Austurstræti - 23.06.1938, Blaðsíða 4
AUSTURSTRÆTI
UR ÖLLUM ÁTTUM /.-
Leyndardómar oulu múnkanna
Á þessum tímum, þegar blöðin
flytja daglega fregnir af ófriðnum í
Austurálfu, mun ósjálfrátt vakna hjá
flestum nokkur forvitni á að kynnast
nánar högum og hinum ýmsu siðum
hinna undarlegu gulu þjóðflokka,
sem byggja Asíu. — Eftirfarandi
grein er um Tibetbúa, einhverja dul-
arfylstu þjóðina á þessum slóðum, og
segir meðal annars frá leit þeirra
eftir hinum nýja Dalai Lama eða
æðsta presti.
MARGIR hiifa lesið ferða-
sögur sænska landkönn-
uðsins, Sven Hedins, og frásög-
urnar um æfintýri hans í Tíbet.
— Og þeir, sem það hafa gert
mun reka minni til þess að ef
til vill er ekkert þeirra æfin-
týra eins dularfult og spenn-
andi, eins og þegar hann er að
reyna að komast fyrir leynd-
ardóma ,,gulu kirkjunnar“, eins
og hann einhversstaðar nefnir
buddhismann. — En Tíbetbúar
eru eins og svo margar aðrar
mongólskar þjóðir, búddhatrú-
ar.
I
Hin heilaga borg þeirra er
Lhasa og þar ríkir Dalai Lama
æðsti prestur þeirra. Lhasa var
lokuð borg fyrir Evrópubúa frá
ómunatíð og fram á allra síð-
ustu ár. Og sá sem vogaði sér
að brjóta það bann, átti aldrei
afturkvæmt. Þó tókst Sven
Hedin að sleppa þangað inn fyr-
ir borgarmúrana í dularklæð-
um og þar áður hafði Englend-
ingur nokkur leikið sama leik-
inn, svo ofurlitlar sagnir höfðu
þó umheiminum borist frá hinni
glæsilegu og helgu borg með
hinum ótölulega fjölda af heil-
ögum musterum og klaustrum,
— múnkum og prestum.
Á allra síðustu árum hefir
þó útlendingabanninum verið
létt af og svo að nú er engin
nýlunda að sjá allra þjóða
ferðalanga skálma um göturn-
ar og Kodak myndavélarnar
hér og þar á lofti. — En enn-
þá geymir þó Lhasa ógrynni
af leyndardómum, sem hvítir
4