Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Side 4
ÚTVARPSTÍÐINDI
skáld, skipaður af ráðherra, með því
að á brast um lögmælt skilyrði til
kjörs af hálfu útvarpsnotenda sjálfra.
Frá ársbyrjun 1930 var ég skipað-
ur útvarpsstjóri. Gaf ég því aðeins
kost á að taka að mér þetta starf, að
lögunum yrði gerbreytt; stofnunin
yrði leyst úr tengslum við landssím-
a.nn og gerð algerlega sjálfstæð undir
yfirstjórn ráðherra. Það varð að ráði,
að ág tækist ferð á hendur í ársbyrj-
un 1930 til nágrannalanidanna, til
þess að kynna mér skipulag og rekst-
ur slíkra stofnana hjá nágrannaþjóð-
um okkar. Áður en ég lagði af stað
í þessa för, samdi ég, með aðstoð öl-
afs Kvaran, núverandi ritsímastjóra
í Reykjavík, frumvarp til nýrra laga
um, útvarpsrekstur ríkisins, sem var
lagt fyrir Alþingi þá um veturinn og
var það samþykkt með nokkrum
breytingum og viðaukum, sem ég
óskaði eftir, er ég kom heim úr fyrr-
nefndri utanför.
Með þessum lögum frá 1930 var gerð
meginbreyting á hinni ráðgerðu skip-
un útvarpsrekstursins. Stofnunin var
gerð algerlega sjálfstæð. Ötvarps>-
stjóra var falið að annast allt, er lýt-
ur að stjórn og rekstri útvarpsins og
hafa á hendi fjárreiður þess og reikn-
ingshald. Auk þess. var með þeim lög-
um ákveðin einkasala ríkisins á út-
varpsviðtækjum og varahlutum slíkra
tækja.
II. Skipulag Kíkis-
útvarpsins.
Yztu drættir skipulagsins voru
markaðir af lögunum frá 1930. Að
öðru leyti lá það verkefni fyrir, að
ráða íolk til starfa, flokka störfin. og
skipa þeim í deildir, setja reglugerð
og reglur samkvæmt lögunum, koma
skipun á bókhald og vinnuaðferðir
deildanna, byggja upp innheimtu-
kerfi, stofnsetja einkasöluna og koma
til leiðar skýrslugerðum umboðs-
236