Straumar - 01.07.1927, Síða 18
112
STRAUMAR
vera Jósepsson. Hinu dettur mjer ekki i hug að andmæla að í hand-
ritum N. t. sje ýmsar mótsagnir, sem vitanlega stafa af samsteypu
misjafnra heimilda, misskilningi og ónákvæmni höfundanna eða inn-
skotum siðari afritara. En fyrst S. A. Gislason þykist vera bærilega
að sjer i visindalegri textafræði, þá væri nógu fróðlegt að fá að
heyra hvernig hann hefir fengið heimildir fyrir þeirri fullyrðing
sinni í Bjarma, að heimild Matteusar sje runnin frá Jósep en Lúk-
asar frá þeim Elísabetu og Mariu. Sennilega hefir þá Sigurbjörn,
einn núlifandi manna, haft tal af þeim Jósep og Mariu. B. K.
Evolntion and Creation heitir bók eftir enska náttúrufræðing-
inn Oliver Lodge og kom hún út i janúar 1926. Fjallar bókin um
þróunar og sköpunarkenningar. Þessi bók mun bráðlega koma út á
islenzku i þýðingu Knúts Arngrimssonar stud. theol. Nefnir liann
bókina „Þróun og sköpun“. Bókin er stutt, um 100 síður og er
áskriftarverð einar 3 krónur.
Dómkirkjnn í Þrándheimi. Norðmenn i Bandarikjunum ráð-
gera að hefja á næstunni mikla fjársöfnun til að ijúka viö að byggja
dómkirkjuna i Þrándheimi. Er markmið þeirra að fá inn jafnmarga
dollara og Norðmenn eru þar í landi. Dómkirkjan i Þrándheimi var
fyrst bygð á 12 öld, en hefir oft eyðiiagst af eldi og nú síðast fyri-
rúmri öld. Hefir hún verið endurreist að nokkru leyti, en fje vantr
að til að ljúka verkinu.
Trnarbrngðakensla er nú lögboðin i öllum skólum á Italiu en
þó þurfa nemendur i æðri skólum ekki að hlýða kenslu, nema
þeir vilji.
Danz hefir stjórnin i Bayern bannað á jólaföstu, á jóladag, sjö-
viknaföstu og páskum, bæði opinberar danzskemtanir og danz innan
félaga. Þó má danza i ferðamannabæjum, þar sem margt er um út-
lendinga.
Ráðsstjórnin í Ukraine (i Rússl.) hefir bannað hnefaleika i
Ukraine, þareð þeir geri mikinn skaða með þvi að vekja i mönnum
ruddalegar og dýrslegar hvatir.
Guðfræðisprófi hafa lokið: Eirikur Brynjólfsson með I. eink,
1201/3 st., Sig. Z. Gislason með II. eink betri, 792/3 st., Ól. Ólafsson
með II. eink. betri, 752/3 st.
Stranmar koma út mánaðarlega. Kostar árg. 5 kr., i Ameríku
11/2 dollar. Gjalddagi 1. okt.
Brjef til Stranma sendist til cand. theol. Einars Magnússonar
Reykjavik.
Prentsmiöjan Acta.