Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Síða 8

Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Síða 8
Sænskt kvöld Nýlega var þjóðhátíðardaga Norð- manna og Dana minnzt í útvarpinu. Nú verður „sænskt kvöld“ í útvarpinu 16. júní, en þá er 84. afmælisdagur Gústafs V. Svíakonungs. Jón Magn- ússon fil. kand. mun flytja erindi um Svíþjóð, frú Vivan Jakobsson les upp, Þorsteinn H. Hannesson syngur sænsk þjóðlög, og auk þess mun sænsk hljómlist verða á dagskránni. Svíar hafa eiginlega þrjá júnídaga sem þjóðhátíðardaga um þessar mund- ir, meðan þessi konungur lifir. Fána- dagurinn, 6. júní, er þeirra mestur og hátíðlegastur um land allt. Hann er haldinn hátíðlegur til minningar um frjálslynda stjórnarskrá, sem Svíar fengu 6. júní 1809. A þeirri stjórnar- skrá byggist núverandi lýðræðisfyrir- komulag ríkisins með þingbundinni konungsstjórn. Þessi dagur Svía hefur því svipaðan blæ eins og 17. maí Norðmanna og 5. júní Dana. En afmælisdagur konungs er einnig mikill viðhafnardagur. Svíar eru kon- unghollir, þeir bera virðingu fyrir kon- ungi sínum og ættmennum hans. Það er því gömul hefð að minnast hans með gleðskap um land allt. Svíar vilja gjarnan fá að sjá konung og konungs- fjölskylduna, þeir vilja einnig fylgjast með athöfnum og ferðum konungs. En Otto Johanson, sendiherra Svía. Gústav V. hefur ferðast töluvert mikið og er íþróttamaður á marga lund, sér- staklega þykir hann góður tennisleik- ari. Á friðartímum hefur hann jafnan ferðast á veturna suður að Miðjarðar- hafi, til þess að njóta þar hressingar og stunda íþróttaleiki. Það mun mega teljast öruggt, að húsfylli verði við leiksýningar, þar sem konungsfjöl- skyldan er viðstödd. Blöðin flytja viku- lega og sum því nær daglega myndir og fréttir frá konungsfjölskyldunm. Þykir sala á blöðum með slíkum frá- sögnum vera örugg. Sænska þjóðin hefur á margan hátt sýnt konungi sín- um hollustu í verki. Á sjötugsafmæli Gustavs V. safnaði þjóðin 5 milljónum króna í sjóð og færði konungi í afmæl- isgjöf. Konungur var að vísu ekki beinlínis fjárþurfi, enda gaf hann all- an sjóðinn til rannsókna á krabba- meini og baráttu gegn því. Þegar kon- ungur hafði ríkt í 30 ár, árið 1938, færði þjóðin honum aftur stórfé að 348 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.