Íslendingur - 18.12.1986, Side 5
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
^slcudinaur
OKKUR HEFUR NÝST
GÓÐÆRIÐ TIL FULLS
Senn líöur aö jólum og eins og jafnan á aðventu
eru miklar annir hér á Alþingi. Fjárlög og láns-
fjárlög eru í burðarliðnum og ýmis fylgifrum-
vörp til lokaafgreiöslu. Það hefur verið sagt í
fjölmiðlum að þetta þing sé viðburðarsnautt.
Hver hefur sína skoðun á því og víst er að vel
hefur verið unnið að góðum málum. Hitt má til
sanns vegar færa að þetta þing sé einstakt að
því leyti hversu lítinn svip efnahags- og atvinnu-
málin hafa sett á umræðurnar. Það er glöggur
vitnisburður um það í hve góðu horfi þau mál
eru nú.
Kjörtímabilið er senn að renna sitt skeið á
enda. Það gefur tilefni til nokurrar upprifjunar á
því hvernig aðkoman var hjá ríkisstjórninni. Ég
veit að visu að sá lestur verður leiðigjarn til
lengdar en á hinn bóginn vil ég halda þvi til
streitu að hann sé holl upprifjun þeim sem nú
láta sér smámuni vaxa i augum.
Ég hef oft talað um þá svörtu vordaga 1983
þegar við vorum i stjórnarmyndunarviðræðum.
Verðbólgan hafði vaxið jafnt og þétt og var
komin vel yfir 100%. Menn voru hræddir um að
atvinnuvegirnir, - fyrirtækin, - myndu ekki
standast álagið til lengdar þannig að yfirvofandi
væri verulegt atvinnuleysi nema söðiað yrði um
í efnahagsmálunum. Ekki bætti það úr skák að
lifskjör höfðu versnað mjög verulega og
ástandið var þannig hjá húsbyggjendum að þeir
voru að missa eigur sínar vegna misgengis
kaupgjalds og lánskjaravísitölu. Við Sjálfstæðis-
menn settum ströng skilyrði fyrir því að við
gengjum til stjórnarsamstarfs. Það þurfti ekki
að koma neinum á óvart að smáflokkarnir
hikuðu við og höfðu ekki djörfung til að takast á
við verkefnið. Sérstaklega var það áberandi að
þeir Alþýðuflokksmenn kusu að standa utan við
enda hefur þeim látið best i seinni tíð að gera
svo þegar á reynir.
í dag er öðruvísi umhorfs. Bjartsýni er komin í
stað bölsýni. Mikill uppgangur er i atvinnulifinu
og kaupmáttur hefur vaxið jafnt og þétt. Þannig
er talið að á mælikvarða kauptaxta muni kaup-
máttur aukast um allt að 11 % frá upphafi til loka
árs, en kaupmáttur tekna heimilanna um 20% á
siðustu tveim árum og sé hærri nú en nokkru
sinni fyrr.
Nú er búist við að hagvöxtur verði um 6% á
árinu og að þjóðartekjur geti aukist um meira en
8%. Þetta er meiri hagvöxtur en í nokkru öðru
vestrænu iðnríki á þessu ári.
Veröbólgan verður rétt um 12% frá upphafi til
loka árs og er það að vísu 3% meira en Þjóðhags-
stofnun hafði spáð í febrúarlok en því veldur að
mestu hækkun Evrópumynta og veik staða
dollarans þannig að þar er ytri áhrifum um að
kenna.
Húsnæðisstjórnarlán til þeirra sem enga íbúð
eiga fyrir eru nú rúmlega 2,3 milljónir en voru
rétt um 700 þúsund við stjórnarskiptin í jafn-
verðmætum krónum.
Hér hef ég stiklað á fjórum punktum en síðast
en ekki sisthefursámikliárangurnáðstaðnúer
talið líklegt að hallinn á viðskiptunum við útlönd
verði óverulegur eða geti jafnvel horfið með öllu
og yrði það i fyrsta sinn síðan 1978 sem það
gerðist. Erlendu skuldirnar hafa verið að vaxa
okkur yfir höfuð þannig að það yrði mjög
mikilsverður árangur ef þetta tækist nú og bæri
efnahagsstjórninni glöggt vitni. Auðvitað er það
rétt að við höfum búið við mjög mikið góðæri
um sinn og frið á vinnumarkaði en það breytir
ekki hinu að góðærið hefur nýst okkur til fulls
þannig að tekist hefur að gera allt i senn: bæta
lífskjör og treysta afkomu fyrirtækjanna, efla
innlendan . sparnað en hætta skuldasöfnun
erlendis.
Þetta ár markar með vissum hætti þáttaskil á
Akureyri með þvi að nú hefur verið tekið inn í
fjárlög að háskóladeildir skuli taka til starfa
næsta haust. Þessi fyrsti visirað Háskólanum á
Akureyri er vissulega timanna tákn og stað-
festing á því að nauðsynlegt sé að styrkja þann
grunn sem Akureyri stendur á sem eini staður-
inn á landsbyggðinni sem er í nokkrum færum
um að vera mótvægi við höfuðborgarsvæðið og
veita þvi þá samkeppni sem nauðsynleg er.
Ég hef oft verið spurður að því syðra á þessu
ári hvað fyrir mér vaki með Háskólanum á
Akureyri, og svarið er í sjálfu sér einfalt.
Menntun og þekking tilheyrir engum einum
stað og hún er jafn nauðsynleg hvar sem er á
landinu. Við erum ekki að keppa að því nú að
setja á stofn háskóla sem sambærilegur sé við
Háskólann á Melunum. Á hinn bóginn höfum
við fullan hug á því að hér verði hægt að afla sér
vissrar undirstöðumenntunar sem vel nýtist
þeim sem vilja fara út í atvinnureksturinn,
stjórna fyrirtækjum og kunna skil á því hvað
einstakir verkþættir kosti. Þannig er iðnrekstrar-
námið að saman tengist tækni eða verkþekking
og skilningur á grundvallaratriðum í rekstri
fyrirtækja. Eftir áramótin verður efnt til fundar
þar sem það verður rætt sérstaklega hvernig
hægt sé að byggja ofan á þetta nám eða hvort
rétt sé að efna til viðskiptafræðideildar við
hliðina á iðnrekstrarnáminu þar sem áherslan
verði lögð á markaðs- og rekstrarfræði. Þessi
viðskiptafræðideild verði hagnýt og unnt að
taka lokapróf eftir tvö eða þrjú ár.
Þá er að hefjast athugun á því hvernig hægt sé
að koma hér á fót kennslu í matvælafræði á
tækniháskólastigi eins og ég hef áður gert grein
fyrir. Síðast en ekki síst hefst kennsla í hjúkrunar-
fræðum næsta haust, sem þjónar tvenns konar
tilgangi. Annars vegar eru líkur til þess að hún
tryggi að vel menntað fólk komi til starfa við
Fjórðungssjúkrahúsið og hins vegar er hún til
þess fallin að breikka grunn þess bæði inn á við
og út á við.
Ég hef í þessum fáu orðum lagt áherslu á
tvennt. Annars vegar hef ég gert grein fyrir þeirri
góðu stöðu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
vegna þess árangurs sem náðst hefur í
efnahags- og atvinnumálum. Þar er sjón sögu
rikari og vafalaust að engir vilja skipta á því
ástandi sem nú er og hinu sem menn urðu að
þola á verðbólguáratugnum. Hins vegar hef ég
gert Háskólann á Akureyri að umtalsefni en ég
tel að hann sé eitthvert mesta hagsmunamál
Akureyrar nú, ekki síst með hliðsjón af þvi að
reynslan erlendis frá kennir okkur að ekkert sé
eins líklegt til þess að efla byggðirnar eins og
einmitt það að fólk geti átt kost á hagnýtu lang-
skólanámi heima fyrir. Akureyri hefurátt þviláni
að fagna að þær skólastofnanir sem hér eru
hafa verið vel reknar og í fremstu röð og vil ég
mega vænta þess að eins verði um Háskólann á
Akureyri, að hann standi fyllilega jafnfætis því
besta sem völ er hvað varðar gæði menntunar
og starfskrafta þannig að enginn verði svikinn
sem þangað sækir. Með þeim orðum vil ég óska
Akureyringum, Norðlendingum og íslendingum
öllum gleðilegra jóla.
Halldór Blöndal.
Egils jólaöl
Okkar vinsæla
jólaöl
verður til afgreiðslu frá
og með 16. desember
Ölumboðið hf.
Hafnarstræti 86b - Sími 22941
v1icoA I m II
Spur1
M>P£LS\N Cbla maltextrakt
Sýningar um jólin
REVÍUKABARETTINN
MARBLETTIR
Sunnudaginn 28. des. kl. 20:30
Þriðjudaginn 30. des. kl. 20:30
DREIFAR AF DAGSLÁTTU
Laugardaginn 27. des. kl. 14:00
Sunnudaginn 28. des. kl. 15:00
MIÐASALA - SlMI 24073
IIHYRIMD
Þrihyrningur til viövörunar ætti
að vera í hverri bifreið. Það
eykur öryggi að mun að
koma honum fyrir í
góðri fjarlægö frá
biluðum bil jafn-
vel þótt viðgerö
taki skamm-
an tima. VrAd
I
1