Straumar - 01.05.1929, Blaðsíða 12

Straumar - 01.05.1929, Blaðsíða 12
74 STRAUMAR um efnum, þ. e. a. s. þuim, sem nokkuð kynna sér guðspjöllin, heldur vcrður miskljð og deila, ef endilega þarf að vera, um mismunandi skilning og skýring og mismunandi framkvæmd kenninga Krists og dæmis, sem mjög hlýtur að verða eftir mis- munandi eðlisfari, uppeldi, lifsreynslu og andlegum þörfum hvers eins, og lika eftir almennum mentunar og hugsunar- þroska. „Kom þú og sjá“, sagði einn af fyrstu lærisveinum Jesú við annan félaga sinn, er þessi annar var heldur vantrúaður á aðdáunarvitnisburð hins um Jesúm. Eins ætti einnig að vera og nægja, nú og altaf, við deilur um Krist eða í sambandi við hann og kenning hans og dæmi, að segja við mótpartinn: „Kom þú og sjá“, farðu og lestu og íliuga þú og rannsaka sjálfur þær einu heimildir, sem til eru um hann frá fæðing hans til dauða og eftir dauðanu lika, og dæmdu svo sjálfur um eftir beztu vit- und og samvizku — eða „með dómgreind og þekkingu" á þess ari heimild, sem er: Guðspjöllin og cinnig öll önnur rit Nýja- testamcntisins, sem þú finnur í samræmi við anda og stefnu guðspjallanna. því engar aðrar heimildir, jafn góðar og gildar, eru til, enn sem komið er i heimi hér um drottinn Krist, og munu varla verða. Eg, gamall maður af gömlum skóla, með ofurlitla lífs- reynslu að baki þó, vildi nú gjarnsamlega reyna að leggja ait vel út fyrir þér og hjá þér, þú ungi maður af nýjum skóla, og mega liugsa og segja, þegar þú liugsar og finnur til í trúarefri- um öðru visi en eg, að þá látir þú beztu vitund og samvizku ráða og stjóma orðum þinum og framkvæmdum um drottii.n vorn og í hans nafni; og að þér þá gangi ekki annað til en löngun og áhugi til að leita sannleikans, finna hann og þjóna honum, sjálfum þér og sem l'lestum öðrum til heilla. En þá vil eg líka, óska og þrái, að þú einnig hugsir og dæmir eins um mig, þó að mín þekking og dómgreind leyfi mér ekki að vera sammála eða samtaka þér í trúaratriðum og athöfnum; því að drottinn Jesús veit, að hann er „mér kær“ og okkur öllum, eldri sem yngri, enda þótt alt sé i veikleika og ófullkomleika. Eg hcfi líka einu sinni verið ungúr og man til þess, að þá hugsaði eg og fann til nokkuð öðru vísi en síðar, og kannast vel við heila brot, drauma og vonir, áhuga og framsækni og ýmsa fljótfærni æskunnar, og ætti því að vera nærgætnari ungdómnum og uni- burðarlyndari, eða vildi vera það. En eg er breyzkur og veikur fyrir og á bágt með að verjast gremju og ýmsu illu, er eg les um eða heyri blint og rakalaust dæmt og dylgjað niðrandi um það, sem enginn getur um dæmt nema guð einn: hugsanir og hjartans tilfinningar þeirra, sem eiga að reyna og eru að reyna að standa og vinna í víngarði di-ottins, eftir því sem þeir vita, hugsa og finna og geta bezt.

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.