Straumar - 01.05.1929, Side 4

Straumar - 01.05.1929, Side 4
STRAUMAR (Í6 er geta leitt oss, sem veikari erum, inn á rjettar brautir. Eki andstæðurþeirra myndu oftast nefndir vantrúaðir. En ber oss ekki samt að fara varlega í dómum vorum um þá Það, sem oss ber að veita hér glögga athygli, ef vér viljum vera sannir í dómum og gera engum rangt til, er þetta, að trúarlíf er hægt að þroska í ólíkai’ áttir, og að það birtist með ólíkum blæ hjá mismunandi einstakling- um. Vér komumst við þá athugun að raun um, að fyr- nefndu mennirnir áttu léttast með að beina v i t s m u n a- ] í f i sínu í trúarlega átt. Fyrir þeim er trúin þekkingar- atriði, guðsþekking. En er vér lítum á síðara dæmið, þá virðist þeim mönnum eiginlegast að beina v i 1 j a 1 í f i n u í þessa átt. Fyrir þeim er trúin hlýðni við boðorð guðs og markmið þeirra er að verða siðferðilega þroskaðir. Sé þetta tvent sameinað og það á háu stigi hjá einhverjum mönnum, trúarþekking og trúarhlýðni, megum vér með réttu nefna þá trúaða menn. En megum vér þá nefna þá, sem hafa þetta af skorn- um skamti eða vantar það algerlega, vantrúaða? Svarið við þessari spurningu á sagan um kanversku konuna að gefa oss. — Þar kynnumst vér konu, sem sáralitla trúar- þekkingu hefir. Ilún er heiðin og hugmyndir hennar um guð og hina æðri hlið lífsins eru óþroskaðar frá kristnu sjónarmiði séð. Hún hefir ekkert lögmál lært, er sýni henni, hvað hún á að gera og hvað að varast, — ef til vih í þess stað einhver ófullnægjandi siðaorð, sem tíðkast hafa með þjóð hennar. Það eina, sem hún á að leiðarljósi um valið milli rétts og rangs, er samvizka hennar sjálfrar. En hún á t i 1 f i n n in g a r, — ást og umhyggju fyrir sjúkri dóttur og djúpa sorg yfir döprum örlögum hennar og brennandi þrá til að bæta mein hennar. Hún mætir á veginum hópi ókunnugra manna, og í einni svipan veit hún, að einn þeirra hefir mátt til að lækna meinið, sem veldur henni áhyggju. Oss gildir einu, hvernig hún fær að vita þetta, enda er ekkert að því vikið. Aðeins þetta eitt: Hún veit, að þarna er mátturinn til þess að koma þessu fram og fyrir þessum mætti titrar sál hennar í lotning og hún hrópar til þessa máttuga manns, — hættir

x

Straumar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.