Morgunn - 01.12.1988, Side 62
ÚR FÉLAGSSTARFINU
MORGUNN
Miðillinn Julie Griffilhs lalar á skyggnilýsingafundi.
Allir hafa þó þennan hæfileika í sér. Margir vilja ekki nota
hann, lifa ekki nægilega kyrrlátu lífi til þess eða eru ekki
tilbúnir af öðrum ástæðum.“
Miðill sér fólk fyrir handan, heyrir til þess og finnur til-
finningar þess. Sumir halda að hægt sé að þjálfa sig til slíks á
6-7 mínútum, en svo einfalt er málið ekki.
,,Pað er mjög gott að við lærum sem mest um Iífið fyrir
handan,“ sagði Julie, ,,það t.d. tekur burt frá okkur hræðsl-
una við dauðann.“
Hún kvaðst aldrei tala út frá minnisatriðum á blöðum
þegar hún talaði á svona fundum, og ef henni mistækist
eitthvað þá fengi hún strax aðstoð að handan. „Við getum,“
sagði hún, „tengst fólkinu þar huglægt og fengið hjálp þegar
á þarf að halda.“
„Margt hefur verið sagt um spíritismann sem er bæði rangt
og byggt á misskilningi, en athugið að ykkar hlutur er ekki
hvað sístur varðandi þessi mál. Þegar þið komið á miðils-
fundi, komið þá með opnum huga og sendið miðlinum vin-
gjarnlegar hugsanir. Það sem þið gefið af sjálfum ykkur, það
60