Straumar - 01.07.1927, Qupperneq 15
STRAUMAR
109
hafði að tillögum þessum, að taka tillit til framkominna
athugasemda við framhald starfs síns að endurskoðunar-
verkinu.
Kl. 8»/s síðd. flutti séra Sveinbjörn Högnason á Breiða-
bólsstað erindi í Dómkirkjunni um „gildi trúarinnaru.
Miðvikudag 29. júní kl. 9 árd. var aftur settur fund-
ur með venjulegum hætti.
Fyrst flutti biskup kirkjusögulegan fyrirlestur um
ferð Harboes til Islands.
Síðan var haldið áfram umræðunum um handbókar-
tillögurnar og þar rætt um helgisiðaformin við skírn, ferm-
ingu, altarisgöngu og hjónavígslu. Urðu hinar fjörugustu
umræður um tillögurnar og kómu þar fram ýmsar at-
hugasemdir, sem ræðumönnum þótti ástæður til að gera,
og flestar til bóta, enda lofaði nefndin að taka þær til
greina á sínum tíma. Stóðu umræður þessar fram yfir
hádegi og var haldið áfram frá kl. 3 til 6 síðdegis. Að
loknum umræðum var samþykt að bæta þrem mönnmn
við í handbókarnefndina og hlutu kosningu þeir Haraldur
Níelsson próf.. Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur og Magnús
Jón8son dócent.
Þá var endurkosin nefndin sem hafði haft með hönd-
um barnaheimili8málið og kosin nefnd til að vinna að
bættri lagaskipun viðvíkjandi uppeldi vanræktra barna og
eftirliti með þeim (séra Árni Sigurðsson, dócent Magnús
Jónsson og sr. Friðrik Hallgrímsson).
Þá flutti dómkirkjuprestur Bjarni Jónsson tillögu frá
safnaðarfundi dómkirkjusafnaðarins út af árásum á krist-
indóminn í bókum, blöðum og tímaritum, sem fram hefðu
komið á 8íðustu tímum, en safnaðarfundurinn hefði lýst
hrygð sinni yflr og skorað á prestastefnuna að taka af-
stöðu til þeirra. Eftir nokkrar umr. bar Árni próf. Björnsson
f. h. flytjenda safnaðarfundartillögunnar fram svohljóðandi
tillögu:
„Ut af erindi dómkirkjusafnaðarins í Reykjavík finn-
ur prestastefnan ástæðu til að brýna fyrir prestum og
söfnuðum landsins að hvika í engu frá trúnni á Jesúm