Útvarpstíðindi - 30.01.1939, Blaðsíða 7
ÚTVARPSTÍÐINDI
BRENNISTEINSHÁM
Erindi dr. 3óns E. Vestdal
Nú í haust var byrjað að reisa
verksmiðju norður við Mývatn. Er
hún ætluð til að hreinsa brennisteins-
jörð (í daglegu tali nefnd brenni-
steinn),, sem er þar og á nokkrum
öðrum stöðum, í Þingeyjarsýslu.
Stærstu brennisteinsnámurnar eru 5
km. austur af Keykjahlíð í Náma-
fjalli, og þar verður verksmiðjan
reist. Hjá. Mývatni eru auk þess
brennisteiusnámur í Kröflu og Leir-
hnúk. Auk þess eru all ríkar námur
í nyrztu jöðrum ódáðahrauns, um 25
km. suð-austur af Mývatni, við eld-
gýginn Ketil, svonefndar Fremri-
námur. Þá eru og námur á Þesta-
reykjum á Reykjaheiði. — Tilgang-
urinn með því að reisa verksmiðju
þessa, er að hagnýta námur þessar,
e. t. v. allar í þessari verksmiðju.
Brennisteinshlunkm í Námaskaröi'.
Námofjall í baksýn. Skammt þarna
frá er verksmiðjan reisl.
Þeir sem nú stofna þetta fyrirtæki
eru Þorvaldur Thoroddsen, Ragnar
Jónsson, framkvæmdarstjórar smjör-
líkisgerðarinnar »Smári« og dr. Jón
E. Vestdal. Þessir menn hafa unnið
Dr. Jón E. Vestdal
að undirbúningi verks þessa, undan-
farin 3—4 ár, og er til þess ætlast,
að hægt verði að hefja brennisteins-
vinnsluna á komandi vori. Mjög auð-
velt er að ná brennisteinsjörðunni,
Hún. liggur ofanjarðar í smá hrúgum
kring um hverina. Verður henni mok-
að á bíla og flutt í verksmiðjuna.
Brennisteinninn hefur verið tals-
vert þýðingarmikil útflutningsvara
fyrir Islendinga um margar aldir.
Ilið fyrsta, sem um hann er vitað er
það, aö erkibiskuparnir í Þrándheimi
höfðu einkasölu á íslenzkum brenni-
steini á 13. öld, en norsku konung-
arnir reyndu að sölsa þá sölu undir
sig, svo líklegt er að sú einkasala hafi
gefið eitthvað í aðra hönd. Álitið er,
að síðan hafi verið fluttur út brenni-
steinn frá Islandi næstum árlega þar
til árið 1845, að brennisteinsnám lagð-
ist niður, og hefur það ekki verið tek-
ið upp síðan svo neinu nemi þar til nú.
239