Guðbrandur á þessum árum hálærður maður, ekki aðeins í guðlegum fræðum, heldur og í ýmsu öðru, svo sem stjarnfræði, rúmmálsfræði o. fl. Eftir heimkomuna gerðist Guðbrandur rektor í Skál- holti, þá prestur á Breiðabólstað í Vesturhópi og síðan rektor á Iiólum. En árið 1570 verður hann biskup á Hól- um 28 eða 29 ára að aldri. Nú fer starfsþrek hans að njóta sín til fulls. Sýnist svo, sem því hafi lítil takraörk verið sett. Hann tekur þegar að brjótast í stórkostlegum búskaparframkvæmdum og skiftir sér af öllu í rekstri stólseignanna, og alt þetta lét honum svo, að liann rakaði saman fé. Hann varpar sér út í hóflausar þrætur og málaferli við höfðingja lands- ins, svo að varla varð lát á alla æfi hans. Hann brýst í því að kaupa skip til verslunar til þess að forðast einok- unarklafann. sem nú var verið að þröngva á landsmenn. Og þó mátti hann vera að því, að smíða og grafa eins og hann þyrfti að hafa eitthvert hjáverk til þess að eyða timanum! En alt voru þetta nokkurskonar aukastörf. Sjálft aðal- lífstarf hans vax kirkjustjórn hans inn á við og út á við og fræðslustarf hans. •' Hann tekur við biskupsdæminu lútersku að lögum (eða ólögum) en kaþólsku að hugsunarhætti og uppfræð- ing. Herskip og svardagar höfðu rekið þar trúboð. Morð Jóna Arasonar og sona hans hafði mýkt skap Norðlend- inga til hins nýja siðar. Ólafur Hjaltason, sem konungur hafði sett á biskupsstólinn, hafði alls ekki valdið þeirri byrði, sem á hann var lögð, þótt sæmdarmaður væri urn margt. Þórunn Jónsdóttir á Grund var ekki holl mann-

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.