Straumar - 01.07.1927, Blaðsíða 13

Straumar - 01.07.1927, Blaðsíða 13
STRAUMAR 107 Nýjar kirkjur hefðu verið reistar alls 7 á árinu: í Flatey, á Di’aflastöðum, Víðirhóli, Sleðbrjót, Stærra-Árskógi, Síðumúla og Kálfafellsstað, — allar úr steinsteypu. — Prest- seturshús hefðu verið reist á Iiöskuldsstöðum og Bergþórs- hvoli, og byrjað á prestseturshúsi á Skútustöðum. Síðasta alþingi hefði verið sparnaðarþing og hefði það vitanlega einnig komið fram í fjárveitingum til kirkjumála (styrkur til uppgjafapresta og prestsekkna verið færður niður í 7000 kr., og framlög til húsabóta á prestsetrum úr 34000 kr. í 24000 kr). Þó hefði þingið samþykt endur- reisn Mosfellsprestakalls í Mosfellssveit. Þá skýrði biskup frá hag kirkjusjóðs, sem hefði nú handbært fé með minsta móti, vegna hinna mörgu nýju kirkna, sem reistar hefðu verið á árinu. Ný lán hefðu orðið um 30 þús. og úttekt af inneign um 30 þús. Enn mintist biskup á yfirreið sína á liðnu ári, á kirkjulega fundi sem haldnir hefðu verið (á Austurlandi og í Vík), á kirkjulega starfsemi og útkomin rit. Þá gaf biskup yfirlit yfir messugerðir og altarisgöng- ur. Reglulegir messudagar á árinu liefðu átt að vera 6431, en messur hefðu alls verið fluttar 4228 eða tæplega 40 á hvern þjónandi prest. Utan Rvíkur hefðu flestar messur verið fluttar í Garðaprestakalli á Álftanesi og Utskála- prestakalli. í 11 prestaköllum frá 12—20. Altarisgestum hefði farið fjölgandi. Alls hefðu þeir orðið 543C, er samsvaraði 9°/0 fermdra safnaðarlima. Þó hefði engin altarisganga, farið fram i 6 prestaköllum. Fermdir hefðu verið á liðnu ári alls 1962. Hjónavígslur alls 616. Fæðst hefðu alls 3013 (þar af 69 andvana). Dáið alls 1122. Þá voru bornar upp tillögur um úthlutun styrktarfjár til uppgjafapresta og prestsekkna og þær samþyktar. (Til úthlutunar komu alls kr. 9290.00). Ennfremur var skýrt frá hag prestsekknasjóðs, er nú átti í sjóði kr. 48.039.41. Gjafir til sjóðsins hefðu orðið alls kr. 508.00 á árinu (úr 14 prófastsdæmum). Kl. 8V2 flutti séra Friðrik Rafnar erindi í dómkirkj- unni út af síðasta riti Sundar Singhs „Eftir dauðann“.

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.