Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Blaðsíða 15

Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Blaðsíða 15
ÚTVARPSTÍÐINDI missa þá af þeim. Ég veit til þess, sænska útvarpið, og mér fannst þá, að að óskir um breytingu á þessu hafa borist útvarpsráði, en ég hefi aldrei heyrt ástæður fyrir því, að þessi kvöld eru valin fi-emur en t. d. sunnu- dagskvöld eða seinni hluti sunnudags, eða þá eitthvert annað kvöld vikunn- a;r. Væri fróðlegt að heyra þessar á- stæður, sem vitanlega geta. verið full- gildar. En í sambandi við leikina hefur mér clottið það í hug, hvort ekki mætti gera meira að því, en gert er, að taka íslenzkar sögur og leika þær, eða kafla úr þeim, í útvarpið. Ég hefi hlustað á eina af sögum Selmu Lager- löf, Mýrarkotsstelpuna, leikna í Italía útvarpar á 16 tuvgumálum. Frá byrjun þessa árs fer ítalía að útvarpa á. 16 mismunandi tungumál- um. Þetta. útvarp fer aðall. fram á stuttbylgjum. Vegna þessa geta nú allflestar þjcðir heimsins fylgst með fréttaflutningi Itala. Búlgaría útvarpar einnig á ýmsum málum. Þeir, sem hafa sterk tæki, munu nú geta heyrt bæði fréttir og erindi frá Búlgaríu (Sofia 352,9 m.). Eftir íslenzkum tíma hefst þetta útvarp um kl. 20.50. M. a. er útvarpað á þýzku, ensku og frönsku. Hvað á að gera við peningana Nýlega var fundur í danjska út- varpsráðinu, þar sem tekin var til meðferðar fjárhagsafkoman síðast- liðið ár. Tekjur danska útvarpsins höfðu orðið 7 millj. og 1 hundrað þús- und krónur, en útgjöldin rúml. 5i við Islendingar ættum margt af sög- um, bæði stuttum og löngum, sem vel væru til slíks flutnings fallnar, t. d. sögur einsi og »Vistaskipti« og fleiri sögur Einars Kvaran, ýmsar af sög- um Jóns Trausta o. s. frv. Æfðir upp- lesarar ættu að geta gert slíkt undir- búningslítið. Mætti jafnvel taka þann- ig kafla úr 'íslendingasögunum, Efnið verður ótrúlega mikið meira lifandi fyrir þeim, sem á hlustar, með slík- um Icstri og tilheyrandi hljóðum, sem vel má láta heyrast í útvarpi. Væri ekki hægt að gera tilraun með þetta í einhverri kvöldvökunni bráðlega? S. Kristjánsson. millj. Tekjuafgangur er því um 1| milljón, — Ekki er getið um nema eina ákvörðun, sem tekin var á fundi þessum. Hún var sú, að á næsta, miss,- iri skyldu verða haldnir 24 vfimmtu- dagshljómleikar«, alveg eins og síð- astliðið missiri. Eins og áður er getið um hér í blað- inu, eru þessir »fimmtudagshljóm- leikar« eitthvert allra dýrasta og vandaðasta útvarpsefni, sem um er að ræða á Norðurlöndum, enda hafa þeir aflað danska útvarpinu vinsælda og virðingar um alla Evrópu og víðar. ÍTVABPSTIÐINDI koma út vikulega að vetrinum, um 30 hefti á ári, 16 bls. hvert. Verð kr. 4,80 árgang- urinn. f lausasölu kostar heftið 25 au; a, en fastir áskrifendur fá heftið fyrir að- eins 16 aura, ef greidd eru minnst 10 heft- í einu fyrir fram. Rltstj. og ábm.: Kristján Frlðriksson, Sjafnargötu 5. Sfmi 3838. útgefandi h. f. Hlustandinn PRENTSMIÐJA JóNS HELGASONAR 247

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.